Morgunblaðið - 23.08.2018, Side 3

Morgunblaðið - 23.08.2018, Side 3
sínum í keppninni til þessa. Webb Simpson er í 8. sæti hjá Bandaríkja- mönnum, en hann sigraði á Players í vor og hefur rétt sinn feril af á árinu. Hversu margir Spánverjar? Ítalinn Francesco Molinari toppar listann hjá evrópska liðinu eftir sigur- inn á Opna breska. Ólympíu- meistarinn Justin Rose er næstur en sá þriðji er ekki þekktasta nafnið í íþróttinni: Tyrrell Hatton. Þessi 26 ára gamli Englendingur hefur sýnt styrk sinn í sumar og var á topp tíu bæði á Opna bandaríska og PGA meistaramótinu. Listinn yfir þá átta sem vinna sig inn í lið Evrópu er settur saman úr fjórum efstu á peningalista Evr- ópumótaraðarinnar auk fjögurra efstu Evrópubúanna á heimslistanum. Í evrópska liðinu eru tveir kylfingar sem verið hafa á mikilli uppleið frá því síðast var keppt um bikarinn, en það eru Spánverjinn Jon Rahm og Eng- lendingurinn Tommy Fleetwood. Verða margir spenntir að sjá þá í keppninni um Ryderinn, en evrópska liðið hefur afskaplega góða reynslu af Spánverjum. Annar Spánverji er í 9. sæti listans, en það er Rafa Cabrera- Bello. Norðurlandabúar eru í 7. og 8. sæti listans. Annars vegar er Svíinn Alex Noren sem var mjög öflugur fyrri hluta árs og hins vegar Daninn Thor- bjørn Olesen. Sá danski spilaði sig inn í hóp átta efstu með góðri frammi- stöðu á Evrópumótaröðinni í síðustu viku, en Birgir Leifur Hafþórsson var á meðal keppenda á því móti. Sá þekktasti í liði Evrópu er Norður- Írinn Rory McIlroy, sem er nú í 6. sæti listans. Garcia og Stenson líklegir Daninn Thomas Bjørn er fyrirliði Evrópu í keppninni að þessu sinni. Eins og sakir standa eru snjallir og reyndir kylfingar utan átta efstu. Þar hrópa tvö nöfn mest á mann, en það eru Spánverjinn Sergio Garcia og Sví- inn Henrik Stenson. Björn mun varla horfa framhjá þeim í vali sínu enda fjögur sæti laus. Garcia á frábæran feril í Rydernum og Stenson nýtur mikillar virðingar eftir flottan feril. Englendingar eru spenntir fyrir því að Ian Poulter eigi möguleika eftir gott ár á golfvellinum. Þessum litríka kylfingi hefur gengið vel í Ryder- bikarnum og fyrirkomulagið virðist eiga einkar vel við hann. Poulter er í 12. sæti listans sem stendur og kemur sjálfsagt til greina hjá Björn. Þá gæti hinn 41 árs gamli Paul Casey einnig komið til greina, en hann hefur ekki keppt í Ryder-bikarnum í áratug. AFP Góðir Spánverjinn Jon Rahm og Englendingurinn Justin Rose verða í stórum hlutverkum í liði Evrópu í keppninni um Ryder-bikarinn í Frakklandi. ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018 Svava Rós Guðmundsdóttir skoraði mikilvægt mark fyrir Röa í gærkvöld þegar liðið sló Arna-Björnar út í 8 liða úrslitum norsku bikarkeppninnar í knatt- spyrnu. Svava, sem er í íslenska landsliðshópnum fyrir komandi leiki við Þýskaland og Tékk- land, skoraði eina mark Röa í venjulegum leiktíma en liðið vann að lokum eftir víta- spyrnukeppni, samtals 9:8. Önnur landsliðskona, Sigríður Lára Garðars- dóttir, lék í lokin á 4:1-sigri síns nýja liðs Lille- ström gegn Vålerenga í sömu keppni. Svava Rós Guðmundsdóttir Tvær í undanúrslit Björgvin Páll Gústavsson, Tandri Már Konráðsson og sam- herjar þeirra í danska meistara- liðinu Skjern féllu óvænt úr leik í 16 liða úrslitum dönsku bik- arkeppninnar í gærkvöldi. Skjern tapaði fyrir Skander- borg, 28:26, í Skanderborg á Jót- landi í jöfnum og spennandi leik. Heimamenn voru marki yfir í hálfleik, 14:13. Tandri Már skoraði ekki mark í leiknum en það gerði hins vegar Björgvin Páll þótt það dygði skammt. Hann varði einnig eitt vítakast í fyrri hálfleik. iben@mbl.is Björgvin Páll Gústavsson Meistararnir úr leik Guðjón Valur Sigurðsson hóf keppnistímabilið í Þýskalandi með glæsibrag þegar hann var markahæstur leikmanna Rhein- Neckar Löwen með níu mörk þegar liðið fagnaði sigri í Meist- arakeppninni. Löwen, sem er ríkjandi bikarmeistari, vann þá meistaralið síðasta árs, Flens- burg, 33:26, eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 18:16. Löwen var með yfirhöndina í leiknum frá upphafi. Alexander Petersson lék einnig vel fyrir Löwen. Hann skoraði fimm mörk, öll í fyrri hálfleik. Guðjón skoraði níu Guðjón Valur Sigurðsson Mikið verður í húfi á Grafarholtsvelli næstu þrjá daga þegar tímabilinu í Eimskipsmótaröðinni í golfi lýkur með Securitas-mótinu, þar sem keppt verður um GR-bikarinn en ekki síður stigameistaratitlana í karla- og kvennaflokki. Atvinnukylfingar eiga auk þess möguleika á að yfirgefa Grafarholtið á laugar- dag 750.000 krónum ríkari, eftir 54 holu höggleik. Á meðal keppenda