Stjarnan - 01.12.1938, Síða 8
104
STJARNAN
STJARNAN kemur út einu sinni á mán-
ud'i. Verð: $1.00 á ári. Borgist fyrirfram.
Otgefendur: The Canadian Union Con-
ference of S. D. A., Oshawa, Ont.
Ritstjórn og afgreiðslu annast
Miss S. JOHNSON, Lundar, Man., Can.
Meðal ræningjanna
Ræningjaflokkur einn í Kína náði bóka-
sölumanni, og voru þeir a8 því kornnir aÖ ræna
frá honum öllu, sem hann hafði meÖferðis
Maðurinn var fyltur Krists anda og hann gat
sannfært ræningjana um að hann hefði boð-
skap sem hann yrði að flytja foringja þeirra,
sem hélt til inni í borginni. Þegar hann kom
að hinum ramgjörða borgarmúr þá vildu varð-
mennirnir ekki leyfa honum inngöngu, en hann
sagði þeim hið sama, að hann hefði boðskap,
sem hann yrði að flytja foringja þeirra, boð-
skap frá konungi konunganna. Þeir skildu
þetta ekki vel en leyfðu honum þó inngöngu,
svo mætti hann foringjanum og er þessi spurði
hvernig hann hefði komist inn, svaraði hann:
“Eg hefi boðskap til yðar frá Meistaranum.”
Þessi hrausti, ófyrirleitni maður hlustaði nú á
bókasölumanninn, er hann sagði honum frá
hvernig Jesús kom og dó fyrir syndarana, dó
fyrir hann. Svo skýrði hann fyrir honum
frelsunaráform Krists og þýðingu þess. Ræn-
inginn viknaði svo mjög við að heyra þetta, að
hann grét og bókasölumaðurinn bað með hon-
um og fyrir honum. Svo sagði ræninginn:
“Hér eftir vil eg lifa nýju lífi.”
Bókasölumaðurinn hélt til i fleiri daga í
þessari borg og seldi bækur. Þegar hann var
ferðbúinn að fara úr borginni, kom maður til
hans og spurði: “Hvar er félagi þinn?” Hann
hugsaði sig um augablik og svaraði síðan:
"Engill Drottins hefir verið með mér.” Fólkið
hafði séð annan mann, sem fylgdi honum hús
úr húsi í borginni. “Englar Drottins setja
herbúðir kringum >á, sem óttast hann, og
vernda þá.”
Hvaðanœfa
lagnaðarerindið er óumbreytt og óumbreyt-
anlegt, en þó hefir það kraft í sér til að um-
breyta lífi manna.
+ -f + +
Hrind Frá þér öllum illum og óhreinum
hugsunum, þá munu orð þín og verk verða
Guði þóknanleg.
-f -f -f -f
Fyrir 60 árum síðan voru færri en 2,000
katólskir prestar á Englandi, en nú eru þeir
orðnir 5,500.
-f + -f ♦
Á fimm fyrstu mánuðum þessa árs dóu 81
af flugvélaslysum í Bandaríkjunum. Það er
voðalegt. En hugsið ykkur, hér um bil jafn
margir deyja þar af bílslysum hverjar 19.
Idukkustundir.
-f -f -f -f
Árið 1895 voru aðeins fjórir bílar register-
aðir i Bandaríkjunum. Árið 1904 voru aðeins
tveir bílar í borginni Kansas, þeir rálcust á og
skemdu hvor annan.
-f -f -f -f
í'jallið Popocatepetl í Mexico hefir verið
til söiu hjá stjórninni í 35 ár. Verðið, sem
þeir heimta er 10 miljón dollarar.
-f -f -f -f
Radio hljóðbylgjurnar ferðast með hraða
ljóssins, hér um bil 186,000 mílur á sekúndu.
-f -f -f -f
“Mundu eftir skapara þínum á unglings-
árum þínum, áður en vondu dagarnir koma og
þau árin nálgast, er þú segir um: mér líka þau
ekki.” Préd. 12:1.
-f -f -f -f
Samkvæmt katólskri skýrslu sem nýlega var
gefin út eru 21,451,460 manns katólskir í
Bandaríkjunum, að meðtöldu Alaska og Hawaii
eyjunum. Eftir því hefir þeim fjölgað um
nærri því 500,000 árið sem leið, en um meir en
4,000,000 á síðastliðnum 20 árum.
-f -f -f -f
Síðastliðið sumar fluttu 35 fjölskyldur frá
Danmörku til Venezuela í Suður-Ameríku.
Stjórnin þar liefir borgað fargjaldið léð þeim
land, bygt fyrir fólkið hús, kirkju og skóla.
Eftir 7 ára dvöl fá innflytjendurnir eignarrétt-
inn