Stjarnan - 01.12.1938, Side 2

Stjarnan - 01.12.1938, Side 2
98 STJARNAN Hluttekning í vegsemd Kriáts Heródes konungur þjáðist af samvizkubiti. Hann hafÖi sama álit á Jóhannesi skírara sem hann hafÖi áður haft. Þegar hann mintist á hið sjálfsfórnandi líf hans, hinar hátíÖlegu og alvarlegu kenningar hans og áminningar og hann flekklausa framferði} og svo hvernig hann var af dögum ráðinn, þá hafði samvizka hans engan frið né ró. Þegar hann framkvæmdi stjórnarstörf sín} eða þegar háttstandandi menn sýndu honum' lotningu, þá virtist hann glaður og tignarlegur, en undir þessu ytra yfirbragði barðist angistarfult hjarta, sem píndist af stöð- ugum ótta fyrir því að bölvun hvíldi yfir hon- um. » Heródes gat ekki gleymt orðum Jóhannesar að alt er opið og bert fyrir lifanda Guði. Hann var sannfærður um að Guð' var alstaðar ná- lægur, að hann sá skemtanirnar í veizlusalnum og heyrði skipunina um að Jóhannes yrði háls- höggvinn. Hann veitti eftirtekt illgirnis gleði Heródías og hve hæðnislega hún leit á hið af- sniðna höfuð hans, sem hafði ámint og aðvarað hana. Margt það, sem Jóhannes hafði sagt hljómaði nú með meiri krafti fyrir samvizku hans, heldur en meðan Jóhannes prédikaði í eyðimörkinni. Þegar svo Heródes heyrði um starf Krists varð hann mjög áhyggjufullur. Hann hugsaði að Guð hefði ef til vill reist Jóhannes aftur til lífsins til þess því átakanlegar að fordæma synd hans. Hann óttðaist nú sífelt að Jóhannes mundi hefna Mfláts síns með því að lýsa bölvun yfir honum og heimili hans. .Heródes uppskai það, sem Guð sagði mundi verða afleiðing þess að halda áfram í synd: “Skjálfandi hjarta, þrútnandi augu og ráðþrota sál. Líf þitt mun leika fyrir þér sem1 á þræði, og þú munt hrædd- ur vera nótt og dag og aldrei vera ugglaus um Mf þitt. Á morgnana muntu segja:. Ó, að það væri komið kvöld, og á kvöldin muntu segja: Ó, að það væri kominn morgun, sökum hræðslu þeirrar er gagntekið hefir hjarta þitt, og sökum þess er þú verður að horfa upp á.’’ 5. Mós. 28:65-67. Samvizka syndarans er ákærandi hans, og það er hin sárasta kvöl sem til er að hafa engan frið nótt né dag fyrir samvizkubiti. Mörgum virðast forlög Jóhannesar leynd- ardómsfull og óskiljanleg. Hjá mörgum vakn- ar sú spurning hvers vegna hann hafi þurft að vanmegnast og deyja í fangelsi. Vér skamm- sýnir menn getum ekki skilið Guðs alvitru stjórn í þessu, en þetta raskar ekki trausti voru til Guðs, því vér minnumst þess að Jóhannes var hluttakandi í píslum Krists. Allir, sem fylgja Jesú munu bera kórónu sjálfsfórnarinn- ar. Eigingjarnir menn munu misskilja þá og satan mun ofsækja þá með miklum ákafa. Það er þessi sjálfsfórnandi kærleiksandi, sem óvin- urinn hatar og ofsækir hvar sem hann kemur fram. Bæði æska Jóhannesar og fullorðinsár báru vott um staðfestu og sterkan siðferðiskraft. Þegar rödd hans reyrðist í eyðimörkinni og hann hrópaði: “Greiðið veg Drottins, beinið brautir hans,” þá óttaðist myrkrahöfðinginn að ríki hans yrði niðurbrotið. Voði syndarinnar var svo skýrt útmálaður að menn skelfdust. Margir sem höfðu látið leiðast af hinum vonda slitu sig nú lausa. Satan hafði verið óþreyt- andi í tilraunum sínum að hindra Jóhannes frá að þjóna Guði með óskiftu hjarta, en honum tókst það ekki. Honum hafði einnig mistekist að sigra Jesúm. Þegar satan freistaði Krists í eyðimörkinni þá beið hann ósigur. iNú var hann ákaflega reiður og ásetti sér að hryggja Jesúm með því að ráðast á Jóhannes. Hann reynir að valda þeim sorg og erfiðleikum, sem hann ekki getur leitt til syndar. Jesús skarst ekki í leikinn til að frelsa líf þjóns síns. Hann vissi að Jóhannes mundi standast reynsluna. Jesú hefði svo gjarnan viljað heimsækja Jóhannes og lýsa upp myrkur fangelsisins með návist sinni, en hann mátti ekki hindra sitt eigið starf. Hans tími var enn ekki kominn til að gefa sig í hendur óvinanna. Hann hefði gjarnan viljað frelsa líf hins trú- fasta þjóns síns, en vegna hinna mörgu þús- undan, sem seinna mundu líða fangelsi og dauða varð Jóhannes að tæma píslarvættis bikarinn. Þegar eftirfylgjendur Krists urðu að vanmegn- ast einir í fangaklefum sínum, Mða dauða í pínubekknum eða báhnu, og svo leit út að þeir væru yfirgefnir bæði af Guði og mönnum, þá mundi það styrkja þá að minnast þess, að Jó- hannes skírari, sem Jesús gaf vitnisburð um trúmensku, varð að Mða sömu kjör. Satan var Mðið að stytta Mfsstundir þessa sendiboða Drottins. En það Mf, sem hulið er með Kristi í Guði, (Kól. 3:3), gat óvinurinn ekki snert. Hann hlakkaði yfir að geta hrygt Jesúm en hann gat ekki sigrað Jóhannes. Dauð- inn fjarlægði hann frá valdi freistarans. Satan ft > i

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.