Fréttablaðið - 14.01.2019, Blaðsíða 14
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@
frettabladid.is, s. 550 5761 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 550 5765 | Starri Freyr Jónsson,
starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Í ENDURMENNTUN HÍ eru allir velkomnir,“ segir Kristín Jóns-dóttir Njarðvík endurmennt-
unarstjóri. „Það er algengur mis-
skilningur að til okkar komi aðeins
þeir sem lokið hafa stúdents- eða
háskólaprófum, en raunin er sú að
í stórum hluta þeirra námskeiða
og námsbrauta sem hér eru í boði
eru engar forkröfur gerðar um
menntun nema annað sé tilgreint í
námslýsingum.“
Um 200 námskeið eru í boði hjá
ENDURMENNTUN HÍ á hverju
misseri og er úrvalið einkar spenn-
andi og við allra hæfi. Einnig eru
fjölmargar námsbrautir í boði,
ýmist án eininga og öllum opnar
eða á grunn- eða meistarastigi
háskóla.
„Við erum með stutt námskeið á
sviði menningar, tungumála, per-
sónulegrar hæfni og fagtengdrar
hæfni, sem og lengra nám á mjög
fjölbreyttum sviðum,“ upplýsir
Kristín.
Vöxtur í stuttum og
hagnýtum námslínum
Að sögn Kristínar hefur að undan-
förnu verið mikill vöxtur í stuttum
og hagnýtum námslínum sem eru
án eininga og öllum opnar. Þrjár
slíkar fara af stað nú á vormisseri;
Fjármál og rekstur, Grunnnám í
bókhaldi og Grunnnám í reikn-
ingshaldi.
„Fjármál og rekstur er stutt náms-
lína sem hægt er að sækja á staðn-
um eða í fjarnámi. Námið hentar til
dæmis þeim sem hafa fengið aukna
ábyrgð á sviði fjármála og vilja
öðlast hagnýta þekkingu á því sviði.
Engar forkröfur eru gerðar til þátt-
takenda í náminu,“ segir Kristín,
og sama má segja um hinar tvær.
„Grunnnám í bókhaldi og Grunn-
nám í reikningshaldi eru námslínur
sem til dæmis henta þeim vel sem
vilja vinna að því að öðlast viður-
kenningu sem nýtist á markaði, en
námslínurnar eru hluti af svokall-
aðri Þriggja þrepa leið sem er góður
undirbúningur fyrir þá sem stefna
á að þreyta próf til viðurkenningar
bókara,“ segir Kristín og bætir við
að námslínan Undirbúningsnám til
viðurkenningar bókara sé á dagskrá
í ENDURMENNTUN í haust.
Fleiri opnar námslínur í
haust
Enn fleiri stuttar námslínur fara
svo af stað í haust; Forysta til fram-
þróunar, Verkefnastjórnun og leið-
togaþjálfun og Hugur og heilbrigði.
„Allar þessar námslínur hafa
verið afar vinsælar,“ segir Kristín.
Forysta til framþróunar er sex
mánaða langt nám í lotum þar
sem lögð er áhersla á stjórnun
breytinga við stefnumörkun fyrir-
tækja og stjórnendur fá ýmis tæki
og tól í hendur til að bæta sig sem
stjórnendur. Verkefnastjórnun
og leiðtogaþjálfun er fjölbreytt
nám ætlað þeim sem vilja í senn
öðlast þekkingu og þjálfun á sviði
verkefnastjórnunar auk þess að
efla leiðtogahæfileika sína.“
Kristín nefnir einnig sérstaklega
námslínuna Hugur og heilbrigði,
sem ætluð er þeim sem vilja auka
sjálfsþekkingu sína, bæta heilsu
og líðan ásamt því að njóta betur
líðandi stundar. „Í námslínunni
Hugur og heilbrigði hafa nem-
endur tekið þá afstöðu að fjárfesta
í heilsu sinni til framtíðar.“
Gæðastimpill að mennta sig
hjá ENDURMENNTUN HÍ
„Við höfum 35 ára reynslu, erum
hluti af Háskóla Íslands og höfum
þar aðgang að mestu sérfræðingum
landsins á hinum ýmsu sviðum,
en í kennarahópnum eru einnig
sérfræðingar utan úr bæ sem veita
nemendum hagnýta þekkingu og
reynslu af sínu sviði,“ segir Kristín.
