Morgunblaðið - 16.08.2018, Side 3
Breiðablik, efsta lið úrvalsdeildar karla í
knattspyrnu, tekur á móti fyrstudeild-
arliði Víkings frá Ólafsvík í kvöld í und-
anúrslitum Mjólkurbikarsins. Sigurliðið
fer í úrslitaleik á Laugardalsvelli eftir
mánuð.
Á meðan Ágúst Gylfason og Blikar
hans hafa verið á siglingu og unnið fimm
síðustu leiki sína hafa Ólafsvíkingar „hik-
stað“ að undanförnu í toppbaráttu 1.
deildarinnar – gert tvö jafntefli í röð
gegn liðum í fallbaráttu. Breiðablik hefur
slegið út Íslandsmeistara Vals, KR og Leikni R. á leið sinn í
undanúrslitin, en Víkingur R. er eina úrvalsdeildarliðið sem
Ejub Purisevic og hans menn hafa unnið. Þeir slógu einnig
út Fram úr 1. deild auk liða úr 3. og 4. deild. sindris@mbl.is
Greið leið fyrir Blika?
Ágúst Þór
Gylfason
Morgunblaðið/Eggert
Laugardalshöll.
Morgunblaðið/Eva Björk
Handbolti Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson í Laugardalshöll.
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur
leik á Indy Women-mótinu í Indiana-
polis í dag á LPGA-mótaröðinni. Ólafía
náði sínum besta árangri til þessa á
þessu móti í fyrra og hafnaði þá í 4.
sæti. Birgir Leifur Hafþórsson mun
einnig keppa á sterku móti en hann
verður í Svíþjóð á Nordic Masters á
Evrópumótaröðinni. Þá mun Axel
Bóasson keppa á móti á Áskorenda-
mótaröð Evrópu á Norður-Írlandi. Þre-
menningarnir hafa ekki átt sérstak-
lega gott tímabil í atvinnumennsku
sem af er árinu en nú er sjálfstraustið
ef til vill annað og meira eftir frábæra
spilamennsku á EM í liðakeppni í síð-
ustu viku.
Guðrún Brá
Björgvinsdóttir og
Berglind Björns-
dóttir hófu leik á
LET Acess-
mótaröðinni í gær
en mótið fer fram í
Frakklandi. Guð-
rún lék vel og var á
höggi undir pari
en hún notaði 70 högg á hringnum.
Berglind var á 75 höggum og þarf
væntanlega að leika undir pari í dag til
að eiga möguleika á því að komast
áfram eftir tvo hringi.
Breiðablik hefur samið við banda-
ríska bakvörðinn Kelly Faris um að
leika með liðinu í Dominos-deildinni
næsta vetur. Faris, sem er 27 ára göm-
ul og 180 sentimetrar á hæð, lék í fjög-
ur ár í ameríska háskólaboltanum og
varð tvisvar sinnum meistari. Kelly var
ellefta í nýliðavali WNBLA og lék 24
leiki með Connecticut Suns. Hefur hún
einnig leikið í efstu deildum í Ung-
verjalandi, Ástralíu og Ísrael. Hún varð
heimsmeistari með U18 ára landsliði
Bandaríkjanna árið 2008. Þjálfarinn
Margrét Sturlaugsdóttir segir leið-
togahlutverk bíða Faris í Smáranum:
„Kelly Faris er reynd og kemur úr
toppprógrammi frá Geno Auriemma úr
UConn-háskólanum. Búin að spila víða
um heim eftir útskrift og daðraði við
WNBA nokkur tímabil. Hún er vinnu-
þjarkur og mun koma inn með reynslu
og vinnusemi til Blikastúlkna. Ég
treysti á að hún stjórni hraða bæði á
æfingum og í leikjum.“
Daði Ólafsson og Hákon Ingi Jóns-
son hafa skrifað undir nýjan samning
við knattspyrnudeild Fylkis en þetta
kemur fram í fréttatilkynningu. Daði,
sem er 24 ára gamall bakvörður, er
uppalinn í Fylki og hefur spilað 58 leiki
fyrir félagið og skorað fjögur mörk.
Samningur Daða gild-
ir út tímabilið 2020.
Hákon, sem er 23
ára gamall sókn-
armaður, á 90
leiki í deild og
bikar fyrir Fylki
og hefur skor-
að í þeim 24
mörk. Samn-
ingur Hákons
gildir út
tímabilið
2021.
Eitt
ogannað
r í handknattleik eru nú í full-
þeir fara fram í Jakarta í
gærmorgun mættu lærisvein-
urðssonar í Japan landsliði
B-riðli keppninnar en Japan
an 38:15-sigur. Þetta var fyrsti
na á mótinu og eru þeir í öðru
með 2 stig en Japanar mæta
u í úrslitaleik um efsta sæti rið-
úst.
ærisveinar Arons Kristjáns-
in 32:25-sigur gegn Indlandi í
ús stiga í D-riðlinum eftir
ir Taívan í lokaleik sínum í
rein dugar jafntefli til þess að
. bjarnih@mbl.is
ar í Asíu
Bikarmeistarar karla í körfuknattleik hafa
bætt við sig króatískum bakverði, Dino
Butorac, að nafni og mun hann leika með
Tindastóli í Dominos-deildinni næsta vetur.
Butorac er 28 ára gamall og 193 cm á hæð.
