Morgunblaðið - 23.08.2018, Side 2

Morgunblaðið - 23.08.2018, Side 2
RYDER Kristján Jónsson kris@mbl.is Keppni Evrópu og Bandaríkjanna um Ryder-bikarinn í golfi fer fram eftir rúman mánuð. Kylfingarnir hafa ekki langan tíma til viðbótar til að vinna sig inn í liðin, eða um tvær vikur. Tólf kylfingar skipa hvort lið og í báðum tilfellum geta átta unnið sig inn í liðin með árangri sínum á stærstu móta- röðunum. Fyrirliðar liðanna velja svo fjóra leikmenn til viðbótar hvor um sig. Tiger Woods hefur með spila- mennsku sinni síðustu vikurnar tekist að blanda sér í baráttuna um að kom- ast í bandaríska liðið. Á meðan Woods var að jafna sig eftir bakaðgerðir var hann settur í liðsstjórnina hjá liði Bandaríkjanna. Jim Furyk, fyrirliði Bandaríkjanna, hefur látið hafa eftir sér að Woods muni ekki gegna báðum hlutverkum. Ef hann kemst í liðið sem leikmaður verður annar fenginn í teymi Furyks. Sem stendur er Woods í 11. sæti á Ryder-listanum hjá Bandaríkjunum. Í ljósi frammistöðu hans á síðustu tveimur risamótum ársins, Opna breska og PGA meist- aramótinu, verður að teljast afar lík- legt að Woods verði einn fjögurra sem Furyk velur í liðið. Önnur bandarísk goðsögn daðrar við að komast í liðið og það er hinn 48 ára gamli Phil Mickelson. Hann er í 10. sæti listans og vann nokkuð sterkt mót á fyrri hluta ársins. Líklegt er að Furyk vilji nýta krafta hans í ljósi þess að Mickelson hefur spilað vel í ár. Fari svo setur Mickelson met, en hann og Sir Nick Faldo hafa oftast keppt í Ryder-bikarnum, eða ellefu sinnum. Mickelson yrði hins vegar ekki sá elsti í sögu keppninnar, en Raymond Floyd setti met þegar hann keppti 51 árs fyrir Bandaríkin árið 1993. Afar vel mannað lið Fleiri reyndir kylfingar eru fyrir utan topp átta hjá Bandaríkjunum og þar má til dæmis nefna Matt Kuchar, sem er í 13. sæti listans. Næstur því að komast inn sem stendur er Bryson DeChambeau. Brooks Koepka er efst- ur á listanum hjá Bandaríkjamönnum og kemur ekki á óvart eftir að hafa sigrað á tveimur risamótum af fjórum í sumar; Opna bandaríska og PGA meistaramótinu. Einhver hefði sagt að valinn maður væri í hverju rúmi í bandaríska liðinu. Dustin Johnson og Justin Thomas skipa ásamt Koepka þrjú efstu sæti heimslistans. Thomas verður nýliði í Rydernum. Patrick Reed sigraði á Masters auk þess sem holukeppnin á vel við hann. Jordan Spieth hefur lag á því að spila vel þegar mest er undir, en segja má að lifnað hafi yfir banda- ríska liðinu þegar þeir Reed og Spieth komust í liðið fyrir fjórum árum. Rickie Fowler er hæfileikaríkur en hann og Bubba Watson státa hins vegar ekki af góðum árangri í leikjum AFP Hress Gamalt bros tók sig upp hjá Tiger Woods í sumar. Tiger Woods nærri því að komast í liðið  Stórstjörnur utan þeirra átta efstu á listum Ryder-liðanna  Ræðst á næstu tveimur vikum hverjir vinna sig inn í liðin  Mickelson gæti sett met 2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018 KNATTSPYRNA Inkasso-deild kvenna ÍR - Haukar................................................2:0 Shaneka Gordon 11., Hanna M. Barker 56. Staðan: Fylkir 13 12 0 1 44:5 36 Keflavík 14 11 1 2 41:13 34 ÍA 14 9 1 4 39:23 28 Þróttur R. 14 7 2 5 30:16 23 Haukar 15 7 1 7 29:23 22 ÍR 15 5 2 8 22:29 17 Aftureld/Fram 13 3 5 5 15:19 14 Fjölnir 14 4 0 10 18:29 12 Hamrarnir 14 3 3 8 15:33 12 Sindri 14 1 1 12 9:72 4 3. deild karla: Dalvík/Reynir – Einherji..........................1:1 Staðan: Dalvík/Reynir 15 9 4 2 25:12 31 KH 14 7 3 4 25:17 24 KFG 14 7 2 5 32:25 23 KF 14 7 1 6 22:18 22 