Fréttablaðið - 18.01.2019, Page 11
Í DAG
Þórlindur
Kjartansson
hannaður af
Kristian Sofus Hansen &
Tommy Hyldahl
ELEPHANT
BORÐSTÓLL
Ef ég gæti talað við dýr þá myndi ég einna helst vilja spyrja þau um alls konar tilvistar-
legar spurningar sem sækja á okkur
mennina. Tökum sem dæmi kött
sem liggur makindalega og letilega
út við gluggann. „Heyrðu, köttur—
ertu að hugsa innra með þér að þú
ættir nú eiginlega að drífa þig eitt-
hvað út og hreyfa þig? Skammastu
þín kannski örlítið fyrir að hanga
inni og láta stjana við þig á meðan
aðrir kettir þurfa að veiða sér til
matar, vara sig á hættum og finna
sér á hverri nóttu nýjan og öruggan
næturstað?“
Svona myndi ég nefnilega hugsa
í sporum kattarins: „Æ, ég ætti nú
frekar að fara út að slá blettinn,
moka snjóinn, skipta um peru, fara
í ræktina, skila bókum á bókasafn,“
og svo framvegis og svo framvegis.
En hvað ætli kötturinn myndi segja?
Mig grunar að svarið yrði eitthvað á
þessa leið: „Heyrðu, gaur, hvað ertu
að meina? Ég skil ekki spurninguna?
Hugsa um hvort ég ætti að vera að
gera eitthvað annað en ég er að gera?
Hvernig á það að vera hægt? Hvernig
gæti ég verið úti á sama tíma og ég
er hér inni að láta fara vel um mig? …
Láttu mig svo vera. Ég er upptekinn.“
Tilgangur hundalífsins
Það má hugsa sér stærri spurning-
ar. Ef ég hitti hund á vappi myndi
ég kannski spyrja hann stærstu
spurningarinnar þeirra allra:
„Hundur! Hver er tilgangur
lífsins?“
„Gaur! Sérðu það ekki?“
„Hvernig á ég að sjá það? Segðu
mér, hundur, hver er tilgangur
lífsins? Ég get beðið þangað til þú
ert búinn að míga utan í þennan
ljósastaur.“
„En það er tilgangur lífsins?“
„Er tilgangur lífsins að míga utan
í ljósastaur?“
„Að sjálfsögðu er það tilgangur
lífsins.“
„En hver er tilgangurinn með
því?“
„Að merkja svæði, það vita allir.“
„Þannig að tilgangur lífsins er að
helga sér svæði, er það rétt skilið?“
„Nei. Tilgangur lífsins er að míga
utan í þennan ljósastaur.“
„En nú ertu búinn að míga utan
í þennan ljósastaur. Finnst þér
þá lífið ekki hafa neinn tilgang
lengur?“
„Gaur, tilgangur lífsins er ekki
lengur að míga utan í ljósastaur
heldur að leita að nýjum ljósastaur
til þess að míga utan í … Láttu mig
svo vera. Ég er upptekinn.“
Þunglyndir hundar
Fyrir nokkru var ég á gangi í
bandarískri stórborg og nálægt
mér voru karl og kona hvort að
viðra sinn hundinn. Ég komst ekki
hjá því að heyra á tal þeirra—og
ég hefði heldur ekki viljað missa af
því. Annar hundaeigandinn spurði
hinn hvort „þetta“ hefði virkað.
Og „jú, jú“ hundurinn var víst allt
annar eftir „þetta“ og hinn hunda-
eigandinn kinkaði ábúðarfullur
kolli og sagði að þetta væri alveg í
takti við sína eigin reynslu af því
að setja hundinn á Prozac. Hann
væri bara allur miklu glaðlegri og
meðfærilegri.
Það er nefnilega þannig með
dýrin að þrátt fyrir takmarkaða
kunnáttu þeirra í heimspeki, enga
notkun á samfélagsmiðlum og
engar áhyggjur af frammistöðu í
vinnu, eldhúsi eða svefnherbergi
þá geta þau víst orðið þunglynd.
