Fréttablaðið - 14.01.2019, Side 30
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Sigurðsson
svæfingalæknir,
sem lést laugardaginn 29. desember,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju
þriðjudaginn 15. janúar kl. 15.
Ásdís Magnúsdóttir
Sigurður Örn Jónsson Sigríður Oddný Guðjónsdóttir
Þorbjörg Jónsdóttir Sæþór Ólafsson
Hermann Páll Jónsson Éva Tóth
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Helga S. Ingólfsdóttir
Sléttuvegi 21, Reykjavík,
lést 7. janúar sl.
Minningarathöfn verður í ríkissal
Votta Jehóva, Hraunbæ 113,
þriðjudaginn 15. janúar kl. 14.
Jón Ingólfur Hermannsson
Rannveig Hermannsdóttir Ómar G. Jónsson
Magnús Dan Ómarsson
Helgi Hrafn Ómarsson
Merkisatburðir
1907 Rúmlega þúsund manns láta lífið í jarðskjálfta í Kings-
ton, höfuðborg Jamaíku.
1918 Læknafélag Íslands stofnað.
1926 Rúrik Haraldsson leikari í heiminn borinn.
1943 Franklin D. Roosevelt
verður fyrsti Bandaríkjaforset-
inn til að ferðast með flugvél
meðan hann gegnir embætti.
Hann flaug frá Miami til
Marokkó.
1952 Teitur Þórðarson, fyrr-
verandi atvinnu- og landsliðs-
maður í knattspyrnu og síðar
þjálfari, fæddist á þessum
degi og fagnar því 67 ára af-
mæli sínu í dag.
1953 Josip Tito sver emb-
ættiseið sem fyrsti forseti
Júgóslavíu.
1969 Sprenging verður um
borð í bandaríska flugmóður-
skipinu USS Enterprise þegar
það er statt nálægt Havaí.
1969 Dave Grohl, forsprakki
Foo Fighters og fyrrverandi
trommari Nirvana, fæddist
á þessum degi og fagnar því
fimmtugsafmæli.
1976 Ólafur Jóhann Sigurðs-
son hlýtur bókmenntaverð-
laun Norðurlandaráðs fyrstur
Íslendinga.
1984 Þorlákur helgi Þórhalls-
son biskup er lýstur verndar-
dýrlingur Íslendinga af Jóhannesi Páli páfa.
1992 Hitamet sett fyrir janúarmánuð þegar hitinn mælist
18,8 gráður á Dalatanga.
2004 Þjóðþing Georgíu ákveður að endurvekja fimm
krossa fánann sem var fáni konungsríkisins Georgíu til 1490.
Þann 14. janúar 1972 lést Friðrik 9.
Danakonungur 72 ára að aldri en hann
hafði verið konungur frá 1947. Margrét
Alexandrína Þórhildur Ingrid fæddist
1940 og var elst þriggja dætra hans og
Ingrid prinsessu af Svíþjóð.
Hún varð krónprinsessa árið 1953
þegar dönsku stjórnarskránni var
breytt þannig að konur gætu líka erft
krúnuna. Þegar Margrét tók við völdum
varð hún fyrsta drottning Danmerkur
síðan 1412 sem var á dögum Kalmar-
sambandsins. Þá varð hún fyrsti þjóð-
höfðingi landsins sem hvorki heitir
Friðrik né Kristján síðan 1513.
Margrét Þórhildur giftist Henri de
Laborde de Monpezat frá Frakklandi
árið 1967. Henri, sem var kallaður
Hinrik prins, lést í febrúar á síðasta ári.
Þau eignuðust tvo syni, krónprinsinn
Friðrik og prins Jóakim. Barnabörnin
eru orðin átta.
Þ ETTA G E R Ð I ST : 1 4 . JA N ÚA R 1 9 7 2
Margrét Þórhildur verður drottning
Margrét Þórhildur Danadrottning á 100 ára fullveldisafmæli Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þann 14. janúar ár hvert halda hindúar upp á að daginn tekur að lengja á norðurhveli jarðar og veturinn er kvaddur. Hátíðin er þekkt-
ust undir nafninu Makar Sankranti. Mismunandi er eftir landsvæðum hvernig hátíðarhöld fara fram. Litríkir flugdrekar setja víða
svip sinn á daginn þar sem margir taka þátt í flugdrekaleikjum. Þessi maður fer vel undirbúinn inn í hátíðina. NORDICPHOTOS/GETTY
Litríkir flugdrekar á Makar Sankranti
1 4 . J A N Ú A R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
1
4
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:5
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
0
2
-F
D
F
0
2
2
0
2
-F
C
B
4
2
2
0
2
-F
B
7
8
2
2
0
2
-F
A
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
1
3
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K