ENDURMENNTUN HÍ tekur
reglulega þátt í könnunum í sam-
starfi við Félagsvísindasvið HÍ.
„Í niðurstöðum kemur alltaf
fram að við erum leiðandi á sviði
endurmenntunar og þjálfunar á
landinu og að hingað sækja þrefalt
fleiri nám en hjá næsta aðila, yfir
ENDURMENNTUN HÍ er leiðandi á sviði endurmenntunar og þjálfunar og sækja yfir 7.000 manns í nám hverju ári. MIkill vöxtur er í stuttum og hagnýtum námslínum sem eru án eininga og öllum opnar.
Það eykur víðsýni
og eflir andann að
halda áfram að læra alla
ævi. Þá er gott að koma í
Endurmenntun HÍ til að
efla sjálfan sig, hvort sem
er í einkalífi eða starfi.
Kristín segir
gæðastimpil
fylgja því að
mennta sig í
ENDURMENNT-
UN HÍ þar sem
er 35 ára reynsla
og aðgangur að
mestu sérfræð-
ingum landsins.
MYND/SIGTRYGGUR
ARI
7.000 manns á hverju ári. Þetta er
fólk á öllum aldri og með ýmsan
bakgrunn.“
Margir vilja næra hugann og
efla sig
Þúsundir Íslendinga hafa í gegnum
tíðina sótt námskeið tengd
áhugamálum sínum hjá ENDUR-
MENNTUN HÍ, sem og starfstengd
námskeið og almenns eðlis sem
nýtast vel í starfi og þarf ekki sér-
staka menntun til.
„Margir koma eingöngu til að
næra hugann,“ segir Kristín. „Það
geta verið námskeið um menningu
og ferðalög, eða þá Íslendingasög-
urnar sem verið hefur vinsælasta
námskeið ENDURMENNTUNAR
ár eftir ár og sótt af um það bil 200
manns á hverju misseri.“
„Mjög vinsælt er nú að sækja
námskeið í ýmiss konar skrifum,
skapandi skrifum, kvikmynda-
handritum, ritun ævisagna og
fleiru,“ segir Kristín, en nefnir
einnig fleiri vinsæl námskeið.
„Námskeið Emilíu Borgþórsdóttur
um heimili og hönnun eru gríðar-
vinsæl, en hún verður með samtals
fimm námskeið nú á vormisseri
um hvernig hægt er að fegra heim-
ilið, það nýjasta um aðkomu heim-
ilisins, útisvæðið og pallinn. Einnig
má nefna fjölmörg námskeið sem
miða að því efla einstaklinga og
styrkja, til dæmis um hugþjálfun,
núvitund, sjálfstraust og jóga,“
segir Kristín, að ógleymdu vinsælu
námskeiði um jólabækurnar sem
hefst í lok janúar. „Það er nokkurs
konar leshringur þar sem lesin
eru nýleg skáldverk og höfundum
þeirra boðið í heimsókn til að
ræða við þátttakendur.“
Nú er rétti tíminn til að skrá
sig á námskeið
Nú er góður tími til að kynna sér
framboð námskeiða á vormisseri.
„Það er margt spennandi fram-
undan og enn fleiri námskeið eiga
eftir að bætast við fram á vorið. Á
vefnum endurmenntun.is er alltaf
hægt að sjá upplýsingar um öll
námskeið og námsbrautir og skrá
sig. Einnig er velkomið að hringja
ef fólk er í vafa og að sjálfsögðu
erum við með frábæra náms-
og starfsráðgjafa til að leysa úr
málum,“ upplýsir Kristín og hvetur
fólk einnig til að kynna sér hvort
það eigi möguleika á fræðslustyrk
hjá sínu stéttarfélagi.
„Það eykur víðsýni og eflir
andann að halda áfram að læra alla
ævi. Það er gott að koma í ENDUR-
MENNTUN HÍ til að efla sjálfan
sig, hvort sem er í einkalífi eða
starfi.“
ENDURMENNTUN HÍ er á Dunhaga
7. Sími 525 4444. Sjá nánar á endur-
menntun.is
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . JA N ÚA R 2 0 1 9 M Á N U DAG U R
1
4
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:5
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
0
3
-1
6
A
0
2
2
0
3
-1
5
6
4
2
2
0
3
-1
4
2
8
2
2
0
3
-1
2
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
1
3
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K