Morgunblaðið - 18.08.2018, Side 2
Í LAUGARDAL
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Gleðin var ósvikin á Laugardalsvelli
í gærkvöld þegar kvennalið Breiða-
bliks fagnaði bikarmeistaratitlinum í
knattspyrnu eftir sanngjarnan 2:1
sigur á Stjörnunni í úrslitaleik
þeirra. Þetta var 12. bikarmeistara-
titill Blika og er félagið nú aðeins
einum frá því að jafna Val yfir flesta
sigra í þessari keppni í kvennaflokki.
Breiðablik var í augum margra
svolítið spurningamerki fyrir sum-
arið en hefur blómstrað á svo til öll-
um sviðum. Oft er minnst á hvað lið-
ið missti marga sterka byrjunarliðs-
menn og landsliðskonur frá því í
fyrra og ákvað þess í stað að gefa
yngri og óreyndari leikmönnum
traustið til þess að sanna sig. Það
hefur svo sannarlega skilað sínu og
þjálfarinn Þorsteinn Halldórsson
hitti naglann þráðbeint á höfuðið í
samtali við Morgunblaðið í fögnuð-
inum eftir leik, nýbaðaður upp úr
mjólk – enda kallast keppnin jú
Mjólkurbikarinn í ár, að fótbolti
snýst um getu en ekki aldur.
Það fangar nákvæmlega það sem
hefur verið að gerast hjá Blikum í
sumar og sýndi sig enn á ný í leikn-
um í gær. Blikar urðu bikarmeist-
arar síðast fyrir tveimur árum, en
aðeins þrír leikmenn í byrjunarliðinu
í kvöld byrjuðu einnig þann leik.
Stór hluti leikmanna var því að spila
í fyrsta sinn á þessum vettvangi sem
oft er talinn stærsti leikur hvers
keppnistímabils, en það var ekki að
sjá á þeim. Allar héldu skipulagi upp
á tíu og sýndu engin merki um
stress eða yfirspennu, enda búnar að
finna traust frá þjálfurunum í allt
sumar og hafa sannarlega gefið til
baka.
Endanleg kaflaskil í Garðabæ?
Leikurinn í gær var fjörugur, sér-
staklega í fyrri hálfleik, og Stjarnan
klúðraði dauðafæri strax í upphafi.
Eftir að Blikar komust yfir á 19.
mínútu tóku þær leikinn svolítið í
sínar hendur og með 2:0 forskot í
hálfleik var staðan þægileg. Blikar
lokuðu öllum svæðum eftir hlé á
meðan Stjarnan leitaði að leið inn í
leikinn á ný en ég hugsa að það hafi
ekki farið neitt sérstaklega um
stuðningsmenn Blika í stúkunni. Svo
traust var frammistaðan.
Ekki jukust möguleikar Stjörn-
unnar á því að vinna sig aftur inn í
leikinn þegar Harpa Þorsteinsdóttir
meiddist alvarlega um miðjan síðari
hálfleikinn. Hún fékk þá slink á hnéð
og var borin sárkvalin af velli sem
var afar sárt að sjá. Án hennar var
erfitt fyrir Stjörnuna að byggja upp
hættulegar sóknir, en vonandi eru
meiðsli hennar ekki eins alvarleg og
þau sannarlega litu út fyrir að vera.
Það má velta því upp hvort nú séu
komin kaflaskil hjá Stjörnunni. Ekki
eru mörg ár síðan Garðbæingar
unnu sína fyrstu titla og síðan þá
hefur liðið sópað þeim að sér. Stjarn-
an hefur nú tapað tveimur bikarúr-
slitaleikjum í röð og er einnig úr leik
í baráttunni um Íslandsmeistara-
titilinn annað árið í röð. Á meðan er
sólin að rísa á ný hjá Breiðabliki og
það verður gaman að fylgjast með
endanlegri uppskeru liðsins í haust.
