Morgunblaðið - 16.08.2018, Síða 2
Kevin De Bruyne, miðjumaður enska knatt-
spyrnufélagsins Manchester City, meiddist
illa á æfingu liðsins í gær. De Bruyne meidd-
ist á hné og er nú óttast að hann sé með slit-
in liðbönd.
Sportmail greinir frá því að leikmaðurinn
gæti orðið frá í þrjá mánuði vegna meiðsl-
anna en hann var lykilmaður í liðinu á síð-
ustu leiktíð þegar City varð meistari. Hann
var af mörgum talinn besti miðjumaðurinn í
ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
Hann kom við sögu í 52 leikjum með City
og skoraði 12 mörk og lagði upp 21 mark fyrir liðsfélaga sína.
De Bruyne er lykilmaður í belgíska landsliðinu, bronsliði
HM í sumar. Belgar sækja Íslendinga heim þann 11. sept-
ember í Þjóðadeildinni. sport@mbl.is
De Bruyne er úr leik
Kevin De
Bruyne
Ísland átti marga fulltrúa á Manchester
International-mótinu í frjálsum íþróttum
sem fram fór í Manchester Sports Arena í
gær. Hafdís Sigurðardóttir stökk 6,24
metra í langstökki og hafnaði í 8. sæti í
keppninni. Hennar besti árangur á ferl-
inum utanhúss er 6,72 metrar.
Hilmar Örn Jónsson hafnaði í 4. sæti í
sleggjukasti en var nokkuð langt frá því að
kasta sleggjunni þá vegalengd sem hann er
fær um að gera. Hilmar kastaði 64,42
metra en á best 71,60 á þessu keppn-
istímabili. Ólympíufarinn Guðni Valur Guðnason var einnig á
meðal keppenda en árangur hans í kringlukastinu lá ekki fyr-
ir þegar blaðið fór í prentun í gær. Né heldur tími Hlyns
Andréssonar í 1.500 metra hlaupi. sport@mbl.is
Hilmar Örn í 4. sæti
Hilmar Örn
Jónsson
FRÉTTASKÝRING
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Heimavallaárangur íslenskra karla-
landsliða í handbolta, fótbolta og
körfubolta í keppnisleikjum hefur
verið magnaður síðustu ár. Hand-
boltalandsliðið hefur ekki tapað
keppnisleik á heimavelli síðan árið
2006, fótboltalandsliðið ekki tapað á
heimavelli síðan 2013 og körfubolta-
landsliðið aðeins tapað þremur leikj-
um af síðustu tíu keppnisleikjum sín-
um á heimavelli.
Handboltalandsliðið tapaði síðast
keppnisleik á heimavelli 17. júní 2006
er Svíþjóð kom í heimsókn og vann
26:25-sigur í undankeppni HM 2007.
Ísland vann fyrri leikinn 32:28 og fór
því á HM á kostnað Svía. Síðan þá
hefur liðið leikið 21 leik á heimavelli,
unnið 19 og gert tvö jafntefli. Aðeins
Noregur og Bosnía hafa komið í heim-
sókn í Laugardalshöllina síðustu ár og
ekki tapað. Ísland gerði 34:34-jafntefli
við Noreg í undankeppni EM 2010 og
Ísland og Bosnía skildu jöfn, 29:29, í
umspili um sæti á HM 2015. Síðan þá
hefur liðið unnið átta heimaleiki í röð
og sigraði m.a. Þýskaland, 36:31, í
undankeppni EM 2012 og Slóveníu,
35:34, í undankeppni EM 2014.
Íslenska liðið vann alla þrjá heima-
leiki sína í undankeppni EM 2018; á
móti Tékklandi, Makedóníu og Úkra-
ínu, sem og umspilsleik við Litháen
fyrir HM 2019.
Heimir vann alla heimaleikina
Slóvenía kom í heimsókn á Laugar-
dalsvöllinn 7. júní 2013 í undankeppni
HM í fótbolta sem haldið var í Bras-
ilíu 2014. Slóvenar unnu leikinn 4:2.
