Stjarnan - 01.10.1938, Qupperneq 5

Stjarnan - 01.10.1938, Qupperneq 5
arflokki. Eg vildi þú gætir útvegaÖ mér bæk- en það er nóg til að sýna og sanna að sann- ur, sem segja frá öllum trúarskoðunum þeirra.” kristilegt líferni er eins og opin bók, sem sam- Vér vitum ekki hvern árangur þetta hefir, tíðarmenn vorir lesa. C. O. G. Ljósið við gluggann Það, sem hér er sagt frá fór fram í Alaska einn kaldan vetrardag. Svo .langt sem augað eygði sást ekkert annað en ís og snjór. Kuld- inn var tilfinnanlegur. Þar norður frá er langt á milli hinna litlu sveitaþorpa. Menn geta ferð- ast margar mílur án þess að sjá eitt einasta hús eða mæta nokkrum manni. Maður nokkur, vér skulurn nefna hann Frank, þurfti að heimsækja þorp, sem lá langt í burtu frá heimili hans. Ýmsir vinir hans réðu honum frá því að fara, og lögðu að honum að vera kyr heima. En hann hló að þeim og er hann hafði pakkað saman það sem hann hélt sig þurfia til ferðarinnar spenti hann níu hunda fyrri sleða sinn og lagði af stað öruggur og rólegur. Hánn fór af stað snemma um fnorguninn og keyrði allan daginn, en snjóskaflarir og norðanvindurinn, sem versnaði meir og meir höfðu tafið för hans svo mikið að þegar dimma tók var hann ennþá langt frá takmarki leiðar sinnar, og um leið og dimman færðist yfir snjó- breiðurnar, herti frostið ákaflega mikið. Frank sá nú ekki annað fyrir en að hann og hundarnir mundu frjósa i hel, ef hann gæti ekki fundið neitt skýli fyrir nóttina. En hvaða möguleiki var að finna það? Alt umhverfis voru endalausar snjóbreiður. Hann var heldur ekki viss um að hann hefði haldið réttri sefnu. Hann var nú orðinn dálítið áhyggjufullur. Hvað átti hann að gjöra. Hundarnir voru nærri uppgefnir og horfðu nú órólegir á húsbónda sinn, það var eins og þeir vissu að einhver hætta væri á ferðum. Vindurinn blés ákaflega og kuldinn var svo nístandi að Frank varð að vef ja kápunni þéttara. að sér, og skýia sér betur. Hundarnir þrýstu sér hver að öðrum og smá geltu. Sulturinn var líka farinn að pína þá, það var eins og kuldinn og hræðslan negldi þá niður. Frank horfði alt í kring um sig án þess að vita hvaða stefnu hann skyldi taka.. Hugrekki hans frá því urn morguninn var alt farið, en í stpð þess komin skelfing og hræðsla. En án vitundar hans hafði Guðs altsjáandi auga vakað yfir honum og undirbúið frelsun frá lífsháskanum. Eítið Eskimóaþorp lá hér um bil 9 kíló- metra þaðan sem Frank stóð ráðþrota og skimaði í allar áttir. Þorp þetta stóð á fljóts- bakka en fljótið var frosið og snævi þakið. Frank vissi ekki að hann var svo nærri manna bygðum, og Eskimóarnir í kofurn sínum höfðu enga hugmynd um að skamt þaðan væri liang- ferðamaður með íhunda sína, rétt aðfram kom- inn af kulda og þreytu. Á.lítilli hæð rétt þar sem keyrt var inn í þorpið stóð lítið skólahús, og þar bjó guðræk- inn maður, sem hafði lifandi löngun til að hlýða Guði í öllu. Maður þess var einn af trúboðum vorum, Tom H. Watson. Hann var alment kallaður Tom. Tom hafði enga hugmynd um að hinum megin við fljótið, milli snjóskaflanna væri ó- kunnur rnaður, sem árangurslaust reyndi að komast til bygða í náttmyrkrinu. En Guð vissi þetta og hann hafði oft talað við' Tom, ekki augliti til auglitis eins og við Móses, en þó á þann hátt að Tom skldi það vel. Kveldverði var lokið á heimili trúboðans, og hann settist við ofninn ásamt ungum Eskimóa, vini sínum, til að lesa kapítula í Biblíunni um kærieika Guðs, en þá heyrði hann alt í einu sagt við sig: “Settu ljósið við-gluggann sem snýr út að fljótinu.” Hann hafði aldrei áður sett ljósið þar, aldrei komið það til hugar, svo hann hugsaði með sjálfum sér hvernig gæti staðið á slíkri skipun. En hann stóð strax upp og setti ljósið þar sem honum var boðið, flutti síðan borðið út að þeim glugga og fór að lesa Guðs orð. Alt sem Guð gjörir er vel gjört og frarn- kvæmt á réttum tima, og þannig reyndist það hér. Rétt þegar Frank horfði alt umhverfis í myrkrinu kom skipunin um að setja ljósið við gluggann, þeim megin sem sneri að hinum þreytta ferðamanni. Skipuninni var strax hlýtt og Frank kom auga á ljósið í fjarlægð. Hann leit á hunda sína, þeir voru hættir að ýlfra, hánn var ihissa að þeir einnig skyldu hafa séð ljósð, þeir voru þegar reiðubúnir að leggja af stað á móti vindinum og stefndu nú beint á Ijósið í húsi trúboðans. Vindurinn var hvass og kuldinn ákaflega

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.