Sólin skín í Smáranum
Breiðablik vann Stjörnuna í þriðja sinn í sumar og er bikarmeistari í 12. sinn
Hárrétt tekið á mannabreytingum í Kópavogi og leikmenn endurgjalda traustið
Laugardalsvöllur, Mjólkurbikar
kvenna, úrslit, föstudag 17. ágúst
2018.
Skilyrði: Tólf stiga hiti, þurrt og nán-
ast logn. Völlurinn flottur.
Skot: Stjarnan 8 (5) – Breiðabl. 8 (7).
Horn: Stjarnan 0 – Breiðablik 2.
Stjarnan: (4-5-1) Mark: Berglind
Hrund Jónasdóttir. Vörn: María Eva
Eyjólfsdóttir, Megan Dunnigan, Anna
María Baldursdóttir, Sigrún Ella Ein-
arsdóttir. Miðja: Telma Hjaltalín, Ás-
gerður S. Baldursdóttir (Ana Victoria
Cate 88), Katrín Ásbjörnsdóttir (Bryn-
dís Björnsdóttir 84), Lára Kristín
Pedersen, Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir.
Sókn: Harpa Þorsteinsdóttir (Guð-
munda Brynja Óladóttir 67).
Breiðablik: (4-3-3) Mark: Sonný
Lára Þráinsdóttir. Vörn: Ásta Eir
Árnadóttir, Guðrún Arnardóttir, Heið-
dís Lillýardóttir, Kristín Dís Árnadóttir.
Miðja: Hildur Antonsdóttir, Fjolla
Shala, Alexandra Jóhannsdóttir.
Sókn: Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
(Áslaug M. Gunnlaugsdóttir 77), Berg-
lind Björg Þorvaldsdóttir, Agla María
Albertsdóttir.
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson.
Áhorfendur: 1.808.
Stjarnan – Breiðablik 1:2 0:1 Berglind Björg Þorvalds-dóttir 19. með skoti úr teign-
um eftir að Agla María Albertsdóttir
nýtti sér mistök í vörn Stjörnunnar.
0:2 Guðrún Arnardóttir 36.með skalla úr teignum eftir
aukaspyrnu Öglu Maríu.
1:2 Telma Hjaltalín Þrastar-dóttir 87. með vippu af löngu
færi, yfir Sonný í markinu og þaðan í
stöng og inn.
I Gul spjöld:Guðrún (Breiðabliki) 26.
(brot), Dunnigan (Stjörnunni) 36.
(brot).
I Rauð spjöld: Engin.
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2018
Á AKUREYRI
Baldvin Kári Magnússon
sport@mbl.is
Þór/KA gerði FH-ingum afar erfitt
fyrir í botnbaráttunni þegar liðin
mættust í gær. Leikurinn endaði með
9:1 stórsigri Þór/KA. Akureyrarliðið
byrjaði rólega á meðan FH-ingar lágu
til baka, en lið Þór/KA er nýkomið frá
Belfast þar sem það lék í Meistara-
deild Evrópu. Þrátt fyrir rólega byrj-
un sáu tvö mörk frá Andreu Mist
Pálsdóttir til þess að heimakonur
voru 2:0 yfir í hálfleik. Í seinni hálfleik
hélt liðið svo sýningu. Þar voru Mar-
grét Árnadóttir og Stephany Mayor
fremstar í flokki í frábæru Þór/KA-
liði. Margrét kom inn á á 56. mínútu
og lagði upp tvö mörk ásamt því að
skora önnur tvö.
Stephany Mayor sýndi gæði sín í
gær og gerði þrennu í seinni hálfleik.
Þegar Stephany er í stuði eru afar fáir
leikmenn sem ráða við hana. Sandra
Jessen bætti einnig við marki. FH-
ingar náðu inn sárabótarmarki en það
skipti litlu. Spilamennskan sem FH
sýndi í seinni hálfleik á ekki að sjást í
efstu deild. Leikur liðsins gjörsam-
lega hrundi og leikmenn Þór/KA
þurftu á köflum ekki að hafa fyrir því
að komast í færi. Lið FH er fjórum
stigum á eftir liðinu í 10. sæti og með
töluvert lakari markatölu þegar fjórir
leikir eru eftir. Næstu leikir liðsins
eru gegn Breiðabliki, Val og Stjörn-
unni. Útlitið er því afar svart í Kapla-
krika. Þór/KA kemur sér hins vegar
tímabundið á topp deildarinnar og
sendir skýr skilaboð í titilbaráttunni.
