Fréttablaðið - 14.01.2019, Blaðsíða 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
ÁRA5ÁBYRGÐ FIAT ATVINNUBÍLAR
FIAT DUCATO
Verð frá 3.943.548 án vsk.
4.890.000 m/vsk.
FIAT TALENTO L2H1
Verð frá 3.298.387 án vsk.
4.090.000 m/vsk.
FIAT DOBLO
Verð frá 2.225.806 án vsk.
2.760.000 m/vsk.
FIAT FIORINO
Verð frá 1.854.032 án vsk.
2.299.000 m/vsk.
ÁRA5ÁBYRGÐUMBOÐSAÐILI FIAT • ÞVERHOLTI 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 • WWW.FIATPROFESSIONAL.IS WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
REYKJANESBÆR „Margir kennarar
eru að gefast upp á álaginu. Í haust
eru dæmi um kulnun í starfi hjá
kennurum þannig að fólk er komið
í veikindafrí eða er hætt að starfa
í skólunum,“ segir Skúli Sigurðs
son, fulltrúi grunnskólakennara á
fræðslusviði Reykjanesbæjar.
Starfsáætlun fræðslusviðs árs
ins var til umræðu á síðasta fundi
fræðsluráðs Reykjanesbæjar.
Bærinn hefur vaxið síðustu ár og
börnum af erlendum uppruna í
grunnskólum hefur fjölgað mikið.
Sá hópur þarf oft meiri stuðning
við nám en aðrir nemendur.
„Við trúnaðarmenn á Suður
nesjum viljum vekja athygli á því
ástandi sem ríkir í grunnskólum
á svæðinu. Eftir að hafa verið á
fundi og rætt málin þá er samróma
ályktun okkar að óeðlilegt álag sé
á kennurum og kemur það mikið
niður á þeim,“ segir Skúli í harð
orðri bókun í fundargerð.
Skúli segir að ein af ástæðum
kulnunar í starfi sé úrræðaleysi í
aðkallandi vandamálum. „Það er
sveitarstjórnar að vinna í því að
bæta ástandið í skólunum og hafa
úrræði fyrir þá sem þurfa en ekki
horfa framhjá vandamálinu og
vona að það hverfi,“ segir Skúli. – sa
Segir alvarlegt ástand í grunnskólunum
STJÓRNMÁL Hámarksframlög til
stjórnmálasamtaka eru nú 550
þúsund krónur frá einstaklingum
eða lögaðilum. Sé um stofnframlag
til stjórnmálasamtaka að ræða má
hámarksframlag nú vera allt að 1,1
milljón.
Við gildistöku breytinga á lögum um
áramót breyttust þær fjárhæðir sem
einstaklingar í persónukjöri og
stjórnmálasamtök mega þiggja.
Einnig voru gerðar breytingar á upp
lýsingaskyldu stjórnmálasamtaka. Sú
breyting felur í sér að ársreikningar
og uppgjör stjórnmálasamtaka verða
birt í heild sinni auk lista yfir lögað
ila sem styrktu framboðin um meira
en 300 þúsund krónur. – sa
Mega styrkja
flokka meira
Reykjanesbær hefur breyst mikið á síðasta áratug. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FISKELDI Fyrirhugað gjald fyrir
nýtingu eldissvæða í sjó er ýmist of
hátt eða of lágt miðað við innsendar
athugasemdir við fyrirhugað laga
frumvarp þess efnis.
Í drögum að frumvarpinu segir að
eldisfyrirtæki muni þurfa að greiða
tíu krónur fyrir hvert kíló af frjóum
eldislaxi en helmingi lægri upp
hæð fyrir kíló af geldlaxi og regn
bogasilungi. Árið 2023 mun upp
hæðin í báðum flokkum hækka um
helming. Gert er ráð fyrir að lögin
taki gildi 2020. Áætlað er að fyrstu
árin muni gjaldið skila rúmum 600
milljónum í ríkiskassann en ríflega
milljarði eftir að hækkunin tekur
gildi.