Einherji 15 7 1 7 25:28 22 Vængir Júpíters 14 6 2 6 23:23 20 Augnablik 14 6 2 6 23:33 20 KV 14 5 4 5 23:20 19 Ægir 14 3 2 9 15:24 11 Sindri 14 3 1 10 17:30 10 4. deild karla C Kóngarnir – Afríka....................................7:2 England B-deild karla: Aston Villa – Brentford ...........................2:2  Birkir Bjarnason sat allan leikinn á vara- mannabekk Aston Villa. Blackburn – Reading ...............................2:2  Jón Daði Böðvarsson lék allan leikinn og skoraði bæði mörk Reading. Norwich City – Preston............................2:0 Sheffield Wednesday – Millwall ..............2:1 Bolton – Birmingham ...............................1:0 Stoke – Wigan............................................0:3 Staða efstu liða: Leeds 4 3 1 0 11:4 10 Middlesbro 4 3 1 0 8:2 10 Bolton 4 3 1 0 6:3 10 Brentford 4 2 2 0 10:4 8 Aston Villa 4 2 2 0 9:6 8 Swansea 4 2 2 0 5:3 8 WBA 4 2 1 1 13:7 7 Wigan 4 2 1 1 10:7 7 Blackburn 4 1 3 0 5:4 6 Nottingham F. 4 1 3 0 5:4 6 Derby 4 2 0 2 6:7 6 Meistardeild Evrópu Undankeppni, fyrri leikir: Young Boys –Dinamo Zagreb..................1:1 MOL Vidi – AEK Aþena...........................1:2 Ajax –Dynamo Kiev ..................................3:1 Noregur Bikarkeppni kvenna, 8 liða úrslit: Röa – Arna-Björnar.........................9:8 (1:1)  Svava Rós Guðmundsdóttir skoraði eina mark Röa í venjulegum leiktíma. Henni var skipt úr af í upphafi framlengingar. Lilleström – Vålerenga............................4:1  Sigríður Lára Garðarsdóttir kom inn á hjá Lilleström á 90. mínútu. Svíþjóð Bikarkeppni karla, 8 liða úrslit: Rosengård – Landskrona ........................2:0  Alfons Sampsted var í byrjunarliði Landskrona. Eskilsminne – Helsingborg.....................1:0  Andri Rúnar Bjarnason kom inn á á 65. mínútu hjá Helsingborg. Sävedalen - Halmstad ..............................0:2  Höskuldur Gunnlaugsson og Tryggvi Hrafn Haraldsson voru báðir í byrjunarliði Halmstad. Danmörk B-deild karla: Fremad Amager – Roskilde....................1:1  Frederik Schram stóð í marki Roskilde. Silkeborg – Viborg...................................2:3  Ingvar Jónsson stóð í marki Viborg. KNATTSPYRNA 1. deild karla, Inkasso-deildin: Þórsvöllur: Þór – Magni ............................18 Njarðtaksvöllurinn: Njarðvík – ÍR...........18 Ásvellir: Haukar – Fram ......................18.30 1. deild kvenna, Inkasso-deildin: Akraneshöllin: ÍA – Fylkir ........................18 Eimskipsv. : Þróttur R. – Aft./Fram ...19.15 2. deild kvenna: Húsavíkurvöllur: Völsungur – Einherji ...18 Fífan: Augnablik – Álftanes ......................18 3. deild karla: Valsvöllur: KH – Vængir Júpíters.......18.30 Fífan: Augnablik – KFG.......................20.15 4. deild karla: Europcavöllurinn: Reynir S. – Elliði ........18 Framvöllur: Úlfarnir – SR ...................18.30 Varmárvöllur: Hvíti riddarinn – Mídas....20 Hertz-völlurinn: Léttir – ÍH ................18.30 Vivaldivöllurinn: Kría – Vatnaliljur..........20 HANDKNATTLEIKUR Hafnarfjarðarmót karla: Schenker-höllin: FH – Valur.....................18 Schenker-höllin: Haukar – Selfoss ...........20 Í KVÖLD! HM 2019 Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Íslenska kvennalandsliðið í knatt- spyrnu er í þeirri frábæru stöðu að geta tryggt sér sæti á HM í fyrsta sinn laugardaginn 1. september. Miklar ljónynjur standa hins vegar í veginum; áttfaldir Evrópu-, tvöfaldir heims- og ríkjandi Ólympíumeistarar Þýska- lands. Fyrirliði þýska liðsins og ein besta knattspyrnukona