Markasúpa í
Eyjafirðinum
Engin þreytumerki hjá Þór/KA
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ógnandi Stephany Mayor og Margrét Árnadóttir fóru á kostum.
1:0 Andrea Mist Pálsdóttir 18.Tekur boltann á lofti og skor-
ar.
2:0 Andrea Mist Pálsdóttir 39.Snýr á FH-ing og skýtur í
fjærhonið.
3:0 Lára Einarsdóttir 48. Skor-ar með skalla eftir horn-
spyrnu.
4:0 Stephany Mayor 58. Keyrirupp völlinn og skorar.
5:0 Sandra Jessen 60. Sleppur ígegn eftir sendingu Mar-
grétar og skorar.
6:0 Margrét Árnadóttir 61.Með skoti úr teignum eftir
samspil við Mayor.
7:0 Stephany Mayor 65. Tókboltann á lofti eftir sendingu
frá Margréti.
8:0 Margrét Árnadóttir 71.Aftur eftir samspil við
Stephany Mayor.
9:0 Stephany Mayor 87. Skor-aði eftir langa sendingu frá
Ágústu.
9:1 Helena Hálfdánardóttir 89.Skoraði með skoti skoti af
markteig.
I Gul spjöld:Helena Ósk (FH) 53. (brot).
MMM
Stephany Mayor (Þór/KA)
Margrét Árnadóttir (Þór/KA)
MM
Sandra María Jessen (Þór/KA)
M
Andrea Mist Pálsdóttir (Þór/KA)
Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA)
Þórsvöllur, Pepsi-deild kvenna, úrslit,
föstudag 17. ágúst 2018.
Skilyrði:
Skot: Þór/KA 13 (11) – FH 6 (1).
Horn: Þór/KA 9 – FH 2.
Þór/KA: (3-4-3) Mark: Stephanie
Bukovec. Vörn: Arna Sif Ásgríms-
dóttir (Ágústa Kristinsdóttir 25), Lillý
Rut Hlynsdóttir (Rut Matthíasdóttir
67), Bianca Sierra. Miðja: Hulda
Björg Hannesdóttir, Andrea Mist
Pálsdóttir, Anna Rakel Pétursdóttir,
Lára Einarsdóttir. Sókn: Hulda Ósk
Jónsdóttir (Margrét Árnadóttir 56),
Sandra María Jessen, Stephany May-
or.
FH: (4-5-1) Mark: Aníta Dögg Guð-
mundsdóttir. Vörn: Valgerður Ósk
Valsdóttir, Andrea Marý Sigurjóns-
dóttir, Melkorka K. Pétursdóttir (Birta
Stefánsdóttir 57), Megan Buck-
ingham. Miðja: Helena Ósk Hálfdán-
ardóttir, Guðný Árnadóttir, Halla Mar-
inósdóttir (Jasmín Erla Ingadóttir
59), Diljá Ýr Zomers, Eva Núra Abra-
hamsdóttir. Sókn: Birta Georgsdóttir.
Dómari: Bríet Bragadóttir – 8.
Áhorfendur: 324.
Þór/KA – FH 9:1
Mjólkurbikar kvenna
Úrslitaleikur:
Stjarnan – Breiðablik.............................. 1:2
Pepsi-deild kvenna
Þór/KA – FH ............................................ 9:1
Valur – ÍBV............................................... 0:1
Staðan:
Þór/KA 14 11 2 1 43:8 35
Breiðablik 13 11 1 1 31:8 34
Valur 14 8 2 4 32:13 26
Stjarnan 13 8 1 4 30:22 25
ÍBV 14 5 3 6 18:19 18
Selfoss 14 4 4 6 12:19 16
HK/Víkingur 13 4 1 8 15:29 13
KR 13 4 0 9 16:26 12
Grindavík 14 2 4 8 10:32 10
FH 14 2 0 12 17:48 6
2. deild kvenna
Einherji – Tindastóll.................................1:2
Álftanes – F.H.L............. úrslit bárust ekki.