Athygli vekur að gjaldið er ekki
lagt á hvert framleitt kíló heldur á
hvert kíló sem rekstrarleyfishafi
hefur leyfi til að framleiða. Því er
mögulegt að fyrirtæki muni þurfa
að greiða fyrir framleiðslu sem ekki
átti sér stað. „Ástæða þessa er sú að
þessi aðferð er einföld í framkvæmd
og hvetur rekstrarleyfishafa til að
nýta framleiðsluheimildir útgefinna
rekstrarheimilda,“ segir í athuga
semdum með frumvarpinu.
Í umsögn KPMG segir að réttmæti
gjaldstofnsins megi draga í efa enda
taki hann ekki á nokkurn hátt mið
af gjaldþoli gjaldandans. Gífurlega
langur tími líði frá því að rekstrar
leyfi fæst þar til tekjur myndist af
starfseminni.
„Skattlagning framleiðslu
heimildar óháð því hvort hún er
nýtt samræmist illa sjónarmiði
um verndun lífríkis, sem búa að
baki gjaldtökunni, enda vandséð
að heimildin ein hafi áhrif á líf
ríki til jafns við sjálft eldið,“ segir
í umsögn KPMG. Á þetta er einnig
bent í umsögn Samtaka fyrirtækja
í sjávarútvegi (SFS) en þar er bent á
að það getur tekið mörg ár að hefja
framleiðslu að fullu eftir að rekstrar
leyfi fæst.
Í umsögn SFS er enn fremur bent
á að greinin sé enn að slíta barns
skónum og afkoma fyrirtækja í
geiranum að stærstum hluta verið
neikvæð. Til að mynda sé uppsafnað
tap síðustu fimm ára 4,8 milljarðar
króna. Óskynsamlegt sé að leggja
auðlindagjald á meðan afkoman
er á þann veg. Þá er vikið að því að
óráðlegt sé að gjaldið sé ákveðið
með fastri krónutölu en taki ekki
mið af afurðaverði og gengi.
Tónninn í umsögn Landssam
bands veiðifélaga (LV) er á annan
veg. Sambandið telur frumvarpið
varpa fyrir róða tækifæri til að lög
festa fjárhagslegan hvata til að færa
eldi úr sjókvíum og upp á land.
„Fyrirhuguð upphæð í frumvarps
drögunum […] er alltof lág að mati
LV. Upphæðina þarf að tvöfalda að
lágmarki svo einhver hvati til breyt
inga hljótist af lögunum. Þá gerir
frumvarpið ekki ráð fyrir að gjaldið
taki mið af verðlagsbreytingum,“
segir í umsögninni. joli@frettabladid.is
Fyrirhugað gjald á fiskeldisfélög
ýmist sagt allt of hátt eða of lágt
Skiptar skoðanir eru á ágæti fyrirhugaðrar gjaldtöku á fiskeldisfyrirtæki. Gjaldið mun leggjast á fram-
leiðsluheimild en ekki raunverulega framleiðslu. Mun skila milljarði en veiðifélög telja það ekki nóg.
Eldisfyrirtæki munu þurfa að greiða tíu krónur fyrir hvert kíló af frjóum eldislaxi. MYND/ERLENDUR GÍSLASON
Athygli vekur að gjaldið
er ekki lagt á hvert framleitt
kíló heldur á hvert kíló sem
rekstrarleyfishafi hefur leyfi
til að framleiða.
EFNAHAGSMÁL Bjarni Bene dikts
son fjár mála ráðherra seg ir að ríkið
verði að draga sig út úr um fangs
miklu eign ar haldi á bönk un um, selja
Íslands banka og halda eft ir 3540%
hlut í Lands bank an um. Þetta kom
fram í kvöld frétt um RÚV í gær. Hann
vonast til að hefja söluferli bankanna
á kjörtímabilinu.
Íslenska ríkið er eini eig andi
Íslands banka og á rúm lega 98 pró
senta hlut í Lands bank an um. Í
hvít bók um fjár mála kerfið sem var
kynnt fyrir jól voru stjórn völd hvött
til að losa um eign ar hluti í fjár mála
fyr ir tækj um. – ósk
Bjarni vill selja
Íslandsbanka
1 4 . J A N Ú A R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
4
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:5
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
0
3
-0
C
C
0
2
2
0
3
-0
B
8
4
2
2
0
3
-0
A
4
8
2
2
0
3
-0
9
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
1
3
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K