Síðan þá hefur karlalandsliðið í fót-
bolta spilað tólf keppnisleiki á heima-
velli, unnið tíu og gert tvö jafntefli. 6.
september 2015 gerðu Ísland og Ka-
sakstan markalaust jafntefli á Laug-
ardalsvelli. Úrslitin þýddu að íslenska
liðið tryggði sér sæti á EM í Frakk-
landi 2016. Íslenska liðið gerði svo
2:2-jafntefli við Lettland 10. október
sama ár og í sömu undankeppni og
eru það einu leikirnir sem Ísland hef-
ur ekki unnið á heimavelli síðan Slóv-
enía kom í heimsókn. Á meðal sigra
sem liðið hefur unnið síðan er 2:0-
sigur á Hollandi í undankeppni EM
2016, 2:1-sigur á Tékkum í sömu und-
ankeppni, 1:0-sigur á Króatíu í und-
ankeppni HM 2018 og tveir sigrar á
Tyrkjum í undankeppni EM 2016 og
HM 2018. Ísland vann alla fimm
heimaleiki sína eftir að Heimir Hall-
grímsson tók einn við landsliðinu, en
þeir voru allir í undankeppni HM
2018. Meðal þeirra voru sigrar á stór-
þjóðum á borð við Tyrkland, Króatíu
og Úkraínu.
70% sigurhlutfall og tvö EM
Íslenska karlalandsliðið í körfu-
bolta hefur unnið sjö af síðustu tíu
keppnisleikjum sínum á heimavelli og
á þeim tíma tvívegis komist á Evr-
ópumót. Búlgaría kom í heimsókn í
Laugardalshöllina í undankeppni EM
2015 og vann 81:79-sigur. Í sömu und-
ankeppni tapaði Ísland fyrir Bosníu á
heimavelli, 78:70. Búlgarar komu aft-
ur í heimsókn í undankeppmi HM
sem fram fer á næsta ári og vann
77:74. Búlgaría og Bosnía eru því einu
liðin sem hafa komið í Laugardals-
höllina síðustu fimm ár og nælt í sig-
ur. Á þeim tíma hefur Ísland unnið
sterkar þjóðir. Ísland vann Rúmeníu í
undankeppni EM 2015, 77:71. Í und-
ankeppni EM 2017 vann Ísland m.a.
88:72-sigur á Sviss og 74:68-sigur á
Belgum. Íslenska liðið vann svo tvo
glæsilega sigra í byrjun árs í und-
ankeppni HM 2019. Fyrst komu
Finnar í heimsókn og vann íslenska
liðið 81:76 hinn 23. febrúar og tveimur
dögum seinna hafði Ísland betur á
móti Tékkum, 76:75.
Á síðustu árum hafa íslensku karla-
landsliðin í handbolta, körfubolta og
fótbolta því aðeins tapað þremur af
síðustu 43 keppnisleikjum á heima-
velli og unnið 37.
Morgunblaðið/Golli
Fótbolti Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson á Laugardalsvelli.
Sterkt vígi í Laugardal
Körfubolti Landsliðsfyrirliðinn Hlynur Bæringsson í
Karlalandsliðin í boltagreinunum hafa unnið 37 af síðustu 43 heimaleikjum
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018
Mjólkurbikar karla
Undanúrslit:
Stjarnan – FH........................................ (2:0)
Leiknum var ekki lokið þegar Morgun-
blaðið fór í prentun.
