Morgunblaðið - 16.08.2018, Qupperneq 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2018
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Í blaðinu verður kynnt fullt
af þeim möguleikum sem
í boði eru fyrir þá sem
stefna á heilsuátak og
bættan lífsstíl.
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Fyrir þriðjudaginn 21. ágúst
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 24. ágúst 2018
Heilsa& lífsstíll
SÉRBLAÐ
Landslið Íslands í blaki
karla og kvenna feta nýjar brautir
um þessar mundir. Í fyrsta sinn
taka þau þátt í undankeppni Evr-
ópumóts landsliða. Liðin riðu á
vaðið í gær. Kvennaliðið mætti
belgíska landsliðinu og karlaliðið
sótti landslið Slóvaka heim.
Fram til þessa hafa íslensku
landsliðin ekki tekið þátt í undan-
keppninni heldur látið nægja að
vera með í sérstökum Evr-
ópumótum smærri eða veikari
þjóða í þessari bráðskemmtilegu
íþrótt. Forsvarsmenn blak-
íþróttarinnar hér á landi töldu
hins vegar að tími væri kominn til
að venda kvæði í kross og hella
sér út í undankeppnina þótt ljóst
væri að við ramman reip yrði að
draga inni á leikvellinum. Enginn
verður smiður í fyrsta sinn.
Sú ákvörðun forsvarsmanna
blakíþróttarinnar hér á landi að
láta slag standa, stinga sér út í
djúpu laugina, verður án efa
íþróttinni til góða hér á landi og
mun styrkja landsliðin þegar til
lengri tíma verður lítið. Þeir gera
sér grein fyrir því að á brattann
verður að sækja og einhverjir
leikjanna erfiðir með tilheyrandi
stórtapi. Hins vegar er einnig
ljóst að til þess að taka fram-
förum og auka metnað leik-
manna er nauðsynlegt að takast
á við sterkari og erfiðari and-
stæðinga inni á milli og klífa þrí-
tugan hamarinn.
Tvo næstu sunnudaga verða
blaklandsliðin í eldlínunni í
undankeppni EM þegar þau leika
heimaleiki í íþróttahúsinu í Digra-
nesi á móti Slóveníu, Moldóvu,
Ísrael og Svartfjallalandi.
Vonandi er þetta aðeins upp-
hafið á lengri leið blakfólks hér á
landi þannig að hér eftir verði það
með í undankeppni stórmóta eins
og önnur landslið Íslands í hóp-
íþróttum.
BAKVÖRÐUR
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
FÓTBOLTI
Guðjón Þór Ólafsson
gudjon@mbl.is
Í kvöld klukkan 19.00 á Origi-
vellinum eygir Valur möguleikann
á því að komast áfram í undan-
keppni Evrópudeildarinnar í knatt-
spyrnu er liðið mætir FC Sheriff
Tiraspol frá Moldóvu. Þetta er
annar leikurinn í einvíginu, en Val-
ur tapaði fyrri leiknum í Moldóvu
1:0. Ljóst er að Valsmenn þurfa að
nálgast þennan leik með öðrum
hætti en þeir gerðu úti. Í Moldóvu
lágu þeir aftarlega á vellinum með
það fyrir augum að halda marki
sínu hreinu, sem gekk upp þangað
til á 85. mínútu leiksins þegar FC
Sheriff skoraði eina mark leiksins.
Nú þurfa þeir hins vegar að koma
út úr skotgröfunum og sækja sig-
ur.
Í viðtali við Morgunblaðið sagði
Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði
Vals, að allir leikmenn Vals væru
klárir fyrir leikinn. Það á einnig
við um Bjarna Ólaf Eiríksson, sem
var hvíldur í leiknum á móti
Grindavík vegna smávægilegra
meiðsla. Haukur sagði ljóst að
Valsmenn þyrftu að skora mark til
þess að komast áfram í einvíginu.
Hann lagði þó áherslu á að þeir
þyrftu að halda marki sínu hreinu
en ef FC Sheriff skorar í leiknum
þarf Valur að skora minnst þrjú
mörk til þess að komast áfram:
„Við þurfum líka að spila mjög
góðan varnarleik. Þetta er gott lið
sem við erum að mæta. Við þurfum
að vera agaðir til baka. Það munu
koma augnablik í leiknum þar sem
það liggur á okkur en síðan verð-
um við að vera klókir þegar við er-
um með boltann og fara í ákveðnar
opnanir sem við sjáum hjá þeim.
Þannig að við verðum nýta boltann
þegar við erum með hann og nýta
færin þegar þau koma.“
Hafa mikil gæði í liðinu
Hinn almenni knattspyrnu-
áhugamaður á Íslandi veit að öllum
líkindum ekki mikið um andstæð-
inga Vals. FC Sheriff er eins og
áður segir frá Moldóvu og hefur
haft tögl og hagldir í deildinni þar-
lendis í næstum 20 ár. Liðið hefur
einnig komist þrisvar sinnum í
riðlakeppni Evrópudeildarinnar
undanfarin ár, þar sem það hefur
náð ágætis úrslitum. Spurður út í
FC Sheriff og styrkleika þess
sagði Haukur að þetta væri öflugt
lið með góða leikmenn:
„Þetta er mjög sterkt lið. Þeir
eru með einstaklingsgæði í liðinu.
Kantmennirnir eru öflugir og þeir
eru með leikstjórnanda á miðjunni
sem er góður. Kröftugan senter.
Þetta er bara mjög sterkt lið og er
fljótt að refsa okkur ef við gerum
klaufaleg mistök.“
Mikilvægt að vera skynsamir
Þegar komið er á þetta sig
keppninnar má oft lítið út af bera.
Það er stutt á milli feigs og ófeigs
og það lið sem gerir færri mistök
fer gjarnan áfram. Haukur sagði
að Valsmenn myndu því nálgast
leikinn af skynsemi:
„Þegar maður er kominn svona
langt eru liðin fljót að refsa manni.
Við verðum að vera vakandi allan
leikinn, bæði þegar við erum án
boltans en ekki síður þegar við er-
um með hann. Við þurfum að vera
vel staðsettir ef við missum bolt-
ann og megum alls ekki missa bolt-
ann á klaufalegum stöðum. Við
þurfum því að vera skynsamir í
sóknarleiknum. Við héldum út í 85
mínútur úti og við þurfum bara að
skora eitt eins og staðan er núna
og við getum alveg eins skorað það
á 90. mínútu. Þannig við ætlum
ekki að vaða út í neitt rugl, heldur
vera agaðir varnarlega og nýta
færin þegar þau koma.“
„Ætlum ekki að vaða út í rugl“
Síðari leikur Vals og Sheriff á Hlíðarenda í Evrópudeildinni í kvöld
Morgunblaðið/Eggert
Fyrirliðinn Haukur Páll Sigurðsson á sínum stað á miðjunni hjá Val í Evrópuleik á Hlíðarenda
Garðbæingar og Hafnfirðingar tók-
ust á í undanúrslitum bikarkeppni
karla í knattspyrnu, Mjólkurbik-
arnum, á gervigrasinu í Garðabæ í
gærkvöldi. Hafði Stjarnan betur og
leikur til úrslita í keppninni. Hér
eigast við FH-ingurinn Gomes og
Guðjón Baldvinsson úr Stjörnunni
en Guðjón kom Garðbæingum í góða
stöðu með marki í fyrri hálfleik.
Morgunblaðið/Valli
Stjarnan í úrslitaleikinn