Fréttablaðið - 14.01.2019, Side 29
Enska úrvalsdeildin
Úrslit 22. umferðar 2018-19
West Ham - Arsenal 1-0
1-0 Declan Rice (48.).
Brighton - Liverpool 0-1
0-1 Mohamed Salah (vítaspyrna) (50.).
Burnley - Fulham 2-1
0-1 André Schürrle (2.), 1-1 Joe Bryan (sjálfs-
mark) (20.), 2-1 Denis Odoi (sjálfsmark) (23.).
Cardiff - Huddersfield 0-0
Crystal Palace - Watford 1-2
0-1 Craig Cathcart (sjálfsmark) (38.), 1-1 Craig
Cathcart (67.), 1-2 Tom Cleverley (74.).
Leicester - Southampton 1-2
0-1 James Ward-Prowse (vítaspyrna) (11.), 0-2
Shane Long (45.), 1-2 Wilfred Ndidi (58.).
Rautt spjald: Yann Valery (Southampton)(45.).
Chelsea - Newcastle 2-1
1-0 Pedro Rodriguez (8.), 1-1 Ciaran Clark (40.),
Willian (57.).
Everton - Bournemouth 2-0
1-0 Kurt Zouma (61.), Dominic Calvert-Lewin
(90.).
Tottenham - Man.Utd 0-1
0-1 Marcus Rashford (44.)
Leikmaður helgarinnar
Spænski markvörðurinn David De Gea varði eins og ber-
serkur þegar Manchester United hélt lífi í von sinni um
að leika í Meistaradeild Evrópu á næsta keppnistímabili
með 1-0 sigri á Tottenham Hotspur.
De Gea stendur á milli stanganna á bak við hripleka
vörn Manchester United og það er alla jafna nóg
að gera hjá honum í leikjum liðsins. Slíkt var svo
sannarlega uppi á teningnum í þessum leik, en
Spánverjinn fékk á sig 11 skot í leiknum.
Hann var vandanum vaxinn í öll skiptin og
varði oft og tíðum vel og nokkur skotanna voru
úr fínum færum. Spænski landsliðsmarkvörð-
urinn verður samningslaus hjá Manchester
United eftir næstu leiktíð og róa forráðamann
félagsins að því öllum árum að festa hann til
framtíðar á Old Trafford.
Manchester United hefur nú haldið marki
sínu hreinu í tveimur deildarleikjum í röð og er
það ekki síst David De Gea að þakka að svo hefur
farið.
Stóru málin
eftir helgina í enska boltanum
Stærstu úrslitin
Burnley nældi sér í þrjú
gríðarlega mikilvæg
stig í fallbaráttunni
með því að leggja
Fulham keppinauta
þeirra í baráttunni um að forðast
fallið úr deildinni með tveimur
mörkum gegn einu. Burnley
komst úr fallsæti með þessum
sigri og skildi Fulham eftir í
slæmum málum.
Hvað kom á óvart?
Southampton tryggði
sér sömuleiðis þrjú
stig í baráttu sinni um
að vera ekki á meðal
þremur neðstu
liðanna þegar vora tekur. Sout-
hampton vann Leicester City sem
hefur mistekist að ná stöðugleika
á keppnistímabilinu.
Mestu vonbrigðin
Aron Einar Gunnars-
son og félagar hans
hjá Cardiff City gerðu
markalaust jafntefli
við lánlaust lið Hudd-
ersfield Town sem situr á botni
deildarinnar.
Okkar menn
Íslendingar í efstu tveimur
deildunum í Englandi
Everton
Gylfi Þór Sigurðsson
Lék allan leikinn sem
sóknartengiliður Everton
sem vann Bournemouth
með tveimur mörkum gegn engu.
Cardiff City
Aron Einar Gunnarsson
Spilaði allan leikinn inni
á miðsvæðinu hjá Cardiff
City þegar liðið komst upp
úr fallsæti með markalausu jafntefli
gegn Huddersfield Town.
Reading
Jón Daði Böðvarsson
Spilaði sinn fyrsta leik eftir
að hafa brotið bein í baki
í byrjun nóvember þegar
Reading hafði betur, 2-0,
gegn Nottingham Forest.
Aston Villa
Birkir Bjarnason
Lék rúman klukkutíma
inni á miðjunni hjá Aston
Villa sem fékk 3-0 skell
gegn Wigan Athletic.
Burnley
Jóhann Berg Guðm.
Var fjarri góðu gamni hjá
Burnley þegar liðið vann
mikilvægan sigur í fall-
baráttuslag gegn Fulham.