Þetta hrjáir víst einkum dýr sem
eru í einhvers konar haldi og hafa
ónóg tækifæri til þess að sinna
eðlishvötum sínum. Það kann að
hljóma sem góður díll að þurfa
aldrei að kvíða því hvaðan næsta
máltíð kemur, en ef þú mátt
ekki pissa utan í ljósastaura þá …
„what’s the point of it all?“
Lífslykillinn
Og þótt enginn hafi borgað mér
fyrir að básúna út kenningu mína
um lykilinn að lífshamingjunni—
og án þess að ég hafi í raun nokkra
einustu hugmynd um hver sá lykill
sé—þá held ég að mannfólkinu,
alveg eins og dýrunum, líði einna
best þegar við höfum eitthvað fyrir
stafni, eitthvað sem við höfum
ástríðu fyrir.
Einu sinni var tilgangur lífsins
hjá mér að æfa fótbolta. Einu sinni
að vita allt mögulegt um banda-
ríska körfuboltamenn og um
hríð verða góður í að bakka inn í
þröng bílastæði. Tilgangurinn er
æði misjafn fyrir okkur, stundum
mikilfenglegur, stundum smávægi-
legur; stundum opinber en oft per-
sónulegur; stundum náum við að
tökum á honum en oftast klórum
við bara í bakkann.
Um þetta hafa ekki bara fjallað
sálfræðingar, heimspekingar og
áhrifavaldar heldur skáld, rithöf-
undar og tónlistarfólk. Söguhetjan
í hinni stórkostlegu bók Ör, eftir
Auði Övu, finnur til að mynda
tilgang þegar færni hans nýtist
öðrum. Af hlutverkinu sprettur til-
gangur. Með tilganginum glæðist
lífsviljinn.
Þess vegna er svarið stundum:
„þú ert nóg“; stundum „þú ert of
mikið“; stundum „þú getur gert
betur“,—en mjög oft „ég þarf á þér
að halda“.
Hvorki keypt né seld
Engin svör eru altæk þegar mann-
legar tilfinningar eru annars vegar.
En hvort sem maður ætlar að
hugsa um sjálfan sig, börnin sín,
vini sína eða fjölskyldu—þá gerir
venjulegt fólk eflaust einna mest
gagn með því að leyfa ástríðunni,
ástinni og metnaðinum að
blómstra hvar sem mögulegt er.
Á meðan ég skrifa þennan pistil
finn ég í honum tilgang lífsins. Eitt
af svörunum mínum getur falist í
að skrifa—á meðan á því stendur
dugir það, en bara um hríð og bara
mér einum. Allir aðrir þurfa að
finna sín eigin svör og það mun
ég sjálfur líka þurfa að gera þegar
þessu verkefni er lokið og pistill-
inn sendur í umbrot. Þá þarf ég að
finna næsta staur.
En svörin eru ekki einföld fyrr
en maður telur sig hafa fundið
þau, og svo týnir maður þeim
aftur—og þau eru aldrei endanleg
og þau eiga aldrei við alla. Það
þjónar litlum tilgangi að reyna að
þrýsta sínum eigin svörum, sinni
ástríðu eða sínum metnaði upp á
aðra. Eins og ástin verða slík svör
hvorki keypt né seld—en þau eru
þarna einhvers staðar, vonandi
fyrir okkur öll. Mannkynið hefur
uppgötvað þau milljón sinnum og
við höfum öll glatað þeim þúsund
sinnum.
Það er þess vegna raunveruleg
ástæða til að varast þá trú að
hægt sé að kaupa slík svör dýrum
dómum af sannfærandi sölufólki
þótt margt megi læra af öllu hugs-
andi fólki bæði ungu sem öldnu.
Oftar finnast þau nefnilega alveg
ókeypis í eldgömlum tuggum, og
jafnvel hjá talandi hundum og
malandi köttum í gluggum.
Tilgang lífsins er að finna í þessum pistli
Það er þess vegna raunveru-
leg ástæða til að varast þá
trú að hægt sé að kaupa slík
svör dýrum dómum af sann-
færandi sölufólki þótt margt
megi læra af öllu hugsandi
fólki bæði ungu sem öldnu.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11F Ö S T U D A G U R 1 8 . J A N Ú A R 2 0 1 9
1
8
-0
1
-2
0
1
9
0
5
:0
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
1
1
-1
9
B
8
2
2
1
1
-1
8
7
C
2
2
1
1
-1
7
4
0
2
2
1
1
-1
6
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K