Stjarnan - 01.10.1938, Síða 2

Stjarnan - 01.10.1938, Síða 2
82 STJARNAN frammi fyrir GuÖi og vorum fööur, þá Drott- inn vor Jesús Kristur kemur ásamt öllum hans heilögum.” I. Tess. 3:13. Það er*því meÖ Guðs hjálp sem maðurinn getur öðlast þessa dýrmætu reynslu, persónu- lega helgun, það er ekki fyrir vorar eigin til- raunir, yfirbótaverk, pílagrímsferðir eða neitt þess háttar, sem óvinur mannkynsins hefir reynt að táldraga menn með. Það er mögu- legt fyrir oss þrátt fyrir hina voðalegu spill- ingu syndarinnar að verða fullkomlega helgaðir. “Sjálfur friðarins Guð helgi yður algjörlega Hiö meát Hið mest áríðandi í heiminum er að þjóna Drotni trúlega og hlýða hans boðum. Þessum sannleika er haldið fram í Ritningunni: “Svo segir Drottinn: Sá vísi hrósi sér ekki af sinni vizku, sé sterki hrósi sér ekki af sínum styrk- leika, sá riki hrósi sér ekki af sínum ríkdómi, heldur hver sem vill hrósa sér, hann ihrósi sér af því hann þekkir mig og veit að eg er Drott- inn.” Jer. 9:22,23. Hér er nefnt þrent, sem heimurinn metur mikils, auður, vald og vizka. Þetta er það, sem menn sækjast mest eftir, og álit manns í annara augum er komið undir af- stöðu hans gagnvart þessu þrennu. Þeir menn, sem hafa miljónum yfir að ráða, þeir, sem standa fremst í iðnaði, verzlun og fjármálum, þeir, sem hafa áhrif á heimsverzl- unina eru álitnir stórmenni. Einnig þeir, sem völdin hafa og stjórna þúsundum eða miljón- um manna, er þeir skipa fyrir eftir vild sinni. Menn bera líka sérstaka virðingu fyrir þeim, sem fram yfir aðra hafa þekkingu til að bera, og þeim sem geta sveigt skoðanir fjöldans með mælsku sinni og þekkingu. En það er til, sem er miklu meira vert en alt þetta. Takið eftir Jer. 9:23. versinu, sem áður er tilfært. Að þekkja Guð er miklu meira vert heldur en að hafa auð, vald og vizku þessa heims. Guð metur ekki manninn eftir heimsins mælikvarða. Auður, upphefð og lærdómur auka ekki gildi vort í Guðs augum. “Eg lít ekki á það sem menn líta á, því menn líta á augun, en Drottinn lítur á hjartað.” I. Sam. 16:7. Fús hlýðni við Guð, hjarta, sem er hreint, ráðvant og sannleiks elskandi, það er sern Guð metur mikils. “Gildi mannsins fyrir Guði er komið undir þekkingu hans á Guði. “Maðurinn Jesús Krist- svo aliur yðar andi, sál og líkami varðveitist flekklaust í tilkomu Drottins vors Jesú Krists.” I. Tess. 5 ;23. Það verða þeir á jörðunni þegar Jesús kem- ur, um hverja sagt er: ‘Sá heilagi haldi áfram i heilagleikanum.” -Opinb. 22 :11. Þeir hafa öðlast það sem er eiginlegur tilgangur og mark- mið lífsins, það sem Adam ihafði fyrir fallið: samfélag við Guð á hirnnum. “Helgaður Drotni,” mun ljóma á andliti þeirra. “Þeir skulu sjá hans auglit og bera hans nafn á enn- um sér.” Opinb. 22 -.4. E. S. áríðandi ur.” I. Tim. 2:5. í honum sjáum vér mæli- kvarða Guðs fyrir mennina. Einn rithöfund- ur hefir sagt: “Sá maður, sem hefir mest af kærleika Krists í hjarta sínu, sá sem bezt og fullkomnast endurspeglar hans mynd, hann er í Guðs augum sá bezti, göfugasti og heiðurs- verðasti maður á jörðunni.” Á efsta degi mun það fyrst sjást hver hefir komist bezt áfram í lífinu; það verður ekki sá, sem hrúgað hefir saman mestu gulli eða verð- bréfum, ekki heldur sá, sem hefir mestar eignir í byggingum, járnbrautum eða konungsríkjum, ekki sá, sem hefir látið byggja sér hina feg- urstu höll. Það væri mögulegt að eiga alt þetta. en líta þó til baka á alveg mislukkað líf. Það er ekki sá, sem byggir stærstu mannvirkin, ekki sá, sem aflar sér heiðurs og frægðar í heimin- um, sem getur álitist hamingjumaður. Á hin- um mikla degi getur skeð að hann verði meðal hinna allra minstu. “|Reiðið yður ekki á of- beldið, og setjið ekki ónýta von til rangfeng- inna auðæfa; aukist yður auður þá snúið ekki hjartanu að honum.” Sálm. 62 :10. . Hver mun þá á efsta degi verða álitinn sæmdarmaður, hamingjusamur maður? “En hver má afbera þann dag er hann kemur?” Svar upp á þá spurningu höfum vér í Jes. 33 :I5- °S Sálm. 24:3-5. “Sá sem fram gengur réttvíslega og talar sannleika; sá sem hafnar þeim ávinningi, sem. fæst með ofríki, sá, sem bandar hendi sinni móti fégjöfum, sá, sem byrgir fyrir eyru sín svo hann skuli ekki heyra til þegar ráðin eru manndráp, sá, sem aftur- lykur augum sínum svo hann sjái ekki það sem ilt er.” “Hver þorir að stíga upp í Drottins borg, hver vogar að ganga fram á hans heilaga stað ? Sá, sem ihefir saklausar hendur og hreint hjarta, sá, sem ekki leggur hans nafn við lygar

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.