Hann býr að ágætri reynslu í Evrópu og
hefur leikið í Þýskalandi og Svíþjóð fyrir ut-
an heimalandið. Staðarmiðillinn Feykir.is
greindi frá þessu í gær. Skagfirðingar hafa
bætt við sig Danero Thomas sem kom frá
ÍR, Brynjari Þór Björnssyni sem kom frá
KR og Urald King sem kom frá Val. Liðið
missti hins vegar Sigtrygg Arnar Björnsson til Grindavíkur og
Björgvin Hafþór Ríkharðsson til Skallagríms. Þar sem Buto-
rac, Thomas og Brynjar eru allir góðar skyttur verður vænt-
anlega næg ógnun fyrir utan 3-stiga línuna.
Króati til Tindastóls
Brynjar Þór
Björnsson
Fótbolti karla:
Síðasta tap íslenska karlalandsliðsins á heimavelli í keppnisleik kom gegn
Slóveníu hinn 7. júní 2013. Síðan þá hefur liðið leikið 12 leiki án þess að tapa.
Af þeim hefur það unnið tíu leiki.
7. júní 2013, undankeppni HM 2014 – Ísland – Slóvenía 2:4
10. september 2013, undankeppni HM 2014 – Ísland – Albanía 2:1
11. október 2013, undankeppni HM 2014 – Ísland – Kýpur 2:0
9. september 2014, undankeppni EM 2016 – Ísland – Tyrkland 3:0
13. október 2014, undankeppni EM 2016 – Ísland – Holland 2:0
12. júní 2015, undankeppni EM 2016 – Ísland – Tékkland 2:1
6. september 2015, undankeppni EM 2016 – Ísland – Kasakstan 0:0
10. október 2015, undankeppni EM 2016 – Ísland – Lettland 2:2
6. október 2016, undankeppni HM 2018 – Ísland – Finnland 3:2
9. október 2016, undankeppni HM 2018 - Ísland – Tyrkland 2:0
11. júní 2017, undankeppni HM 2018 – Ísland – Króatía 1:0
5. september 2017, undankeppni HM 2018 – Ísland - Úkraína 2:0
9. október 2017, undankeppni HM 2018 – Ísland – Kosóvó 2:0
Handbolti karla:
Síðasta tap íslenska karlalandsliðsins í handbolta í keppnisleik á heima-
velli kom 17. júní 2006 á móti Svíþjóð í undankeppni HM 2007. Síðan þá
hefur liðið leikið 21 keppnisleik í röð á heimavelli án þess að tapa.
17. júní 2006, undankeppni HM 2007 – Ísland – Svíþjóð 25:26
15. júní 2008, undankeppni HM 2009 – Ísland – Makedónía 30:24
29. október 2008, undankeppni EM 2010 – Ísland – Belgía 40:21
22. mars 2009, undankeppni EM 2010 – Ísland – Eistland 38:24
14. júní 2009, undankeppni EM 2010 – Ísland – Noregur 34:34
17. júní 2009, undankeppni EM 2010 – Ísland – Makedónía 34:26
27. október 2010, undankeppni EM 2012 – Ísland – Lettland 28:26
9. mars 2011, undankeppni EM 2012 – Ísland – Þýskaland 36:31
12. júní 2011, undankeppni EM 2012 – Ísland – Ausutrríki 44:29
10. júní 2012, undankeppni HM 2013 – Ísland – Holland 41:27
31. október 2012, undankeppni EM 2014 – Ísland – Hvíta-Rússland 36:28
7. apríl 2013, undankeppni EM 2014 – Ísland – Slóvenía 35:34
1. júní 2013, undankeppni EM 2014 – Ísland – Rúmenía 37:27
15. júní 2014, undankeppni HM 2015 Ísland – Bosnía 29:29
29. október 2014, undankeppni EM 2016 Ísland – Ísrael 36:19
29. apríl 2015, undankeppni EM 2016 Ísland – Serbía 38:22
14. júní 2015, undankeppni EM 2016 Ísland – Svartfjallaland 38:22
12. júní 2016, undankeppni HM 2017 Ísland – Portúgal 26:23
2. nóvember 2016, undankeppni EM 2018 Ísland – Tékkland 25:24
7. maí 2017, undankeppni EM 2018 Ísland – Makedónía 30:29
18. júní 2017, undankeppni EM 2018 Ísland – Úkraína 34:26
13. júní 2018, undankeppni HM 2019 Ísland – Litháen 34:31
Körfubolti karla:
Síðustu tíu keppnisleikir hjá körfuboltalandsliði karla á heimavelli. Sjö
sigrar og aðeins þrjú töp. Aðeins Búlgaría og Bosnía hafa komið í höllina og
unnið.
13. ágúst 2013, undankeppni EM 2015 - Ísland – Búlgaría 79:81
16. ágúst 2013, undankeppni EM 2015 – Ísland – Rúmenía 77:71
10. ágúst 2014, undankeppni EM 2015 – Ísland – Bretland 83:70
27. ágúst 2014, undankeppni EM 2015 – Ísland – Bosnía 70:78
31. ágúst 2016, undankeppni EM 2017 – Ísland – Sviss 88:72
14. september 2016, undankeppni EM 2017, Ísland – Kýpur 84:62
17. september 2016, undankeppni EM 2017, Ísland – Belgía 74:68
27. nóvember 2017, undankeppni HM 2019, Ísland – Búlgaría 74:77
23. febrúar 2018, undankeppni HM 2019, Ísland – Finnland 81:76
25. febrúar 2018, undankeppni HM 2019, Ísland – Tékkland 76:75
Þetta gerir 43 leiki samanlagt og aðeins þrjú töp.
Landsliðin afar farsæl á heimavelli