Stjarnan - 01.01.1939, Síða 7

Stjarnan - 01.01.1939, Síða 7
STJARNAN 7 Lýsing Lúthers á Hann er GuÖs barn; bróðir Krists. Musteri lieilags anda, erfingi Guðs ríkis, félagi heil- agra engla, herra jarðarinnar, hluttakandi guðlegrar náttúru. Vegsemd hins kristna er Jesús á himnum. Vegsemd Krists er hinn sannkristni á jörðunni. Hann er verðugt Guðs barn, íklæddur réttlæti Krists. Með helgum ótta og fúsri hlýðni gengur hann fyrir augliti föður síns, og skín eins og ljós í heim- inum, eins og rós meðal þyrna. Hann er kriátnum manni undrafögur vera, sem Guðs náð hefir myndað og englarnir gleðjast yfir, og þeir fylgja hon- um og J>jóna honum hvert sem hann fer. Hann er undur og ráðgáta heiminum, skelfing djöflunum, heiður safnaðarins og fögnuður himinsins. Hjarta hans er kramið og -augu hans fljóta i tárum vegna íbúa heimsins, sem lifa i synd. Munnur hans andvarpar og hendur hans eru fullar af góðum verkum. R. H. Leyátur úr f jötrum óvinarins Djöfulóði maðurinn í Gadara var svo sterkur að engin bönd héldu honum. En þegar hann sá Jesúm gat ekki fjöldi hinna óhreinu anda hindrað hann frá að koma og leita hjálpar hjá honum. “Þegar hann sá Jesúm álengdar hljóp hann og féll fram fyrir honum.” En illu andarnir beiddu Jesúm að kvelja sig ekki. Jesús rak út hina óhreirm anda og læknaði manninn, og sendi hann til að vitna um hve mikla hluti Guð hefði við hann gjört.” Lúk. 8. 1 byrjun starfs vors í Kína segir blaðið Australasian Record frá undraverðum atburði: “Getur Guð ykkar læknað djöfulóðan mann?” spurði hópur af heiðnum mönnum trúboða vorn. “Hinn sanni Guð getur út- rekið óhreina anda,” var honum svarað. Svo leiddu J>eir inn mann, sem hafði hlekki bæði á höndum og fótum og útlit hans var mjög villimannslegt. Svo árum skifti höfðu allir í héraðinu verið hræddir við hann. “Getur þá læknað mig?” æpti hann er hann kom inn til starfsmanna vorra. “Ef J>ú trúir á Jesúm þá verður þér uækn- ingar auðið.” S.vo sögðu þeir honum frá hvernig Jesús hefði kenst frélsun frá synd og læknað sjúka. “Hvað á eg að gjöra?” spurði maðurinn. “Þú verður að trúa á Jesúm, þjóna hon- um og tilbiðja hann.” Nú var honum kend stutt bæn, tvær eða þrjár setning^r og vesalings maðurinn féll á kné og endurtók bænina meðan þeir, sem viðstaddir voru báðu fyrir honum. “Hann varð strax læknaður,” segir blaðið. Þremj dögum seinna þegar nokkrir sem þarna voru viðstaddir heimsóttu manninn, þá kom hann út að heilsa þeim, klæddur og með öllu ráði. Útlit hans var breytt. Hlekkirnir voru farnir og mikill áhugi fyrir fagnaðarerindinu vaknaður í þessu þorpi. W. A. Spicer. Söngkenzla Jobs Einu sinni kaldan vetrardag sagði gamall safnaðarstjóri við konu sína: “Eg ætla að bregða mér út og stofna söngkenslu.” Hún leit upp alveg hissa og svaraði: “Þú getur ekki sungið sálmsvers, hvernig í ósköpunum getur þú þá kent söng. Hann svaraði engu en týgjaði hestinn og tók með sér góðan forða bæði af mat og eldi- við og keyrði til fátækrar ekkju, senr hafði 6 börn. Þegar þangað kom sá hann að hún var allslaus. Hún hafði ekkert í eldinn og börnin grétu af sulti. Hann fékk hjartans þakklæti og blessunaróskir. Þegar heim kom spurði konan hvernig honum hefði gengið með sönginn. “Ágæt- lega,” svaraði hann, tók Biblíuna og las: “Blessunarósk aumingjans kom yfir mig og hjarta ekkjunnar fylti eg fögnuði.” A. U. Dýpsta náma heimsins er'gullnáma í ríkinu Minas Geraes í Brázilíu. Hún en 6,426 fet á dýpt og það hefir verið unnið í henni síðan 1725. Neðst í námunni vinna menn aðeins 20 mínútur í einu, og meðan þeir eru að vinna þar er kalt vatn stöðugt látið halda þeim rennandi votum svo þeir geti staðist hitann, sem er ákaflega mikill svo djúpt niðri.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.