Fréttablaðið - 14.01.2019, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 14.01.2019, Blaðsíða 15
FASTEIGNIR. FRETTABLADID.IS Fasteignablaðið 2 . T B L . M Á N U DAG U R 1 4 . JA N ÚA R 2 0 1 9 Fasteignamarkaðurinn ehf. sími 570-4500 kynnir stórglæsilegt 354,2 fermetra parhús á þremur hæðum á virkilega fallegri og nýlega endurnýjaðri afgirtri lóð á eftirsóttum stað við Grænumýri á Seltjarnarnesi. Húsið hefur nýlega verið mikið endurnýjað, meðal annars eldhúsinn- rétting og tæki, bæði baðherbergi og gestasalerni, rafmagnstafla, neyslu- vatnslagnir og forhitari, lóð öll endurnýjuð. Loftræstikerfi er í stórum hluta hússins, t.d. baðherbergjum, fataherbergi, geymslum og víðar. Gólfhiti er í baðherbergjum, forstofu og eldhúsi. Parket á gólfum hússins er allt gegnheilt stafaparket úr eik og er lagt í fiskibeinamynstur á miðhæð hússins. Aðalhæð hússins skiptist þannig: Komið er inn í flísalagða forstofu með miklum og vönduðum fataskápum á tveimur veggjum. Gestasalerni er við forstofu með vönduðum tækjum. Samliggjandi rúmgóðar stofur með nýjum glæsilegum arni eftir Jón Eldon. Opnað hefur verið úr stofum í sólskála með útgengi á lóð. Eldhúsið er rúmgott með fallegum sérsmíð- uðum innréttingum og vönduðum innbyggðum tækjum, tveimur ofnum og innbyggðri uppþvottavél frá Miele, útgangur á verönd til austurs með skjólveggjum. Á efri hæð er sjónvarpshol. (mögulegt að útbúa svefnherbergi í því). Stórt hjónaherbergi, baðher- bergi er stórt, bæði með baðkari og stórum sturtuklefa með gler- veggjum. Þvottaherbergi er flísalagt og með innréttingum. Úr þvottaher- bergi er útgangur á svalir til vesturs. Tvö rúmgóð svefnherbergi, annað með sérsmíðuðum nýlegum fata- skápum. Á jarðhæð eru tvö stór nýteppa- lögð svefnherbergi með góðum gluggum. Fataherbergi, flísalagt og með miklum fataskápum. Baðher- bergi, stór flísalagður sturtuklefi með glervegg og vandaðar innrétt- ingar. Tvær geymslur í kjallara Skjólgóð viðarverönd og stór hellulögð verönd með góðri lýsingu. Bílskúrinn með verulega aukinni lofthæð. Gluggar, göngudyr út á baklóð, rafmagn, hiti og rennandi vatn eru í bílskúr. Innkeyrsla og stéttir framan við húsið eru með hitalögnum undir. Hér er um að ræða verulega vandað hús á frábærum stað á Sel- tjarnarnesi. Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali, í síma 570-4500 eða á netfanginu gtj@fastmark.is Glæsilegt hús á Seltjarnarnesi Glæsilegt og nýlega endurnýjað einbýli á Seltjarnarnesi er til sölu. Landmark leiðir þig heim!Sími 512 4900 • landmark.isHlíðasmári 2, 201 Kópavogur. Sigurður Samúelsson Lögg. fast. og eigandi sigurdur@landmark.is sími 896 2312 Þórarinn Thorarensen Sölustjóri og eigandi th@landmark.is sími 770 0309 Þórey Ólafsdóttir Lögg. fast. og eigandi thorey@landmark.is sími 663 2300 Andri Sigurðsson Lögg. fast. og eigandi andri@landmark.is sími 690 3111 Sveinn Eyland Lögg. fast og eigandi sveinn@landmark.is sími 690 0820 Kristján Ólafsson Löggiltur fast. kol@landmark.is sími 512 4900 Nadia Katrín Banine Löggiltur fast. nadia@landmark.is sími 692 5002 Ingibjörg A. Jónsdóttir Löggiltur fast. inga@landmark.is sími 897 6717 Eggert Maríuson Löggiltur fast. eggert@landmark.is sími 690 1472 Jóhanna Gustavsdóttir Löggiltur fast. johanna@landmark.is sími 698 9470 Helga Snorradóttir Skrifstofa/skjalavinnsla landmark@landmark.is sími 512 4900 Guðrún D. Lúðvíksdóttir Skrifstofa/ í námi til lögg. gudrun@landmark.is sími 512 4900 Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir Löggiltur fast. asdis@landmark.is sími 895 7784 Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is EITTERVÍST:ALNO Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is EITTERVÍST:ALNO Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2 Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is ERT ÞÚ Í SÖLUHUGLEIÐINGUM? -örugg fasteignaviðskipti Við erum til þjónustu reiðubúin Elín Viðarsdóttir Löggiltur fasteignasali Björn Þorri Viktorsson hrl. Löggiltur fasteigna- og skipasali Jóhann Örn B. Benediktsson Skrifstofustjóri MIÐBORG FASTEIGNASALA - SUNDAGARÐAR 2 - 104 REYKJAVÍK - SÍMI: 533 4800 www.midborg.is Job.is Þú finnur draumastarfið á 1 4 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :5 4 F B 0 4 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 0 3 -2 5 7 0 2 2 0 3 -2 4 3 4 2 2 0 3 -2 2 F 8 2 2 0 3 -2 1 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 0 s _ 1 3 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.