Staðan
FÉLAG L U J T MÖRK S
Liverpool 22 18 3 1 50-10 57
Man. City 21 16 2 3 56-17 50
Tottenham 22 16 0 6 46-22 47
Chelsea 22 14 5 3 40-17 47
Arsenal 22 12 5 5 46-32 41
Man. Utd. 22 12 5 5 44-32 41
Watford 22 9 5 8 32-32 32
Leicester 22 9 4 9 26-25 31
West Ham 22 9 4 9 30-32 31
Everton 22 8 6 8 33-31 30
Wolves 21 8 5 8 23-25 29
B’mouth 22 8 3 11 31-42 27
Brighton 22 7 5 10 24-30 26
C. Palace 22 6 4 12 20-28 22
Burnley 22 6 3 13 23-43 21
S’hampton 22 4 7 11 23-39 19
Cardiff 22 5 4 13 19-41 19
Newcastle 22 4 6 12 16-31 18
Fulham 22 3 5 14 10-49 14
H’field 22 2 5 15 13-37 11
Ole Gunnar Solskjær fagnar hér sigri Manchester United gegn Tottenham Hotspur í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla í gær. NORDICPHOTOS/GETTY
ENSKI BOLTINN Ole Gunnar Solskjær
hefur fengið algjöra óskabyrjun í
starfi sem knattspyrnustjóri Manc-
hester United. Hann tók við þar
sem leikmenn voru bæði andlega
og líkamlega þreyttir og lítið sem
ekkert gekk upp á knattspyrnuvell-
inum. Norðmaðurinn fékk þægi-
lega leikjadagskrá í fyrstu leikjum
sínum við stjórnvölinn.
Honum var tíðrætt um það að
Ole Gunnar stóðst stóra prófið
Manchester United var komið í algjört þrot undir stjórn Portúgalans José Mourinho. Þá mætti Ole Gunnar
Solskjær í brúna hjá félaginu skömmu fyrir jól. Liðið spilar nú bæði skemmtilegri og árangursríkari bolta.
hann vildi endurvekja gömlu gild-
in um blússandi sóknarleik og
skemmtilega knattspyrnu hjá
Manchester United á meðan hann
væri á svæðinu. Það hefur hann svo
sannarlega staðið við og undir hans
stjórn hefur liðið skorað 15 mörk
í fimm deildarleikjum sem er þrjú
mörk að meðaltali í leik. Manches-
ter United hafði hins vegar skorað
tæplega tvö mörk í leik í deildinni í
vetur undir stjórn Mourinho.
Solskjær mætti liðum sem eru
í neðstu sætum deildarinnar í
fyrstu fjórum leikjum sínum, en í
gær fékk hann fyrsta stóra prófið
þar sem mótherjinn var Tottenham
Hotspur. Í stað þess að spila þéttan
varnarleik og treysta á skyndisókn-
ir eins og Portúgalinn gerði gjarn-
an á móti stóru liðunum blés gamli
framherjinn til sóknar. Manchester
United hélt boltanum vel innan
liðsins í þessum leik og átti margar
laglegar sóknir.
Paul Pogba sem náði sjaldan að
láta ljós sitt skína undir lok stjórn-
artíðar Mourinho var arkitektinn
að mörgum sóknum Manchester
United í leiknum. Það var einmitt
franski landsliðsmaðurinn sem átti
glæsilega stoðsendingu á Marcus
Rashford sem skoraði sigurmarkið
í leiknum. Enski landsliðsframherj-
inn hefur nú skorað í þremur deild-
arleikjum í röð, en það er í fyrsta
skipti sem hann nær að gera það.
Hann náði ekki að sýna stöðugleika
í spilamennsku sinni undir stjórn
Mourinho, en varnarskylda hans
var mun meiri þegar Portúgalinn
réð ríkjum.
Pogba hefur komið nærri helm-
ingi þeirra marka sem liðið hefur
skorað undir stjórn Solskjærs.
Skorað fjögur sjálfur og lagt upp
fjögur önnur fyrir samherja sína.
Hinum megin á vellinum, það er
að segja í varnarleik Manchester
United, var liðið í vandræðum
undir stjórn Mourinho, en liðið
hélt einungis hreinu í tveimur af
fyrstu 20 deildarleikjum sínum.
Nú hefur liðið spilað tvo deildar-
leiki án þess að leka inn marki, en
að þessu sinni var það ekki þéttur
varnarleikur sem var lykillinn að
því heldur fyrst og fremst frammi-
staða spænska markvarðarins
Davids De Gea sem varði öll þau
11 skot sem rötuðu á mark Manc-
hester United í leiknum.
Þessi úrslit þýða að Manchester
United er nú með jafn mörg stig
og Arsenal í fimmta til sjötta sæti
deildarinnar og sæti í Meistaradeild
Evrópu á næstu leiktíð sem var fjar-
lægur möguleiki fyrir tæpum mán-
uði er nú innan seilingar. Manc-
hester United er sex stigum á eftir
Chelsea sem er í fjórða sætinu sem
er neðsta sæti sem veitir þátttöku-
rétt í Meistaradeildinni.
Solskjær ritaði nafn sitt á tvo
staði í sögubók Manchester Uni-
ted með þessum sigri, en sex sigur-
leikir hans eru besta byrjun knatt-
spyrnustjóra í sögu félagsins. Þá
hefur hann haft betur í fyrstu fimm
deildarleikjum sínum við stjórn-
völinn, en þar með jafnaði hann
árangur sir Matts Busby í þeim
efnum.
hjorvaro@frettabladid.is
Manchester United hefur
haft betur í öllum þeim sex
leikjum sem Ole Gunnar
Solskjær hefur stýrt. Sæti í
Meistaradeild Evrópu er nú
raunhæfur möguleiki.
S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13M Á N U D A G U R 1 4 . J A N Ú A R 2 0 1 9
1
4
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:5
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
0
3
-0
2
E
0
2
2
0
3
-0
1
A
4
2
2
0
3
-0
0
6
8
2
2
0
2
-F
F
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
1
3
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K