Morgunblaðið - 23.08.2018, Side 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2018
Ég kalla það gott ef Freyr Alex-
andersson, þjálfari kvennalands-
liðsins í knattspyrnu, er ekki
kominn á stóran valíumskammt
eftir öll áföllin sem dunið hafa á
landsliðskonunum síðasta eina
og hálfa árið eða svo.
Eftir allt sem á undan er gengið
er Freyr væntanlega farinn að
byrja hvern dag á því að spyrja
sig hvaða hamfarafréttir honum
verði færðar þann daginn. Nú
síðast mátti hann horfa upp á
Hörpu Þorsteinsdóttur slíta
krossband, korteri fyrir leikina
mikilvægu um það hvort Ísland
komist á HM í fyrsta skipti.
Mig minnir að snemma á síð-
asta ári hafi staðan á landsliðs-
konunum verið býsna góð þegar
nokkrir mánuðir voru í að liðið
spilaði á EM í Hollandi. Líklega
byrjuðu hamfarirnar þegar rúm-
lega 100 landsleikja konan Dóra
María Lárusdóttir sleit kross-
band á Algarve. Þegar nær dró
EM hlaut önnur rúmlega 100
landsleikja kona, Margrét Lára
Viðarsdóttir, sömu örlög. Þannig
fór einnig fyrir Elísu Viðarsdóttur
og Mist Edvardsdóttur.
Íslandi tókst engu að síður að
vinna stórveldið Þýskaland á úti-
velli síðasta haust og er það
ágæt áminning um að maður
kemur í manns stað. En Freyr átti
eftir að fá fleiri taugatrekkjandi
tíðindi. Hólmfríður Magnúsdóttir
og Dagný Brynjarsdóttir ákváðu
að fjölga mannkyninu. Elín Metta
Jensen missti töluvert úr í vetur,
Fanndís Friðriksdóttir var af og
til í nárameiðslum og Sigríður
Lára Garðarsdóttir fékk liðagigt.
Til að toppa álagið á taugakerfið
hjá Frey hneig fyrirliðinn Sara
Björk Gunnarsdóttir niður í úr-
slitaleik Meistaradeildarinnar.
Þær sem hér voru nefndar hafa
nokkrar náð heilsu eins og Sara
og eru til í slaginn, sem betur fer.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
14. UMFERÐ
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Margrét Árnadóttir kom mikið við
sögu þegar Þór/KA rótburstaði
FH 9:1 í 14. umferð Pepsi-
deildarinnar í knattspyrnu. Ís-
landsmeistararnir voru því snögg-
ir að rétta úr kútnum eftir óvænt
tap fyrir KR en úr því sem komið
er virðist baráttan um sigurinn á
Íslandsmótinu standa á milli
Breiðabliks og Þórs/KA.
Margrét fékk MMM í blaðinu
fyrir frammistöðu sína gegn FH
og Morgunblaðið tók hana tali um
leið og lið umferðarinnar er birt
venju samkvæmt. Ekki verður
sagt að Margrét hafi látið tímann
fara til spillis gegn FH. Hún var
varamaður en kom inn á eftir 56
mínútur. Á þeim tíma sem eftir
var af leiknum skoraði hún tvíveg-
is og lagði upp önnur tvö mörk.
„Jú, það má orða það þannig að
mínúturnar hafi nýst vel. Þetta er
klárlega besta innkoma mín síðan
ég byrjaði í Þór/KA. Ég er því
mjög ánægð með þetta,“ sagði
Margrét þegar Morgunblaðið sló
á þráðinn til hennar. Hún var þá
nýfarin í skólaferðalag með bekkj-
arsystkinum sínum úr Mennta-
skólanum á Akureyri. Missir Mar-
grét af næsta leik liðsins, gegn
Selfossi, af þeim sökum en verður
mætt til leiks á ný þegar síðustu
tvær umferðir deildarinnar eru á
dagskrá eftir landsleikjahlé.
Förin til Belfast til góðs
Margrét segir drifkraftinn hafa
verið til staðar í liði Akureyringa
gegn FH-ingum og hvergi var
slakað á þótt forskotið væri orðið
álitlegt. „Við mættum í þennan
leik til að vinna. Við héldum alltaf
áfram og vildum fleiri mörk. Við
ætlum okkur að vinna þá leiki
sem eftir eru og þetta var bara
byrjunin. Leikirnir gegn FH hafa
yfirleitt verið erfiðir og ég bjóst
alls ekki við þessari niðurstöðu.
Ég átti von á hörkuleik því FH er
með fínt lið þótt stigataflan segi
annað,“ útskýrði Margrét og segir
ferðina til Belfast hafa gert liðinu
afskaplega gott.
Þar spilaði Þór/KA þrjá Evr-
ópuleiki með góðum árangri og
vann sér sæti í 32 liða úrslit
keppninnar. Þreytumerkin voru
hins vegar víðs fjarri við heim-
komu, eins og Hafnfirðingar
fengu að kenna á. „Það var engin
þreyta í liðinu og ég held að Evr-
ópuleikirnir hafi gefið okkur auka-
kraft og aukið sjálfstraust, sem er
jákvætt. Ferðin þjappaði leik-
mannahópnum vel saman innan
vallar sem utan.“
Tvö lið skera sig úr
Spurð hvernig hún sjái fyrir sér
að toppbaráttan muni þróast segir
Margrét það liggja nokkuð ljóst
fyrir að baráttan sé á milli tveggja
liða. Mjög athyglisverðir leikir eru
eftir, en Breiðablik og Þór/KA
eiga eftir að mætast í Kópavog-
inum. Þá eiga bæði liðin eftir að
mæta Val, sem er vel mannað lið
og ef til vil sært eftir vonbrigðin
undanfarnar vikur. Auk þess á
Þór/KA eftir að heimsækja Stjörn-
una í Garðabæinn.
