Fréttablaðið - 14.01.2019, Qupperneq 6
SAMFÉLAG Rótin, félag um málefni
kvenna með áfengis- og fíknivanda,
hefur stofnað til sjálfshjálparhópa-
starfs í Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir
þolendur ofbeldis, sem kallaðir eru
Rótarhópar. Hópastarfinu er ætlað
að styðja konur til bata frá vímu-
efnafíkn og er það konunum að
kostnaðarlausu að sækja sér stuðn-
ing í hópana. Í Rótarhópunum er
unnið út frá þekkingu á sambandi
áfalla og vímuefnavanda og er þátt-
taka í þeim aðeins hluti af bataferl-
inu að sögn aðstandenda. „Engin
skyndilækning er til á áhrifum áfalla
og allt lífið erum við að skoða fortíð
okkar, læra af henni og skapa okkur
betri framtíð í kjölfarið,“ segir Guð-
rún Ebba Ólafsdóttir, annar tveggja
leiðbeinenda Rótarhópanna. Guð-
rún Ebba er grunnskólakennari og
hefur leitt sjálfshjálparhópa í Stíga-
mótum og Drekaslóð. Hinn leið-
beinandinn, Katrín G. Alfreðsdóttir,
er félagsráðgjafi, fjölskyldufræðing-
ur og með gráðu í fíknifræðum.
Umræðuefni hópanna tengjast
viðfangsefnum námskeiðsins
Konur studdar til bata, sem Rótin
hélt í haust, þar sem aðaláherslan
var á sjálfsmynd, sambönd og sam-
skipti, kynverund og andlega heilsu
kvenna með fíknivanda. „Innan
þessara þátta eru undirflokkar sem
allir snerta mikilvæg atriði fyrir
konur í bataferli. Spurt er hvað kom
fyrir konurnar í stað þess að spyrja
hvað sé að þeim. Hvernig þær hafi
komist af og til hvaða bjargráða
hver og ein þeirra hafi gripið. Rætt
er um nýjar aðferðir til að takast á
við vandann í stað þess að grípa til
þess að nota vímuefni.“
Guðrún Ebba segir það hafa
verið draum kvennanna sem að
Rótinni standa frá byrjun að stofna
hópastarf, eða eins konar stuðn-
ingshópa, að fyrirmynd Stephanie
Covington, sem er þekktur fíkni-
sérfræðingur og doktor í sálfræði
frá Bandaríkjunum. „Stephanie
horfir á fíknina í gegnum áföllin,
sem afleiðingu þess sem kom fyrir,“
útskýrir Guðrún Ebba. „Við teljum
brýna þörf á svona starfi og það
hefur mikið verið kallað eftir að
Rótin verði með fundi eða einhvers
konar hópastarf. Þetta er okkar svar
við því.“ olof@frettabladid.is
Rótarhópar fyrir konur með fíknivanda
Rótin, félag um málefni kvenna með fíknivanda, hrindir af stað hópastarfi í Bjarkarhlíð á miðvikudag. Byggt er á aðferðum Stephanie
Covington sem lítur á fíkn sem afleiðingu áfalla. Hóparnir veita stuðning og fræðslu um önnur bjargráð en neyslu til þess að komast af.
Katrín Alfreðsdóttir, Kristín I. Pálsdóttir, Guðrún Ebba Ólafsdóttir og Þórlaug Sveinsdóttir skipa ráð Rótarinnar.
Hvað er Rótin?
Markmið Rótarinnar eru að stofna til umræðu um konur, fíkn, áföll, of-
beldi og geðheilbrigði og huga að sérstökum meðferðarúrræðum fyrir
konur. Félagið vill að komið sé á samstarfi á milli stofnana, samtaka og
annarra fagaðila sem fást við vímuefnameðferð, ofbeldi og úrvinnslu
áfalla. Félagið vill beita sér fyrir öflun upplýsinga og úrvinnslu fyrirliggj-
andi gagna um þessi málefni konum til góða, og stuðla að rannsóknum
á þessu sviði. Enn fremur að afla þekkingar, halda fyrirlestra, standa að
ráðstefnum og námskeiðum, eitt eða í samstarfið við önnur félög, og
efla umræður um fíknitengd málefni sem snerta konur sérstaklega.
Stephanie Covington er doktor í sál-
fræði og þekktur fíknisérfræðingur.
REYKJAVÍK Björn Gíslason, fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í innkaupa-
ráði, hyggst leggja til að fulltrúum
í ráðinu verði fjölgað. Þá geti ráðið
vísað málum til innri endurskoð-
unar Reykjavíkurborgar (IER) sam-
þykki tveir fulltrúar í ráðinu slíka
tillögu. Tillagan verður tekin fyrir
á fundi borgarstjórnar á morgun.
Sem stendur mynda ráðið þrír
fulltrúar en verði breytingin sam-
þykkt munu þeir verða fimm. Þá
fengi ráðið nýtt nafn, eftirlits- og
innkauparáð Reykjavíkurborgar.
Í greinargerð með tillögunni segir
að ljóst sé að ráðið hafi ekki hlotið
áheyrn embættismanna og borgar-
ráðs. Mál á borði ráðsins séu oft
flókin og viðamikil. Með tillögunni
sé stefnt að því að efla ráðið.
„Þetta kemur svo sem í kjöl-
far þeirra mála sem hafa verið í
umræðunni. Við í innkauparáði
höfðum lengi reynt að fá útskýr-
ingar á Nauthólsvegi 100 en það
gekk illa. Með þessu viljum við að
innkauparáð hafi veigameira hlut-
verk sem verði fyrst og fremst tengt
eftirliti,“ segir Björn.
Björn bendir á að hið forn-
kveðna betur sjá augu en auga eigi
vel við í þessu tilfelli. Oftar en ekki
séu það gífurlega stór mál og háar
upphæðir sem séu undir. Því sé
mikilvægt að tveir fulltrúar, sem
oftast séu minnihlutans hverju
sinni, geti vísað málum til IER.
„Ef mönnum er alvara með að
bæta hlutina þá er þetta stór hluti
af því. Við höfum engan annan
kost úr því sem komið er en að
reyna að gera hlutina betur. Ég á
því ekki von á öðru en að þessari
tillögu verði vel tekið á fundinum
á morgun,“ segir Björn. – jóe
Vill fjölga fulltrúum í innkauparáði og auka eftirlitshlutverk þess
Braggamálið sé tilefni til þess að efla innkauparáð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Við í innkauparáði
höfðum lengi reynt
að fá útskýringar á Nauthóls-
vegi 100 en það
gekk illa.
Björn Gíslason,
borgarfulltrúi
1 4 . J A N Ú A R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
4
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:5
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
0
3
-2
0
8
0
2
2
0
3
-1
F
4
4
2
2
0
3
-1
E
0
8
2
2
0
3
-1
C
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
1
3
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K