Stjarnan - 01.01.1939, Síða 8
8
STJARNAN
STJARNAN kemur út einu sinni á mán-
uði. Verð: $1.00 á ári. Borgist fyrirfram.
Otgefendur: Tlte Cangdian Union Con-
ference of S. D. A., Oshawa, Ont.
Ritstjórn og afgreiðslu annast
Miss S. JOHNSON, Lundar, Man., Can.
Staðfesta
Eg heyrði eftirfarandi sögu á kirkjuþingi
voru í París:
Ungur maður, seni hélt hvíldardag Drott-
ins heilagan, var meÖ ítalska hernum í Etíópíu.
Hann var svo ákveÖinn og samvizkusamur í
aÖ halda hvíldardaginn heilagan að yfirmað-
ur herdeildarinnar hélt hann væri ekki með
réttu ráði, svo hann sendi piltinn til læknis.
Læknirinn rannsakaði hann og tók svo tíma til
að láta hann segja sér alt umi trú sína og á
hverju hún væri bygð. Svo kallaði læknirinn
alla herdeildina saman( og sagði: “Hlustið á,
þessi maður heldur sjöunda daginn fyrir
hvíldard'ag, og hann er skynsamari heldur en
nokkur okkar.” Eftir þetta fékk ungi maður-
inn leyfi til að vera frí á hvíldardögunum.
Eitlu seinna bað annar maður í sömu her-
deild um að fá sunnudaginn frían. Honum
var neitað um það.
“En þér leyfið þessum Sjöunda dags Að-
ventista að hafa sinn hvíldardag frían,” sagði
hann.
“Já, hann er kristinn maður alla daga vik-
unnar, en þú reykir og drekkur og fylgir
fýsnum þínum alla vikuna, og berð engan
vott uimi að þú sért kristinn maður nema á
sunnudögum.
,Nú gekk alt vel fyrir trúbróður vorum
þangað. til skifti um yfirmann við herdeild-
ina, þá var hann fyrst dæmdur í 5 daga fang-
elsi, og þar á eftir í 10 daga fangelsi, en þá
var það að annar yfirmaður ráðlagði honum
að skjóta máli sínu til landstjórans. Hann
gjörði það og sú skipun var gefin út að þessi
ungi Sjöunda dags Aðventisti skyldi fá frí á
hvíldardögunum.
W. A .Spicer.
Á eyjunni New Britain í Suðurhafinu er
sagt að sætar kartöflur séu ræktaðar, sem geti
orðið 40 pund að þyngd.
Hvaðanœfa
Læknafélagið'i í Ameríku skýrir frá því aö
fjöldi kvenna sé að nema læknisfræði 1
Bandaríkjunum. Tala þessara kven-nemenda
er 1,161.
♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Koparinn er svo verðmætur nú í Þýzka-
landi að kirkjuklukkur í Berlín hafa verið
teknar svo hundruðum skiftir og bræddar til
að fá mál'minn úr þeim, en kirkjuklukkur úr
aluminium hafa verið settar í staðinn.
Járnbraut sú, sem borgar sig bezt í heim-
inuin er að líkindum sú, sem rennur frá Sao
Paulo til hafnarinnar Santos í Brazilíu. Húu
er aðeins 40 mílur. Yfir .þessa braut er flutt
um þrír fjórðu hlutar af öllu kaffi, sem fram
leitt er í heiminum.
+ -f ♦ ♦ ♦
Sagt er að af þeim 39,500 manns sem dóu
af bílaslysum í Bandaríkjunum árið 1937, hafi
15,400 verið fótgangandi fólk.
♦ -f ♦ ♦ -f
Munnurinn á einni hvalategund er svo stór
að hann getur hæglega gleypt menn.
♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Nú er farið að búa til tau úr gleri. Sagt
er að það sé haldgott og sé þó mjúkt og voð-
felt eins og klæði. Það er undravert hve
margar tegundir eru búnar til af glertaui og
með svo mörgum litum. Það er líka notað í
vatnsheldar regnkápur.
♦ ♦ ♦ ♦ ♦
í samanburði við stærð sína hefir maurinn
stærstan heila af öllum skepnum á jörðinni.
♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Menn voru að útbúa skemtigarð í San
Francisco. Þar átti meðal .annars að vera
tjarnir fyrii vatns- og sjávardýr. Verkstjór-
arnir voru alveg hissa er þeir sáu áhuga
verkamannanna fyrir starfinu. Þeir trúði:
varla sínum ergin augum, en glöddust þó yfir
hinni einkennilegu aðferð verkamanna sinria.
Þeir unnu af kappi, þeir unnu meiri partinn
af matmálstíma sínutn og á kvöldin unnu þeir
með kappi alveg fram á nótt. Þegar lokið
var starfinu komst leyndarmálið upp. Einn
þeirra, sem var að grafa fann 20 dollara gui!-
stykki, annar fann demant. Peningar, skraut-
gripir og silfurvara um 20,000 dollara virði
fanst áður en verkinu var lokið. Þetta pláss
hafði verið fylt upp með rusli eftir jarð-
skjálftan og eldinn í 1906.