„Við ætlum að fara í alla leiki til
að vinna þá enda kemur ekkert
annað til greina en að vinna þá
leiki sem eftir eru. Við og Breiða-
blik höfum skilið önnur lið svolítið
eftir og baráttan um titilinn verð-
ur á milli okkar. Liðið sem hefur
meiri löngun í sigurinn og heldur
einbeitingu mun vinna deildina.
Reynslan hjálpar alltaf í svona
stöðu og við vitum hvað þarf til
eftir sigurinn í fyrra,“ benti Mar-
grét á.
Margrét og Mayor
ná vel saman
Margrét er 19 ára gömul og
hefur skorað fjögur mörk fyrir
Þór/KA í efstu deild. Sam-
keppnin um stöður í framlínunni
hjá Þór/KA er mikil. Mexíkaninn
Stephany Mayor og landsliðs-
konan Sandra María Jessen eiga
þar nokkuð fast sæti en auk
þeirra hafa bæði Margrét og
Hulda Ósk Jónsdóttir látið að
sér kveða í sumar. Mayor var
kjörin besti leikmaður Íslands-
mótsins í fyrra, en hún og Mar-
grét þykja ná vel saman á vell-
inum.
„Það er geggjað að spila með
henni en einnig Söndru og
Huldu. Ég og Stephany náum
mjög vel saman á vellinum. Þar
hefur myndast einhver tenging,“
sagði Margrét enn fremur í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Lið umferðarinnar
14. umferð í Pepsi-deild kvenna 2018
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
2
Einkunnagjöfin 2018
Þessir eru með flest M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefið er eitt M fyrir góðan
leik, tvö M fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik.
Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki 14
Cloé Lacasse, ÍBV 13
Elín Metta Jensen, Val 13
Lára Kristín Pedersen, Stjörnunni 13
Alexandra Jóhannsdóttir, Breiðabliki 10
Allyson Haran, Selfossi 10
Ariana Calderón, Þór/KA 9
Fatma Kara, HK/Víkingi 9
Harpa Þorsteinsdóttir, Stjörnunni 9
Stephany Mayor, Þór/KA 9
Arna Sif Ásgrímsdóttir, Þór/KA 8
Crystal Thomas, Val 8
Hildur Antonsdóttir, Breiðabliki og HK/Vík. 8
Katrín Ómarsdóttir, KR 8
Magdalena Anna Reimus, Selfossi 8
Sandra María Jessen, Þór/KA 8
Selma Sól Magnúsdóttir, Breiðabliki 8
Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Breiðabliki 14
Stephany Mayor, Þór/KA 13
Sandra María Jessen, Þór/KA 12
Elín Metta Jensen, Val 11
Harpa Þorsteinsdóttir, Stjörnunni 8
Telma Hjaltalín Þrastardóttir, Breiðabliki 7
Rio Hardy, Grindavík 7
Markahæstar
Þór/KA 72
Breiðablik 62
Valur 58
ÍBV 56
Stjarnan 56
Selfoss 51
HK/Víkingur 50
KR 41
Grindavík 38
FH 30
Lið:
Leikmenn:
Thelma Björk Einarsdóttir, Val 8
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir, Stjörnunni 8
3-5-2
Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir
ÍBV
Stephany Mayor
Þór/KA
Linda Eshun
Grindavík
Kristín Dís Árnadóttir
Breiðabliki
Allyson Haran
Selfossi
Guðmunda Brynja Óladóttir
Stjörnunni
Hildur
Antonsdóttir
Breiðabliki Þórdís Hrönn
Sigfúsdóttir
Stjörnunni
Margrét
Árnadóttir
Þór/KA
Rut
Kristjánsdóttir
ÍBV
Lára Kristín
Pedersen
Stjörnunni
2
2 2
3
3
5
4
Leikirnir í Belfast gáfu
liðinu aukið sjálfstraust
Margrét Árnadóttir skoraði tvívegis og lagði upp tvö mörk gegn FH
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Stoðsending Margrét Árnadóttir leggur hér upp mark líkt og hún gerði tvívegis gegn FH á dögunum.
„Ég verð ekki með í fyrstu leikjun-
um en stefni á að vera með fljótlega.
Ég er hægt ogð rólega að auka álag-
ið,“ sagði Rut
Arnfjörð Jóns-
dóttir, landsliðs-
kona í handknatt-
leik og leikmaður
danska úrvals-
deildarliðsins
Esbjerg, í gær.
Rut er að ná sér
hægt og bítandi
af stað á nýjan
leik eftir að hafa
verið frá keppni á
síðustu leiktíð. Rut fæddi son í lok
febrúar á þessu ári. Faðir drengsins
er Ólafur Gústafsson, landsliðsmað-
ur í handknattleik, leikmaður Kold-
ing og sambýlismaður Rutar.
„Það er gaman að vera byrjuð í
handboltanum af fullum krafti á nýj-
an leik þótt ég ekki alveg á sama stað
og fyrir meðgöngu. En formið kem-
ur hægt og rólega,“ sagði Rut enn-
fremur.
Esbjerg lék til úrslita um danska
meistaratitilinn í vor en tapaði fyrir
Viborg í úrslitum. „Við verðum
spennandi lið. Bæði hafa komið
nokkrar góðar til liðs við okkur og
aðrar komnar til baka eftir meiðsli
og fæðingarorlof,“ sagði Rut Arn-
fjörð Jónsdóttir handknattleikskona
við Morgunblaðið. iben@mbl.is
Gaman að
vera byrjuð á
nýjan leik
Rut Arnfjörð
Jónsdóttir