Stjarnan - 01.11.1938, Síða 4

Stjarnan - 01.11.1938, Síða 4
STJARNAN 92 kveðið svar: “Ef þú vilt innganga til lífsins, þá haltu boðorðin.’’ Og til þess að gjöra skýrt hvað hann ætti við þá vitnaði hann i tíu boð- orðin, sem sitt heilaga lögmál. Vér erum ekki frelsaðir fyrir hlýðni vora við lögmálið, heldur fyrir réttlæti Krists, sem oss er tilreiknað þegar vér trúum á hann. En vér erum frelsaðir til þess vér getum haldið lögmálið, sem er opinberun til vor á vilja Krists. Þegar til breytni vorrar kemur, þá verður hún að vera í samræmi við lögmálið. Páll postuli skýrir þetta er hann segir: “Þess vegna mun af verkum lögmálsins alls ekkert hold réttlætast fyrir honum, því af lögmáli leiðir þekking syndar.” Róm. 3:20. En hann segir líka: “Þvi ekki eru heyrendur lögmáls- íns réttlátir fyrir Guði, heldur munu gjörendur lögmálsins réttlættir verða.” Róm. 2:13. Þó Jesús kendi ekki frelsun fyrir verk manna, þá lagði hann áherzlu á hlýðni við tíu boðorðin bæði í kenningu sinni og lífi sínu. Hann sagðist hafa haldið boðorð föður síns. (Jóh. 15:10). Líka lofaði hann þeim, sem héldu boðorðin og kendu öðrum að halda þau, að þeir skyldu öðlast heiður í Guðs ríki. Jó- hannes postuli sá i sýn Guðs börn á himni, sem fylgdu Lambinu hvert sem það fer. “Hér reynir á þolgæði hinna heilögu, þeir er varð- veita boð Guðs og trúna á Jesúm.”. Opinb. 14 :i2. Sonur Guðs hafði lögmál föðursins í hjarta sínú (Sálm. 40:8). Og ef vér veitum honum inngöngu í hjörtu vor þá lifir hann sínu lífi í oss. “Hann er sá sami í gær og í dag og að eilífu.’’ Þess vegna munu allir, sem hann hefir frelsað hafa lögmál hans í hjarta sínu. Jer. 31:33 °& Hebr. 8:10. vers Það var óhlýðnin, sem orsakaði þörf vora á frelsara. Fyrir trúna á Krist og samfélagið við hann öðlumst vér frelsun frá óhlýðninni og yfirtroðslu Guðs boðorða, því “syndin er lagabrot.” I. Jóh. 3:4. Það er augljóst að söfnuðunum í Nýja Testa- mentinu var ætlað að uppfylla réttlætiskröfur lögmálsins, það er að hlýða fyrirskipunum þess. (Róm. 8:1-7). Það er villukenning, sem margir halda við nú á tímum að Kristur hafi afnumið lögmálið. Þetta sézt greinilega þegar vér athugum að “syndin er lagabrot,” og Páll segir oss enn fremur að “þar sem ekki er lögmál þar er heldur ekki yfirtroðsla.” Róm. 4:15. Einnig stendur skrifað: “Hann skaltu láta heita Jesús, því hann mun frelsa sitt fólk frá þess syndum.” Matt. 1:21. Það leiðir af sjálfu sér að ef ekkert lögmál er síðan Jesús dó, þá er heldur engin synd síðan; samkvæmt orðum Páls Postula. Og ef engin synd er til þá er engin þörf á frelsara til að frelsa frá synd. Þörfin á frelsara er burt tekin með slíkri kenningu og alt forlíkunarstarf Krists einkis metið. Líf hans og dauði er þá óþarft og hlægilegt. Hvaða betra vopn gat satan fundið upp til að hindra sáluhjálp manna, heldur en þetta, að fá men til að kenna frá prédikunarstólnum að Guðs lögmál væri afnumið ? Er það nokkur furða þó menn nú hugsi lítið um endurlausnar verk Krists og semji styttri Biblíu, þar sem slept er úr öllum þeim textum, sem benda á forlikun mannsins fyrir blóð Krists ? Menn segja að Jesús hafi uppfylt lögmálið svo það sé ekki lengur í gildi. Ef svo væri, þá bæri Guðs orði ekki saman við sjálft sig. Orð- ið segir: “Aðalatriði efnisins, þegar alt er athugað, er þetta; Óttastu Guð og haltu hans boðorð, því það á hver maður að gjöra, því Guð mun leiða alla hluti fyrir dóminn, yfir öllu, sem hulið er, hvort sem það er gott eða ilt.” Préd. 12:13, 14. Það er augljóst af þessu að kenningin um afnám lögmálsins er villa, því dómurinn var á Krists dögum í framtiðinni, og Guðs lögmál verður mælikvarðinn í dóminum, svo það verður þá í gildi fram á dómsdag. Orðið uppfylla eða fullkomna í Matt. 5:17, þarf alls ekki að valda neinum misskilningi, ef vér lesum annan texta þar sem Jesús notar sama orðið. Þegar Jóhannes færðist undan að skíra Jesúm þá sagði Jesús við hann: “Veittu mér þetta, því þannig ber okkur að fullnægja öllu réttlæti.” Matt. 3:15. (í enskunni er orðið “fulfil” notað í báðum stöðum). Enginn getur látið sér til hugar koma að orðið “full- nægja” eða “uppfylla” þýði hér að afnema eða eyðileggja, því þá yrði alt réttlæti afnumið. Þvert á rnóti þýðir orðið “uppfylla” eða “full- nægja” blátt áfram að framkvæma eða gjöra. Það var nauðsynlegt fyrir Jesúm til þess að framkvæma alt réttlæti, að láta skírast sem vor fullkomna fyrirmynd. Að uppfylla lögmálið hlýtur því að meina að halda lögmálið, eins og líka Páll setur það fram sem ástæðuna fyrir dauða Krists: “Til þess að réttlætiskröfu lög- málsins yrði fullnægt hjá oss, sem ekki göng- um eftir holdi, heldur eftir anda.” Róm. 8:4. Án Krists og hans náðar getum vér ekki fylgt réttlætinu, það er haldið Guðs boðorð, “því lögmálið er andlegt en eg er holdlegur.” Róm. 7:i4.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.