Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.01.2019, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 18.01.2019, Qupperneq 6
lokadagar útsölu útsölulok 20. jan. 30 daga skilaréttur Við bjóðum skilarétt á öllum gjöfum til 24. janúar. Nánar á elko.is. Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is lakaðu á eð lö g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, ki pir og spe na g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartslá tur g Kvíði g Streita g Pi ringur Einke i agnesí skorts i t.i HEILBRIGÐISMÁL „Við sjáum þetta kerfi ekki virka,“ segir Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri Rangár- þings ytra, þar sem mikil ónægja er með breytt fyrirkomulag á sjúkra- flutningum á vegum Heilbrigðis- stofnunar Suðurlands. Að sögn sveitarstjórans hefur bækistöð sjúkraflutninga verið í húsi Rauða krossins á Hvolsvelli og þar hafi verið mönnuð vakt. Nú séu sjúkraflutningamenn aðeins á bak- vakt eftir klukkan sjö á kvöldin og eru þá sérstaklega ræstir út í útköll. „Síðan á að fara að keyra bakvakt- ir með starfsmönnum sem eru ekki fullmenntaðir,“ segir Anton Kári. Hann sé ekki að gagnrýna það fólk sem sinni bakvöktunum. „En þarna fáum við ekki sömu fagmenntunina á bílana. Þetta er ekki eins reynslu- mikið fólk.“ Anton Kári segir að í fyrra hafi verið áætlaðar 300 milljónir króna í sjúkraflutninga í Rangárvallasýslu og á Selfosssvæðinu. Kostnaðurinn hafi hins vegar orðið 380 milljónir. Framlagið fyrir þetta ár hafi síðan verið aukið um 68 milljónir til sjúkraflutninga í Rangárvallasýslu einni. „Þess vegna finnst okkur á allan máta óeðlilegt að það sé skorin niður þjónusta hér í Rangárþingi en hvergi annars staðar innan umdæmisins. Það eru bara teknir þessir peningar úr Rangárvalla- sýslu og þeir renna inn í hítina,“ segir Anton Kári. Skerðingin sé fólki í Rangárþingi óskiljanleg og menn harmi hana. Anton segir sveitarstjórnarmenn í Rangárþingi einnig ósátta við sam- skiptaleysi HSU við sveitarstjórnina og stjórnsýsluna. „Fyrstu fréttirnar sem við fengum af þessum breyting- um var þegar fréttamaður hringdi í mig á gamlársdag til að óska eftir upplýsingum,“ lýsir hann. Ekkert breyttist, að sögn Antons Kára, með fundi sveitarstjórnar- manna með Herdísi Gunnarsdóttur, forstjóra HSU, á þriðjudag. „Hún leggur þetta upp allt öðru vísi og segir að þessir peningar séu vissu- lega notaðir en að það vanti bara meira. En við teljum að það eigi ekki að bitna á öryggi íbúa og ferða- manna hér í sýslunni,“ segir hann. Þá segir Anton Kári Rauða kross- inn hafa boðist til að gera breytingar á húsnæðinu á Hvolsvelli eftir for- skrift frá HSU og sveitarfélagið boðið fram heilt íbúðarhús sem aðstöðu fyrir þá sem eru á vakt. „Það var ekkert haft samband við okkur meira, en svo fréttum við af því bara úti í bæ fyrir nokkrum dögum að það sé búið að færa sjúkrabílana út á Hellu,“ segir sveit- arstjórinn. Um þetta muni mikið í viðbragðstíma. „Bílarnir hér voru náttúrlega mikill stuðningur við þá fyrir austan, við Vík og Klaustur þar sem alvarlegustu slysin hafa orðið undanfarið. Okkur finnst þetta galið.“ gar@frettabladid.is Fréttu bara úti í bæ af brotthvarfi sjúkrabíla Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri Rangárþings eystra, segir galið að hætta viðveru sjúkrabíla á Hvolsvelli um leið og ríkið setji aukið fé í sjúkraflutninga í sýslunni. Fólk með minni menntun verði á bakvöktum á kvöldin og um nætur. Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra, við hús Rauða krossins á Hvolsvelli þar sem engan sjúkrabíl er að finna lengur þrátt fyrir meira fé í málaflokkinn. „Okkur finnst þetta galið,“ segir hann. MYND/MARGRÉT JÓNA ÍSÓLFSDÓTTIR Það var ekkert haft samband við okkur meira, en svo fréttum við af því bara úti í bæ fyrir nokkr- um dögum að það sé búið að færa sjúkrabílana út á Hellu. Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra LÖGREGLUMÁL Tilkynnt var um 67 innbrot á heimili á höfuðborgar- svæðinu í desember og fjölgaði tilkynningum um slík brot tals- vert ef miðað er við fjölda síðustu sex og tólf mánaða á undan. Þetta kemur fram í afbrotatölfræði lögreglustjórans á höfuðborgar- svæðinu. Tilkynningum um kynferðis- brot fjölgaði einnig nokkuð í desember miðað við síðustu sex og tólf mánuði þar á undan en alls bárust 26 tilkynningar um slík brot. Alls bárust 684 tilkynningar um hegningarlagabrot í desember og fækkaði tilkynningum milli mán- aða. Tilkynningum um þjófnað fækkaði verulega ef miðað er við síðustu sex mánuði á undan og einnig fækkaði tilkynningum um eignaspjöll. Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna jókst talsvert á milli mánaða en alls voru þau brot um 160 talsins. Ölvun við akstur jókst einnig á milli mánaða og einnig ef miðað er við síðustu 12 mánuði á undan. – smj Fleiri innbrot en minna um þjófnað Alls bárust 26 tilkynningar um kynferðisbrot í desember. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA STJÓRNSÝSLA Afgreiðslu tæplega 84 prósenta kvartana sem bárust umboðsmanni Alþingis á síðasta ári var lokið fyrir áramót. Liðlega 60 pró- sentum lokið á innan við mánuði. Alls barst umboðsmanni 381 kvörtun á síðasta ári. Stofnað var til þriggja frumkvæðismála. Er það nánast sami málafjöldi og árið áður. Í lok síðasta árs voru 72 mál til með- ferðar, tæplega fjórðungi minna en í árslok 2017. Um áramót hafði afgreiðslu allra kvartana nema tveggja frá 2017 verið lokið. Í þeim tilfellum bárust svör frá stjórnvöldum seint. Á síðasta ári bar nokkuð á því að dráttur á svörum frá stjórnvöldum leiddi til tafa á afgreiðslu mála. – sar Um 60 prósentum mála lokið á innan við mánuði Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis. Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna jókst talsvert á milli mánaða en alls voru þau brot um 160. 1 8 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 8 -0 1 -2 0 1 9 0 5 :0 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 1 1 -4 1 3 8 2 2 1 1 -3 F F C 2 2 1 1 -3 E C 0 2 2 1 1 -3 D 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.