á mótinu eru Axel Bóasson, nýkrýndur Evrópumeistari í blandaðri liðakeppni, og Guðrún Brá Björgvinsdóttir, sem líkt og Axel landaði Íslandsmeistaratitli í sumar, sem og at- vinnukylfingarnir Andri Þór Björnsson og Guð- mundur Ágúst Kristjánsson. Atvinnukylfingar hafa að meiru að keppa hvað verðlaunafé varðar. Fyrir að landa GR-bikarnum fær atvinnumaður 250.000 krónur, og fyrir að enda í 1. sæti stigalista mótaraðarinnar fær atvinnumaður 500.000. Verði áhugakylfingur efstur, á mótinu eða í stigakeppninni, fær hann 70.000 krónur, 40.000 krónur fást fyrir 2. sæti og 20.000 fyrir 3. sæti. Kylfingum hefur verið raðað upp á lista í sam- ræmi við þann stigafjölda sem þeir hafa safnað á keppnistímabilinu, sem hófst í fyrrahaust. Níu karl- ar eiga enn tæknilega möguleika á að enda í efsta sæti stigalistans en 3.000 stig fást fyrir að vinna Securitas-mótið. Axel er efstur í karlaflokki fyrir mótið, með 4.000 stig eftir umreiknun, en Kristján Þór Einarsson kemur næstur með 3.600 stig. Birgir Björn Magnússon er þriðji en er ekki á þátttak- endalista mótsins, og næstir koma svo Andri Már Óskarsson (2.880 stig), Henning Darri Þórðarson (2.560 stig) og Rúnar Arnórsson (2.240). Guðrún Brá er efst kvenna með 4.000 stig eftir umreiknun. Saga Traustadóttir kemur næst en er ekki með, og Anna Sólveig Snorradóttir er þriðja með 3.200 stig. Anna Sólveig myndi því landa stiga- meistaratitli með sigri í Grafarholtinu því 2.100 stig fást fyrir 2. sæti en 3.000 fyrir 1. sæti. Hulda Clara Gestsdóttir (2.880 stig), Ragnhildur Kristinsdóttir (2.560) og Helga Kristín Einarsdóttir (2.240) eiga einnig raunhæfa möguleika á stigameistaratitlinum. sindris@mbl.is Ljósmynd/Sigfús Gunnar Meistari Guðrún Brá Björgvinsdóttir landaði Íslandsmeistaratitlinum í Eyjum í sumar. Lokauppgjörið  Titlar og 750.000 krónur í boði á Grafarholtsvelli  Marija Radojicic hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við knatt- spyrnudeild Fylkis. Radojicic, sem er serbneskur landsliðsmaður og fædd árið 1992, kom til Fylkis fyrir tímabilið og hefur skorað 12 mörk í 20 leikjum fyrir félagið. Hún hefur þótt passa vel inn í hópinn og er almenn ánægja með hana í Árbænum.  Gunnar Steinn Jónsson og Rúnar Kárason léku í fyrrakvöld í fyrsta sinn með Ribe Esbjerg í opinberri keppni eftir að þeir gengu til liðs við félagið í sumar. Ribe Esbjerg tap- aði þá fyrir Holstebro, 36:25, á heima- velli í 16 liða úrslitum dönsku bikar- keppninnar í handknattleik. Gunnar Steinn skoraði fjögur mörk í leiknum og Rúnar tvö. Vignir Svavarsson skor- aði ekki mark fyrir Holstebro.  Handknattleiksdeild Selfoss hefur samið við örvhenta, danska horna- manninn Söru Boye en hún spilaði áð- ur í Danmörku með liðinu HIH Herning Ikast Håndbold.  Morten Beck, bakvörður KR í knatt- spyrnu, er með slitið krossband í hné og verður því frá keppni næstu 6-9 mánuðina. Þetta staðfesti Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, við 433.is.  Angelika Kowalska hefur gengið til liðs við Snæfell og mun spila með liðinu í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik á næstu leiktíð. Þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni í gær. Kowalska er 26 ára gamall framherji frá Pól- landi sem á að baki landsleiki fyrir yngri landslið Pólverja.Hún spilaði í Frakklandi á síðustu leiktíð. Eitt ogannað Þýskaland Meistarakeppni karla: Flensburg – Rhein-Neckar Löwen ....26:33  Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 9 mörk fyrir Löwen og Alexander Petersson 5. Danmörk Bikarkeppnin, 16 liða úrslit: Skanderborg – Nyk..............................21:26  Steinunn Hansdóttir skoraði ekki mark fyrir Skanderborg. Aarhus United – Silkeborg-Voel........29:31  Birna Berg Haraldsdóttir lék ekki með Aarhus vegna meiðsla. Ajax – Herning Ikast ...........................17:20  Eva Björk Davíðsdóttir skoraði 3 mörk fyrir Ajax. Hadsten – Esbjerg................................16:37  Rut Arnfjörð Jónsdóttir lék ekki með Esbjerg að þessu sinni. Skanderborg – Skjern .........................28:26  Tandri Már Konráðsson skoraði ekki fyrir Skjern. Björgvin Páll Gústavsson er markvörður Skjern. Hann skoraði 1 mark. Asíumeistaramótið Milliriðill 1: Japan – Írak ..........................................27:24  Dagur Sigurðsson þjálfar lið Japan.  Staðan: Katar 4 stig, Japan 3, Sádi- Arabía 1, Írak 0. Milliriðill 2: Suður-Kórea – Barein .........................25:27  Aron Kristjánsson þjálfar lið Barein.  Staðan: Barein 4 stig, S-Kórea 2, Íran 2, Hong Kong 0. HANDBOLTI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.