Stjarnan - 01.02.1920, Qupperneq 5

Stjarnan - 01.02.1920, Qupperneq 5
STJABNAN 21 Persamir komu til sögunnar á eftir Modaiia, en urðu að lokum þeim yfir- sterkari. petta sama ríki er nefnt í annari sýn (Dan. 8:3) sem tvíhyrndur hrútur, “þó annað (homið) sé hænra en annað og spratt hærra homið síðar upp.” 1 árinu 331 f.Kr. hverfur hið mikla ríki Meda) og Persa ur sögunni og lxinn voldugi Grikklands konungur verður stjómari heimsins. Hraðinn, sem hinn sigrandi Alexander mikli fór með yfir jörðina, yfirgekk alt, sem heimurinn þangað til hafði verið vottur að. Par- dusdýrið, þriðja dýrið, sem er svo fljótt á fæti, er hin ágætasta táknmynd upp á fljótar hreyfingatr, en það varð að hafa fjóra vængi til að tákna hinn afar- mikla liraða sigurfarar Alexanders mikla. Alexander lagði undir sig allt Persa ríkið og fór einnig fyrir utan það. par eð þetta dýr hafði fjögur höfuð finnum vér að hinir fjórir miklu hers- höfðingjar Alexanders -skiftu hinu vold- uga ríki milli sín eftir dauða hans og fengu sinn hlut hver. Hið fjórðal dýr eða ríki. par næst kom upp stórt dýr, sem var hræðilegt, ógudlegt og yfirtaks öflugt. pað framkvæmdi, að því er sýndist, allt hindmnarlaust í heiminum og barði til jarðar alla mótstöðu og troð 1 sundur með fótunum það, sem það leifði. Öll- um fyrri dýrunum voru nöfn gefin, — fyrstía dýrið er ljón, annað er bjarndýr og hið þriðja er pardusdýr — en guð- dómurinn hefir ekkert nafn gefið f jórða dýrinu. pað var ekkert dýr líkt því í öllum heimi. “pað var allt öðra- vísi en öll hin fyrri dýrin” En þetta dýr mundi tákna hið fjórða veraldar ríki, sem var Rómaríkið og var það ó- lí’kt öllum öðrum ríkjum. Ekkert ríki sem hafði verið til á undan því má líkja við þetta ríki, er sigraði og stjómaði miskunarlauat. Hinn himneski túlkur heldur áfram: “pau tíu hornin merkja það, að af þessu ríki munu uppkoma tíu konungar.” Hið mikla Rómaríki var samansett af mörgurn aðgreindum þjóðum og í árinu 476, þegar því var skift, urðu þessar þjóðir .sjálfstæð iríki -—hinir tíu partar Rómaríkisins, sem enginn mennskur maður hefir getað sameinað aftur. Yiðvíkjandi fjórða dýrinu komst engillinn þannig að orði: “pað skal upp svelgja öll lönd, niður troð.a þau- og sundurmerja. ” 23. vers. Aldrei hefir nokkur þjóð, hvorki fyr né síðar, haft allan hinn mentaða hluta heimsins í sínum greipum eins og róm- verska þjóðin liafði hann. Litla homið — páfavaldið pegar ríkinu var skift í 476 e. Kr. komu 10 þjóðir — “tíu konungar” — fram af hinu forna vestræna Rómaríki. Spádómurinn heldur áfram : “Eftir það mun annar (annað horn eða vald) upp rísa. Sá mun ólíkur verða hinutn fyrri, og hann mun undiroka þrjá kon- unga.” 24. vers. pessir þrír konungar, sem hér era nefndir, eru auðvitað þrjú af þeim tíu ríkjum, sem myitduðust þegar Rómarríkinu var skift. Hvaða ríki hefir þessi einkenni — það rels upp eftir að tíu ríkin kornu til sögunnar, það var öðruvísi en þau, það upprætti þrjá konunga til þess að geta aukið sitt eigið vald, það mundi “orð mæla í gegn hinum Hæsta” ofsækja eða kúga “liina heilögu hins Hæsta og liafa í hyggju að umbreyta tímum og lögurn” pað er aðeins eitt vald á jarðríki sem hefir þessi einkenni, og það er páfavald- ið. Páfavssldið undirokar þrjá konunga. prír konungar voru upprættir itil þess að páfavaldið gæti haft ráðrúm.

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.