Stjarnan - 01.10.1938, Side 6

Stjarnan - 01.10.1938, Side 6
86 6- TJARNAN mikill, en ný von hafÖi vaknað hjá Frank og hinum hugrökku hundum hans, og þeim gekk ferÖin furÖu vel. Nú voru tveir klukkutímar liÖnir síÖan hinn guÖrækni kristniboÖi heyrÖi til sín talaÖ um að setja ljósiÖ við gluggann. Bæði Tom og litli eskimóinn, Sanghwan ætluðu að fara að hátta, en rétt í því bili var barið að dyrum og hunda- gelt iheyrðist fyrir utan. Tom varð alveg hissa er hann opnaði dyrnar og sá mann með hunda- sleða fyrir framan sig. Frank var svo aðfram kominn að án þess að segja orð féll hann með- vitundarlaus niður fyrir dyrum' hússins. Tom tók hann inn og hjúkraði honum, en Sanghwa fór með hundana inn í skýli og gaf þeim volga Súpu, og virtust þeir einnig þakklátir fyrir góð- ar viðtökur. Eftir að Frank var nokkurn veginn búinu að ná sér aftur, sagði hann trúboðanúm frá ferðalagi sínu, og bætti því við, að hefði hann ekki séð ljósið í glugganum þá hefði að lík- indum bæði hann og hundarnir frosið í hel um nóttina. Nú skildi trúboðinn hvers vegna hann hefði fengið skipunina viðvíkjandi ljósinu, og hann gladdist yfir að hafa hlýtt henni tafarlaust. Ef hann hefði beðið með það, þá hefði getað skeð að Frank hefði tekið aðra stefnu, aldrei séð ljósið og svo farist í kuldanum. Óveðrið stóð yfir í fleiri daga svo Frank tók með þökkum tilboði trúboðans að staðnæm- ast þar nokkra daga, eða þar til veðrið lægði. Hann hafði líka ánægju af að heyra trúboðann tala um kærleika Guðs, frelsunr áformið, end- urkomu Krists til að samansafna sínum útvöldu og taka þá heim til föðunhúsanna, o. s. frv. Frank hafði aldrei heyrt um þetta fyrri, en hann opnaði hjarta sitt fyrir Guðs náð, og var nú alveg sannfærður um að Guð elskaði hann. Hann hafði sönnun fyrir því, vegna þess hve dásamlega hann var frelsaður frá því að verða úti þessa nótt. E. S. Bezta sönnunin í þorpi einu bjó eldiviðarkaupmaður, sem var vel efnaður, en viðskifti hans voru nú að fara aftur á bak. Hann hafði fyrrum verið vel kyntur og verzlun hans gengið vel, en nú sneru viðskiftamenn baki við honum hver eftir annan, og hann var álitinn viðsjáll, hrekkja- limur og óvandaður. Meðan alt gekk vel hjá honum hafði hann haft nóg fyrir sig og fjöl- skyldu sína og jafnvel lagt fé á bankann í hverri viku.. En hann þóttist ekki græða nógu mikið, svo hann fann upp á því að mæla viðinn fá- einum þumlungum styttri heldur en lög gjöra ráð fyrir. Afleiðingin varð sú að fólk vildi ekki verzla við hann. Eengdin á viðnum átti að vera 4 fet en hann skipaði mönnum sínum að láta Júngdina vera aðeins 3 fet og 7 þumlunga. Hann hélt að enginn mundi veita því eftirtekt, og þetta mundi verða honum f leiri hundruð dollara gróði á ári. En viðskiftamenn' hans mældu viðinn og það barst út um bygðina að viðarsalinn væri ó- ráðvandur. Fólkið vildi ekki kaupa hjá honum lengur, það vildi heldur skifta við ráðvanda menn. Öllumi tiil mestu undrunar fréttist það einu sinni að maður þessi hefði snúið sér til Guðs og væri orðinn kristinn maður. Fáir trúðu slikum fréttum, því þeir héldu að 'hann væri ó- betranlegur. Fáeinir menn, sem staddir voru í matsölu- búð voru að .tala saman um þessar nýjungar. Einn þeirra brá sér út í nokkrar mínútur og kom svo inn aftur, og sagði þá með áherzlu við félaga sína: “Það er satt, drengir, hann er utn- ventur. Eg veit að það er satt.” Þeir spurðu eins og í einu hljóði: “Hvern- ig veiztu það? Hvar fékst þú sönnun fyrir því ?” “Ó, eg fór út og mældi viðinn sem hann lét höggva í gær, og hann er full 4 fet á lengd.” Þetta var þeim nóg. Þeir efuðust ekki lengur um að afturhvarf hans væri verulegt. Þegar alt kemur til alls þá er líferni og breytni mannsins bezti vitniburðurinn um trú- arbrögð hans? Jesús sagði sjálfur: “Af þeirra ávöxtum skuluð þér þekkja þá.” Þótt nafn þitt standi í kirkjubókinni þá er það eng- in sönnun fyrir því að þú sért umventur, sann- kristinn maður . . . Það er mögulegt að tilheyra hinni stærstu kirkju i borginni en vera þó hræsnari. Prédikari nokkur var einu sinni að halda ræðu um það hvílík blessun það væri fyrir einstaklinginn, fyrir heimilið, fyrir bygðina, þegar maður lifði einlægu, sannkristilegu lífi. Hann mintist á dygðir þær, semi koma í ljós í lífi sannkristins manns, og benti á hvernig grundvallaratriði kristindómsins væru sam-

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.