Stjarnan - 01.12.1941, Side 3
S TJA RNAN
99
griparækt. Allar uppfyndingar, sem
snerta framleiðslu af jörðinni hljóta því
að vekja athygli manna. Vísindin hafa
heldur ekki látið sitt eftir liggja hvað
jarðræktina snertir. Vér skulum fyrst
nefna vélar, sem spara vinnukraft og létta
vinnu. Jafnvel þó þær svifti miljónir
manna atvinnu þá er tilgangur þeirra að
létta mönnum erfiði. Það væri hægt að
rækta miklu meira af yfirborði jarðarinn-
ar ef hægt væri að nota vélar til að hreinsa
landið, ræsa það fram, veita vatni og
hindra jarðveginn frá skemdum.
Fyrir 100 árum síðan notuðu bændur
sömu verkfærin og forfeður þeirra höfðu
notað fyrir 4,000 árum síðan, þunga plóga,
orf og ljá, klárur o. s. frv. Á síðustu
þremur mannsöldrum hefir erfiðismaður-
inn fengið sláttu og rakstrarvél, þreskivél
og ýmsar vélar til uppskeru, þar á meðal
vél sem tínir bómullina og vinnur 20
manna verk. Vélarnar spara hestana og
silo er bygt til að geyma grænt fóðrið.
Rjómavélin; sem skilur mjólkina og ýmsar
aðrar uppfyndingar hjálpa til að auka
framleiðsluna og létta vinnuna.
Undur flutningstækja.
Eitt af því, sem oss þykir fremur öðru
óskiljanlegt er það hvernig stjórna má
vélum í fjarlægð. Flugvél má stjórna frá
jörðunni með þráðlausum skeytum, þó
enginn maður sé í flugvélinni til að stýra
henni. Bílum er stjórnað án keyrslu-
manns gegnum fjölfarin stræti án þess
þeir rekist á eða slys komi fyrir.
En hraði og stjórn á vélum í fjarlægð
er ekki eina framförin á'samgöngusviðinu.
Alt gengur með hraða, en margir hugsa þó
nieira um þægindi og öruggleik. Samkepn-
in í flutningum hefir verið mikil, svo menn
hafa fundið upp undraverð þægindi, þar á
meðal má nefna gott loft í járnbrautar-
vögnum og hávaðalausa ferð. Á sumum
járnbrautum hafa menn útbúning fyrir
þráðlaus skeyti og talsímasamband. Alt
hugsanlegt er gjört til þess að farþeginn
geti haft það eins þægilegt og' heima hjá
sér, þótt útsýnið umhverfis sé í sífeldri
breytingu.
Undraverk læknisfrnðinnar.
Dauðinn er hinn versti óvinur mann-
kynsins, svo það er náttúrlegt að menn
vilji forðast hann svo lengi sem unt er.
Það bezta sem vér getum óskað vinum
vorum er langt og' hamingjusamt líf. Eng-
inn sem er hamingjusamur óskar að deyja.
Það sem fremur öllu öðru dregur úr ham-
ing'ju manna er heilsuleysi. Menn þurfa
hvorki að vera ríkir, háttstandandi, sterkir,
ungir eða gamlir til að vera hamingju-
samir.
Ef undraverk vora tima veittu oss ekki
ineiri hamingju gegnum betri heilsu, þá
væru þau ekki nálægt því eins mikils
virði og þau eru; en þau hafa gjört það.
Menn hafa aldrei haft eins mikla þekking
á sjúkdómum eins og nú. Framfarir i
lækningum hafa haldist í höndur við aðrar
framfarir. Það sem læknar nú gjöra til
að byggja upp líkama mannsins hefði ver-
ið álitið ómöguleg't fyrir einum 50 árum
siðan. Nú á síðasta mannsaldri hafa
læknar með fyrirbyggingu sjúkdóma, lækn-
ingu þeirra og uppskurðum, leng't lífstíma
manna að meðaltali um 20 ár. En hér
verður að taka það fram, að þetta hefir
að nokkru leyti tekist með því að frelsa
líf fleiri ungbarna, fremur en lengja lífs-
tíma eldra fólks svo miklu muni. En hvort
sem menn lifa lengur eða skemur, þá er
það mest um vert að þeir njóti góðrar
heilsu meðan þeir lifa. Ein af hinum
mikilsverðustu uppgötvunum læknisfræð-
innar er að þeir hafa fundið út að það
kostar -engin aukaútgjöld að halda við
heilsunni, og aðeins lítið eitt meira að ná
henni aftur. Svo góð heilsa getur eins vel
verið eign fátæklinganna eins og hinna
ríku. Lungnatæringin var fyr meir hvíta
plágan sem lagði miljónir manna í gröt'-
ina á ári hverju. Nú hafa menn sigrað
hana og sjúklingurinn þarf hreint ekki
að deyja úr henni, ef hann vi iI gjöra það,
sem honum er sagt.
Bólusetningar og innsprautingar hafa
varið sóttum og frelsað mörg þúsund
mannslíf á ári hverju. Menn hafa upp-
götvað ýmsa sjúkdómsgerla og fundið upp
meðul til að eyðileggja þá. Deyfingar-
meðul hafa dregið úr þjáningum við upp-
skurði. Menn hafa fundið »meðul til að
koma í veg fjnir blóðeitrun. X-geislar
gjöra léttari rannsóknir sjúkdóma og þess-
vegna hægra að lækna þá. Radíuin og
aðrar vísindalegar uppgötvanir hafa bæði
læknað sjúkdóma og hjálpað við meðferð