Stjarnan - 01.01.1939, Side 1

Stjarnan - 01.01.1939, Side 1
STJARNAN JANÚAR 1939 ' LUNDAR, MAN. Gleðilegt Nýár 1939 Kæru vinir mínir, Ennþá erurn vér komnir aÖ nýjum tíma- mótum. UmliÖna árið hefir veriÖ alvarlegt og viðburÖaríkt, og mörgum hefir það fært óútmálanlega sorg og erfiðleika. Mikið höf- um vér Guði að J>akka, vé.r, sem lifum á þessu meginlandi heimsins. Vér gleðjum oss við frið og frjálsræði, og gjafarinn allra góðra hluta hefir uppfylt allar þarfir vorar eftir ríkdómi sinnar náðar, og veitt oss margfalda blessun sína bæði í tímanlegum og andlegum efnum. Á þessu nýja ári ættum vér að fórna Guði hjartans innilegasta þakklæti um leið og vér biðjum hann um vernd hans og hand- leiðslu á ókomnu æfiskeiði. Sú fórn, sú ný- ársgjöf, sem vér ættum að færa Drotni vor- um og frelsara, og sem honum væri kærust, er vort eigið líf, líkami vor og sál, allir kraft- ar vorir, að hann megi ummynda oss svo að vér endurspeglum hans hugarfar og líferni, og )>á mun Jesús innan skamms, þegar hann birtist, "ummynda líkama vorrar lægingar svo hann verði líkur hans dýrðarlíkama.” Ef vér færum Guði þessa fórn, sjálfa oss með lífi og sál, þá er oss trygð hamingjusöm framtíð og gleðilegt ár, bænheyrsla þegar vér áköllum Guð, og friður og fögnuður í heilögum anda bæði um tíma og eilífð, og svo munurn vér ríkja með Jesú um eilífar aldir í hans dýrðar- ríki. “Gef þú maður Guði þínum gjörvalt það, sem honum ber, eins og hann í orði sínu ætlast til og býður þér. Hættu að gefa heimi go synd helming lífs og þeirra mynd framar hygg ei fremd að vera; frernri mynd þú átt að bera.” Italska stúlkan Hún var aðeins 14 ára gömul og sat bak við borðið þar sem hún hafði smekklega rað- að niður ávöxtunum sem hún var að selja. Svo var hún upptekin við að lesa í Biblíunni sinni að hún veitti þvi ekki eftirtekt að mað- ur, sem var á gangi staðnæmdist þar, fyr en hún hrökk upp við þessa spurningu hans: “Hvað ertu að lesa, sem þú ert svo niður- sokkin í?” “Það er Guðs orð, herra minn,” svaraði hún feimnislegá. “Hver sagði þér að Biblían væri Guðs orð?” spurði hann. “Guð hefir sagt mér það sjálfur,” svaraði hún í barnslegu sakleysi. “Guð sagði þér það. Hvílik fásinna. Hvernig sagði hann þér það? Þú hefir aldrei séð hann og aldrei talað við hann. Hvernig gat hann þá sagt þér að Biblían væri orÖ hans ?” “í nokkur augnablik þagði stúlkan eins og hún væri orðlaus. Maðurinn, sem var van- trúaður og hafði gaman af að grafa grund- völlinn undan trú manna á Biblíunni hélt nú vissulega aÖ stúlkan gæti engu svarað. Hún áttaði sig brátt og Guðs andi lagði henni án efa mál í munn. Það brá fyrir glampa í dökku augunum hennar þegar hún spurði: "Hver hefir sagt þér að sólin væri í himin- hvolfinu yfir höfðum okkar?”

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.