heims, Dzseni- fer Marozsán, er þó ekki í leik- mannahópnum sem þjálfarinn Horst Hrubesch valdi í gær, fyrir Íslandsför. Vinni Ísland sigur í leiknum er liðið öruggt um efsta sæti 5. riðils í undan- keppni HM og þar með farseðil í loka- keppnina í Frakklandi næsta sumar. Ísland vann frækilegan 3:2-sigur á Þjóðverjum ytra í fyrrahaust. Geri lið- in jafntefli þarf Ísland að vinna Tékk- land í lokaumferð riðlakeppninnar til að enda í 1. sæti, því slá má því föstu að Þýskaland vinni Færeyjar í sínum lokaleik. Tapi Ísland gegn Þýskalandi er hugsanlegt að liðið gæti komist í HM-umspil með sigri á Tékklandi. Freyr Alexandersson valdi íslenska landsliðshópinn í byrjun vikunnar. Kollegi hans hjá Þýskalandi, Hrub- esch, fékk ákveðið forskot við val á sín- um hópi því hann kallaði leikmenn saman í æfingabúðir í bænum Harse- winkel um miðjan þennan mánuð og gat þar metið ástand þeirra. Af 22 leik- mönnum sem hann svo valdi fyrir leik- ina við Ísland og Færeyjar leika allar nema ein í þýsku 1. deildinni og sú leik- ur einnig í vetrardeild, þeirri frönsku. Hrubesch var ráðinn tímabundið til að taka við þýska liðinu eftir að Steffi Jones var rekin í mars síðastliðnum. Martina Voss-Tecklenburg, sem Ís- lendingar ættu að þekkja eftir erfiðar rimmur við Sviss síðustu ár, tekur svo við Þýskalandi eftir undankeppni HM. Hrubesch er 67 ára gamall og á langan þjálfaraferil að baki í karlaknatt- spyrnu, þar sem hann stýrði meðal annars yngri landsliðum Þýskalands og kom Þjóðverjum í úrslitaleik Ól- ympíuleikanna 2016. Á tíma sínum sem leikmaður varð Hrubesch meðal annars Evrópumeistari með Vestur- Þýskalandi árið 1980. Var hann kall- aður „skallaskrímslið“ vegna færni sinnar í að skora skallamörk. Hrubesch valdi tvo nýliða í gær, þær Nicole Rolser úr Bayern München og Maximiliane Rall úr Hof- fenheim. Í hópnum eru meðal annarra sex samherjar Söru Bjarkar Gunnars- dóttur úr silfurliði Meistaradeildar Evrópu síðasta vor, Wolfsburg. Þar ber nafn markahróksins Alexöndru Popp hæst. Hrubesch er kokhraustur varðandi möguleika Þjóðverja á að ná á HM: „Leikmennirnir eru vel meðvitaðir um það við hverju má búast frá ís- lenska liðinu og að þeir verða að gera betur en í fyrri leiknum. Við höfum verið á réttri braut eins og sást með sigri okkar á Kanada í júní, eftir að við lentum undir. Lið okkar hefur gæðin til þess að komast á HM og ég er viss um að leikmenn munu sýna þau í leiknum við Ísland,“ sagði Hrubesch eftir að hafa tilkynnt lið sitt í gær. Þýskaland er vitaskuld með afar sterkan leikmannahóp og talsvert sigurstranglegra en Ísland, en þó ekki það yfirburðalið sem réði ríkjum í Evr- ópu svo lengi. Í hópinn núna vantar svo eins og fyrr segir Dzsenifer Marozsán, miðjumann Lyon og konuna sem meðal annars tryggði Þýskalandi Ólympíu- meistaratitilinn 2016, auk Hasret Kay- ikci úr Freiburg, Kathrin Hendrich og Simone Laudehr úr Bayern München, og Lenu Petermann úr Turbine Pots- dam. Þær fjórar síðastnefndu eru meiddar en Marozsán er að jafna sig eftir að hafa greinst með blóðtappa í lungum í síðasta mánuði. Leikmanna- hóp Þýskalands í heild má finna á mbl.is/sport/fotbolti. Lungu stöðva Marozsán  „Skallaskrímslið“ hefur valið leikmannahóp Þýskalands fyrir „úrslitaleikinn“ við Ísland á Laugardalsvelli  Sex samherjar Söru Bjarkar  Fyrirliðinn ekki með AFP Kiev Sara Björk Gunnarsdóttir og Dzsenifer Marozsán í úrslitaleik Meistara- deildarinnar í vor. Sara hefur náð sér af meiðslum en Marozsán er úr leik.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.