Stjarnan - 01.12.1937, Qupperneq 4
IOO
STJARNAN
, Þetta er lögmál Krists, 10 boðorðin svo skýr
og greinileg að hver maður sem les þau og
athugar getur séð sjálfan sig sem syndara.
Jesús úthelti blóði sínu til að afplána synd-
ir vorar. “Meðan vér enn vorum syndarar, er
Kristur fyrir oss dáinn. En þótt Jesús borgaÖi
skuldina og gjörði J>að mögulegt fyrir alla að
frelsast, þá er hans mikla kærleiksfórn ekki
meðtekin af öllum, því sumir menn hafna frels-
uninni. Páll talar um fagnaðarerindið með
þessum orðum: “Með því að það var Guð,
sem í Kristi sætti heiminn við sig, er hann til-
reiknaði þeim ekki yfirtroðslur þeirra, og fól
oss á hendur orð sáttagjörðarinnar. Vér erum
því erindrekar í Krists stað, eins og það væri
Guð, sem áminti fyrir oss.” 2. Kor. 5 :ig. 20.
Sumir menn verða ekki sættir við Guð, af
því þeir hafna sáttagjörðinni. Menn eru ekki
frelsaðir frá yfirtroðslu Guðs boðorða af því
þeir vilja ekki skilja við syndina. Þeir elska
meira syndina heldur en frelsarans, sem dó
fyrir þá. Heilagur andi knýr þá og hvetur til
þigigja Guðs náðarboð, en þeir eru of dramib-
látir til að viðurkenna synd sína, eða of sam-
grónir henni til að geta losast við hana. Þeir
kjósa heldur að lifa í uppreisn gegn Guði,
heldur en að breyta stefnu sinni, svo þeir geti
notið samfélags Guðs og Krists og allra hinna
heilögu. Jesús lagði fram lausnargjaldið svo
þeir mættu verða sættir við Guð, en með kæru-
leysi og forhertu hjarta neita margir að þiggja
Guðs framboðnu náð, og þess vegna eru þeir
ekki frelsaðir.
C. P. B.
<1
Einkennilegur draumur
Trúaður maður, sem hafði verzlun í stórri
borg, bað daglega til Guðs eitthvað þessu líkt:
“Drottinn minn, gefðu mér dýpri og innilegri
kristilega reynslu.”
Svo dreymdi hann eina nótt að morgun
væri kominn, og rétt í því að fólkið ætlaði að
neyta morgunverðar opnuðust dyrnar og Jesús
kom inn. Stóll var fenginn og hann settist.
Börnunum leizt vel á Jesúm, fóru til hans og
klifruðust upp í fangið á honum.
“Börn,” kallaði faðirinn alvarlega, “komið
þið hingað, verið þið ekki að ónáða Jesúm.”
En Jesús svaraði: Lofið börnunum að korna
til mán, hindrið þau ekki. Mér þótti vænt um
börnin meðan eg var hér á jörðunni og mér
þykir vænt um þau enn.”
Nú var Jesú boðið að setjast við borðið
með þeim. Eftir að maðurinn hafði lesið borð-
bæn spuri Jesús hann: “Ertu vanur að lesa
borðbæn?”
“Nei,” svaraði maðurinn. ,
“Hvers vegna gjörðir þú það þá í dag?”
spurði Jesús.
“Af því þú varst hér. Það leit ekki vel út
að láta ekkert þakklæti í ljósi í nærveru þinni.”
“Eg vildi þú fylgdir þeirri reglu á hverjum
morgni,” svaraði Jesús blíðlega.
Eftir morgunverð bjó maðurinn sig til að
fara ofan í búðina, og Jesús fylgdist með hon-
um. Á leiðinni spurði Jesús hann hvort hann
reykti aldrei. Maðurinn kannaðist við að hann
gjörði það. Hann sagðist vanalega reykja á
morgnana á leiðinni ofan í búðina.
“En hvers vegna gjörir þú það ekki í dag?”
spurði Jesús.
“Eg vildi ekki láta bóbaksreykinn leggja í
andlit þitt.”
“En þetta verð eg þó að hafa á hverjum
morgni,” svaraði Jesús.
Eftir að þer voru komnir inn í búðina kom
þangað maður ,sem blótaði voðalega. “Eg vil
ekki heyra shkt orðalag hér,” sagði kaupmað-
urinn.
“Hm. hvað gengur að þér? Ertu orðinn
heilagur ?” spurði maðurinn hæðnislega og gekk
út.
“Ertu vanur að líða fólki að blóta inni hjá
þér án þess að ávíta það ?” spurði Jesús. Mað-
urinn kannaðist við það.
“En hversvegna fanst þú að því við hann
í dag?”
“Af því þú varst hér. Eg vildi ekki láta
hann brúka ljót orð í návist þinni.” “Eg er hér
á hverjum degi,” svaraði Jesús.
Litlu seinna kom bankasjtórinn inn. Án
þess að veita Jesú eftirtekt sagði hann: “Viltu
græða peninga á auðveldan hátt? Ekkjan hér
niður frá þarf að selja eignina sína. Ef þú
leggur út 200 dali, þá skal eg leggja til 200 og
svo er annar maður sem hefir lofað að leggja
til 200 dali og fyrir þetta getum við fengið
eignina sem er að minsta kosti helmingi meira
virði.”
“Nei,” svaraði kaupmaðurinn stuttlega, “eg