Staðan:
Tindastóll 12 10 0 2 40:16 30
Augnablik 10 8 0 2 42:9 24
Grótta 12 6 2 4 40:34 20
Völsungur 10 5 1 4 14:14 16
Álftanes 10 4 3 3 28:18 15
Fj./Hött/Leikn. 10 4 2 4 25:27 14
Einherji 11 2 0 9 28:29 6
Hvíti riddarinn 11 0 0 11 3:73 0
2. deild karla
Huginn – Völsungur.................................2:1
Nedo Eres 89., Ivan Eres 90. – Travis
Nicklaw 60.
Tindastóll – Kári...................................... 1:2
Jónas Aron Ólafsson 51. – Alexander Már
Þorláksson 30., Andri Júlíusson 40.
Staðan:
Kári 16 10 1 5 37:34 31
Vestri 15 8 4 3 30:11 28
Völsungur 16 8 4 4 30:23 28
Afturelding 15 7 6 2 38:20 27
Grótta 15 8 3 4 34:20 27
Fjarðabyggð 16 7 5 4 25:22 26
Þróttur V. 16 6 5 5 29:25 23
Víðir 15 4 4 7 19:22 16
Leiknir F. 15 3 6 6 18:25 15
Höttur 15 3 5 7 22:33 14
Tindastóll 16 3 2 11 21:42 11
Huginn 16 2 3 11 14:40 9
4. deild karla A
Snæfell – Berserkir.................................. 1:1
4. deild karla C
Árborg – Álftanes..................................... 0:1
Holland
Groningen – Willem II ............................ 0:1
Kristófer Ingi Kristinsson sat á vara-
mannabekk Willem II.
Danmörk
SönderjyskE – Vendsyssel .................... 2:1
Eggert Gunnþór Jónsson lék allan leik-
inn fyrir SönderjyskE.
Staðan:
Köbenhavn 5 4 0 1 12:3 12
AaB 5 4 0 1 5:5 12
Midtjylland 5 3 1 1 9:4 10
Bröndby 5 3 1 1 8:5 10
AGF 5 1 4 0 3:2 7
SonderjyskE 6 2 1 3 6:6 7
Vendsyssel 6 2 1 3 8:11 7
Vejle 5 1 3 1 7:7 6
Randers 5 1 3 1 5:6 6
Nordsjælland 5 1 2 2 5:5 5
Esbjerg 5 1 2 2 8:10 5
Horsens 5 1 2 2 5:8 5
Hobro 5 1 1 3 7:12 4
OB 5 0 1 4 6:10 1
Svíþjóð
B-deild:
Falkenberg – Halmstad ...........................1:0
Höskuldur Gunnlaugsson kom inn á eftir
68 mínútur hjá Halmstad en Tryggvi Hrafn
Haraldsson sat á varamannabekknum.
Tyrkland
B-deild:
Elazigspor – Boluspor ............................ 1:2
Theódór Elmar Bjarnason lék allan leik-
inn fyrir Elazigspor.
KNATTSPYRNA
EM U18 karla
Leikið í Króatíu, undanúrslit
Króatía – Ísland....................................26:30
Ísland leikur til úrslita við Svía en Króat-
ía leikur um bronsverðlaun við Dani.
HANDBOLTI
EM U16 karla
B-deild, leikið í Bosníu:
Rúmenía-Ísland.....................................59:73
Ísland leikur um 5. sætið í deildinni.
EM U16 kvenna
A-riðill b-deildar:
Leikið í Svartfjallalandi:
Svartfjallaland-Ísland...........................58:63
KÖRFUBOLTI