Stjarnan - 01.10.1938, Qupperneq 7

Stjarnan - 01.10.1938, Qupperneq 7
STJARNAN tvinnuð öllum hinum daglegu skyldum bæði á heimilinu og utan heimilis. Köna ein, sem sat og hlustaði á ræðuna, hvíslaði að þeirri, sem næst henn sat: “Þetta er yndisleg lýsing, en skyldi hann sjálfur lifa þannig ” “Það gleður mig að geta fulilvissað þig um að hann gjörir 87 það,” svaraði sú, sem til var talað, “það hittir svo á að eg er konan hans. Hann lifir san> kvæmt kenningu sinni.” Þetta er það, sem heimurinn þarfnast í dag, að fleiri leikmenn og prédikarar líka lifi í sam- ræmi við þá trú, sem þeir játa. Nægjusemi “Hhgur mannsins heldur honum uppi í hans sjúkdómi, en bili hug, liver þolir það?” Orðskv. 18114. Það er sagt frá því um fátæka fjölskyldu eina, að hún hafði lag á að vera ánægð undir öllum kringumstæðum. Rík kona nokkur á- setti sér að lijáfpa þessu fólki, en nágrannia- kona þessara fátæklinga sagði henni þetta fólk væri ekki svo illa statt. Hún sagðist oft heyra það tala um góðgæti sem þiað hefði að borða, sem hún alls ekki hefði efni á að veita sér. Ríka konan fór nú yfir til að heimsækja þessa fátækiinga um miðdagsleytið. Áður en hún kom inn heyrði hún litlu stúlkuna spyrja: “Viltu steik?” En henni var svaraði: “Nei, eg held eg vilji heldur þetta ágæta salat.” Svo barði konan að dyrum, opnaði og gekk strax inn. Tvær litlar stúlkur sátu við borðið, en á því var ekkert nema þurt brauð, kaldar kartöflur og vatnsflaska. Hún lagði fyrir þær nokkrar spurningar og þær sögðu henni að þær létu eins og það sem á borðinu væri séu af- bragðs réttir, þessi leikur þeirra gjörði alt svo bragðgott eins og það væri veizla. “Þú getur varla ímyndað þér hvað brauðið er gott,” siagði önnur þeirra, “þegar við köllum það jarðar- ’ berjaköku.” “En það er þó ennþá'betra þegar við köllum það ísrjórraa,” greip hin systirin fram í. Ríka konan hafði fengið nýja hugmynd um nægjusemi þegar hún fór út úr húsinu. Hún sá.nú að hamingja mannsins er ekki bundin við hlutina umhverfis heldur við hugarfarið. Hún hafði siannfærst um það sem Salómon hafði sagt fyrir löngu síðan, að hugurinn eða hug- rekkið heldur manninum uppi í sjúkdómi, en ef hann missir kjarkinn þá er alt tapað. Ef vér lifum í samfélagi við Krist þá getum vér staðist allia erfiðleika. Hann getur breytt kringumstæðunum, eða ef hpnum ekki þóknast það, þá getur hann breytt skoðun vorri á þeim og látið það alt verða oss til blessunar. Eng- inn getur verið óhamingjusamur, sem lifir í samfélagi við Frelsarann. E. S. Þrjú ágœt meðul Maður nokkur hafði orðið fyrir ákaflega mikluimi rangindum. Litlu seinna mætti vinur hans honum, og þá var hann eins glaður og hamingjusamur eins og ekkert hefði gengið honum á móti. Vinurinn spurði hvernig hann hefði getað náð sér svo fljótt eftir þann leið- inlega atburð, þá svaraði hann: “Eg ihefi þrjú ágæt meðul, sem eg nota við slík tækifæri, og það gjörði eg líka nú. Hið fyrsta er, að eg tala ekki um við nokk- urn mann, þegar eitthvað óþægilegt .kemur fyr- ir mig, eg veit af reynslunni, að því meira sem eg tala um það, þvi 'meira særir það mig. Hug- arfar mitt er eins og glas með vatni í, sem eitthvað óhreint hefir farið ofan i. , Sé hrært i vatninu þá gruggast það alt upp, en ef glasið stendur óhreyft þá setjast óhreinindin á botn- inn. Annað meðalið mitt er, að eg hugsa urn hve skammvint líf mitt er, og hversu brátt það getur verið á enda. Hið eina nauðsynlega verður þá svo mikilvægt í mínum augum að eg finn enga til hneigingu til að gremja mig yfir smámunum. Þriðja meðalið er, að eg reyni til að gleðja aðra. Þetta síðasta meðal notaði eg líka núna. Eg heimsótti fátækan mann og gaf honuni svo- litla peningaupþhæð. Þegar eg sá hversu glað- ur og þakklátur hann var, hvarf öll gremjan úr huga mínum.”

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.