4. deild karla B
Elliði – Hvíti riddarinn ............................ 2:3
Skallagrímur – Reynir S...........................1:1
Staðan:
Reynir S. 13 11 2 0 45:9 35
Skallagrímur 13 9 1 3 40:16 28
Elliði 13 9 0 4 33:18 27
Hvíti riddarinn 13 6 2 5 32:36 20
Mídas 12 4 1 7 25:34 13
Hörður Í. 12 3 0 9 23:47 9
SR 12 2 2 8 21:36 8
Úlfarnir 12 1 2 9 9:32 5
4. deild karla D
Kórdrengir – Léttir.................................. 4:1
Staðan:
Kórdrengir 12 8 1 3 26:12 25
ÍH 10 5 2 3 17:22 17
Kormákur/Hvöt 10 4 4 2 20:9 16
Kría 10 4 3 3 17:14 15
Léttir 11 4 3 4 16:18 15
Vatnaliljur 11 1 5 5 12:23 8
Geisli A. 10 1 2 7 8:18 5
Meistarabikar Evrópu
Real Madrid – Atletico Madrid .............(2:2)
Framlengingu var ekki lokið þegar
Morgunblaðið fór í prentun.
KNATTSPYRNA
Asíuleikarnir
B-riðill:
Japan – Pakistan ...................................38:15
Dagur Sigurðsson er þjálfari Japans.
D-riðill:
Indland – Barein ...................................25:32
Aron Kristjánsson er þjálfari Bareins.
HANDBOLTI
KNATTSPYRNA
Evrópudeild UEFA:
Hlíðarendi: Valur – Sheriff........................19
Bikarkeppni karla, Mjólkurbikarinn:
Kópavogsv.: Breiðablik – Víkingur Ó.......18
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi-deildin:
Jáverks-völlurinn: Selfoss – Grindavík ....18
1. deild kvenna, Inkasso-deildin:
Floridana-völlurinn: Fylkir – Haukar.19:15
Akraneshöllin: ÍA – Keflavík ...............19:15
4. deild karla:
Grýluvöllur: Hamar – Ýmir.......................19
Leiknisvöllur: Afríka – Álafoss .................19
Kórinn: Ísbjörninn – Kóngarnir ...............19
Í KVÖLD!
Asíuleikarnir
um gangi en
Indónesíu. Í g
ar Dags Sigu
Pakistans í B
vann örugga
leikur Japan
sæti B-riðils
Suður-Kóreu
ilsins 17. ágú
Þá unnu læ
sonar í Barei
D-riðli en Barein er með fullt hú
fyrstu tvo leiki sína. Liðið mæti
riðlakeppninni 17. ágúst en Bar
fara áfram í útsláttarkeppnina.
Öruggir sigra
Dagur
Sigurðsson
Miðvörðurinn Ax-
el Andrésson er
genginn til liðs
við norska knatt-
spyrnufélagið
Viking frá Stav-
anger en þetta
staðfesti félagið á
heimasíðu sinni í
gær.
Axel skrifaði
undir lánssamn-
ing við norska liðið, sem gildir út
leiktíðina, en hann verður 21 árs
gamall í janúar á næsta ári. Axel
skrifaði hins vegar undir fleiri papp-
íra því hann framlengdi einnig samn-
ing sinn við Reading og er hann nú
samningsbundinn félaginu til ársins
2020. Virðist Íslendingurinn því vera
inni í myndinni hjá Reading á næstu
árum. Landsliðsmaðurinn Jón Daði
Böðvarsson er einnig á mála hjá
Reading sem leikur í ensku b-deild-
inni en liðið hefur ekki byrjað tíma-
bilið ýkja vel.
Viking leikur í b-deildinni norsku
en er í harðri baráttu um að komast
upp í efstu deild. Liðið er í 3. sæti
með 37 stig; stigi á eftir Mjöndalen
og fimm á eftir Álasundi.
Axel er uppalinn hjá Aftureldingu
í Mosfellsbæ en hann gekk til liðs við
Reading árið 2016. Hann hefur ekki
ennþá spilað aðalliðsleik fyrir félagið
en hann var meðal annars lánaður til
Torquay United á síðustu leiktíð.
Axel hefur verið fastamaður í
yngri landsliðum Íslands og á að
baki níu landsleiki með U21 árs
landsliðinu þar sem hann hefur skor-
að tvö mörk. sport@mbl.is
Axel lánaður
til Noregs
Axel Óskar
Andrésson