Spanska flugan - 05.04.1920, Blaðsíða 2

Spanska flugan - 05.04.1920, Blaðsíða 2
2 Öllum þessum farþegum, hvort sem þeir hafa veikst eður eigi verður leyfð heimför að enduðum sóttvarnartímanum, en þeim er stranglega bannað að hafa nokkur mök við annað fólk eða koma undir bert loft i 300 daga. pá hefir og sóttvamamefndin símað til Kaupmannahafnar, Leith og Glasgow og spurst fyrir um hvort „spanska“ veikin í bæjum þessum sé sú sama og gengur hér í Reykja- vík, en fékk það svar, að nokkra sjúklinga yrði að senda sem sýnis- hom. Sóttvarnamefndin hefir nú til íhugunar hvort eigi skuli senda auka gufuskip utan rhcð nokkra sjúklinga. Til að fullvissa mig um að allrar varúðar yrði gætt við flutning sjúklinganna í land, gat ritari þess, að þegar hinir fyrstu sjúklingar voru fluttir i sóttvarnarhúsið, hefði einn þeirra verið þvi nær kafn- aður og hefði slegið lokð af kstunni, en lögregluþjónn sá, er sjá átti um flutning sjúklinganna, tók samstundis sjúklinginn í hnakka- drambið og deyf honum niður í sjóinn sem svaraði 15 mínútum og sagði því næst brosandi: Eg skal kenna þessum þrjótum að hafa hægt um sig. Og eftir vatnsskírn þessa hygg eg að líkamshiti þess arna sé kominn í samt lag. Sóttvarnarnefndin hefir lengi velt þvi fyrir sér og kynt sér hversu veikin hafi komið upp á íslandi og eftir nánari rannsókn og íhugun komist að þeirri niðurstöðu að sóttvamarlæknirinn hafi borið veik- ina með sér frá landi, því óðar en hann hafði yfirgefið skipið og Thor- oddsen læknir tók við eftirlitinu á skipinu urðu allir heilbrigð- ir og engir nýir veiktust. Smávegis. A. : Hvess vegna er Guðmundur Hannesson sköllóttur? B. : Hann hugsar svo mikið. A.: Hvers vegna er Ólafur Friðriksson ekki sköllóttur? Ábyrgðarmaður: pÓRÐUR JÓNSSON. FélagsprentsmiSjan.

x

Spanska flugan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spanska flugan
https://timarit.is/publication/1300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.