Stjarnan - 01.12.1938, Page 1

Stjarnan - 01.12.1938, Page 1
STJARNAN DESEMBER, 1938 LUNDAR, MAN. Treyátir þú Guði? Eg hefi heyrt svo mörg Guðs börn með alvöru og sannfæringu segja: “Eg treysti Guði,” svo eg hefi farið að hugsa um hvað það meinar í raun og veru að treysta Guði. Sér- stök áherzla hefir stundum verið lögð á þetta traust til Guðs af þeim, sem um leið kannast við að þeir viti betur en þeir breyta, og þeir treysta því að Guð muni ekki taka hart á van- rækslu þeirra í að gjöra skyldu sína, eða yfir- rtoðslu þeirra á boðorðum hans. Þetta er of- traust, sem menn draga sjálfa sig á tálar með. Að treysta Guði er að trúa orði hans, reiða sig á að hann meinar það sem hann segir, og að hann stendur við orð sin, hvort sem það eru aðvaranir, áminningar eða fyrirheit. Sá, sem treystir Guði hlýtur því að lesa orð hans með rnestu gaumgæfni, hann hefir djúpa. innilega þrá eftir að þekkja Guð og umgangast hann, og lifandi löngun til að hlýða boðum hans í smáu og stóru. Jesús segir: “Rannsakið Ritning- arnar,” sá sem treystir Guði mun því lesa Biblí- una meir en nokkra aðra bók. Hið æðsta og helzta boðorð er að elska Guð af öllu hjarta, allri sálu, öllum kröftum og öllum huga. Sá, s"nr treystir Guði sýnir í öllu lífi sínu að hann elskar Guð fram yfir alt og alla, og þetta leiðir hann til að halda öll Guðs blessuðu boðorð, hvort sem aðrir menn gjöra það eða ekki. Hann heldur Guðs heilaga hvíldardag og fer ekki í felur með það þó hann viti að fjöldinn fyrirlíti og í ótum troði þetta boðorð, því hann treystir orðinu sem segir: Ef þér haldið mín boðorð munuð þér standa stöðugir í minni elsku, eins og eg hélt iboðorð föður míns og stend stöðug- ur í hans elsku.” Sá, sem treystir Guði, hann dregur sér ekkj annara fé, heldur er samvizkusamur í öllum viðskiftum sínum við náungann. Hann leitar fyrst Guðs ríkis og hans réttlætis, því hann reiðir sig á loforð Guðs um, að hann skuli fá hitt alt, það er nauðsynjar lífsins, í viðbót. Matt. 6:33. Sá, sem treystir Guði hann gefur Guði hvað Guðs er og keisaranum hvað keisarans er Hann borgar trúfega einn tíunda part af tekjum sínum til eflingar Guðs ríki, og gefur auk þess það sem hann getur af þeim níu tíundu hlutum, sem honum tilheyra sem þakkarfórn til minn- ingar um velgjörðir Drottins og til að flýta fyrir boðun fagnaðarerindisins út um allan heim. (Mal. 3:8-11). Sá, sem treystir Guði leitast við á allan hátt að leiða aðra til þekkingar og móttöku sann- leikans. Hann er hógvær og umburðarlyndur þótt hann sé misskilinn eða honum sé eitthvað gjört á móti. Hann keppir eftir að ná því tak- tnarki sem honum er fyrirsett: “Verðið heilag- ir eins og sá er heilagur, sem yður hefir kall- að.” Hann talar aldrei illa um náungann, því hann minnist þess að orðið segir: “Þetta er mitt boðorð að þér elskið hver annan eins og eg hefi elskað yður.” Sá, sem í sannleika treystir Guði sýnir það með því að afla sér sem beztrar þekkingar á orði hans og hlýða því af öllu hjarta og í öllum greinum. Treytir þú Guði? S. Johnson. 1 október í haust heimsótti eg nýlendur fs- lendinga í Norður-Dakota og mætti alstaðar svo hjartanlegri, ástúð og gestrisni sem ávalt ein- kennir fslendinga. Eg hefi haft sanna ánægju af að kynnast löndum mínum bæði í Canada og Bandaríkjunum, og þakka yður öllum hjart- anlega, sem á einn eða annan hát thafið létt mér erfiði og áhyggjur lífsins. Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól í Jesú nafni. N. Johnson.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.