Stjarnan - 01.06.1942, Page 1

Stjarnan - 01.06.1942, Page 1
STJARNAN JÚNÍ, 1942 LUNDAR, MAN. Heimkynni friðarins Frá aldlaöðli hefir von mannkynsins verið að öðlast dýrð og sælu himinsins eftir dauðann. Flestir kristnir inenn hafa mjög óljósa hugmynd um hvernig sá him- inn er þar sem þeir vænta að dvelja eftir dauðann. Þeim hefir verið kent að þeir mundu hafa andlegan líkama, svo loft- kendan að hann líktist gufu, ekkert veru- legt, ekkert áþreifanlegt. Himininn er á einhverjum ljómandi fallegum stað, eng- inn veit hvar, starf þessara anda á að vera að sitja á skýi og leika á hörpur úr andlegu gulli. Ymsar skoðanir jafn þokukendar hafa heyrst. Er nokkur furða þó slík lýsing á dýrð- arvist himinsins hafi lítið aðdráttarafl. Það er hreint ekki furða þó flestir vilji fresta sem lengst að flytja inn í slíkari himin, svo lengi sem læknirinn getur hjálp- að þeim að dvelja hér. Þeir samþykkja að fara einungis þegar ekki er annars kostur, því þeir hafa ekkert ákveðið, ekk- ert verulegt til að festa von sína á. Er nokkur mögulegleiki að vita með vissu hvernig himininn er? Já, vissulega. Jesús kom frá himni og hann gefur oss allar nauðsynlegar upplýsingar. Vegsam- að sé hans heilaga nafn. Hann hélt skiln- aðarræðu til lærisveina sinna eitt kvöld fyrir löngu síðan. Þeir voru hryggir, því þeir höfðu lært að elska hann. Nú ætlaði hann, bezti vinur þeirra, að fara frá þeim. Jesús elskaði sína. Hann vissi þeir voru mjög sorgbitnir yfir því að þurfa að skilja við hann, alveg eins og vér þegar vér þurf- um að kveðja elskandi vini. Þá sagði frelsarinn til að hughreysta þá: “Hjarta yðar skelfist ekki, trúið á Guð og trúið á mig.” Vinur minn, hver sem þú ert, sem hefir sorgbitið niðurbeygt hjarta, hlustaðu á Jesúm tala huggunarorð til þín. Margir hafa ihjartasorg á þessum alvarlegu hörm- ungatímum heimsins. Vilt þú taka með- alið, sem aldrei hefir brugðist að veita lælcningu? Það er þetta: “Trúið á Guð og trúið á mig.” Jesús getur veitt hjarta þínu frið, hann sjálfur er friðanhöfðing- inn. Hann sagði lærisveinum sínum: “í húsi föður míns eru mörg híbýli, væri ekki svo hefði eg sagt yður það. Eg fer burt lil að tilbúa jrður stað.” Jóh. 14:2. Himininn er það pláss, sem Jesús yfir- gaf fyrir meir en 1900 árum síðan, er hann kom til þessarar syndspiltu jarðar til að opinbera oss kærleika Guðs. Svo dó hann þeim dauða, sem vér höfðuin verð- skuldað, til þess að vér mættuni öðlast eilíft líf og dvelja hjá honum í Paradís. Himininn er plássið, sem hann fór til, þegar hann hafði lokið því starfi hér, sem l'aðirinn fékk honum að vinna, og þá bauð faðirinn honum: “Sit þú mér til hægri handar þangað til eg gjöri óvini þína að þinni fótaskör.” Hebr. 1:13. Himininn er plássið þar sem vor mis- kunnsami og trúi æðstiprestur, Jesús, gjörir forlíkun fyrir oss, svo vér megurn öðlast náð til hjálpar á hagkvæmum tíma. Himininn er plássið þar sein hann vill að vér séum hjá honum svo vér sjáum hans dýrð. “Faðir, eg vil að þeir, sem þú gafst mér séu hjá mér þar sem eg er, svo þeir sjái mína dýrð.” Jöh. 17:24. Himininn er þar sem hús föðursins er, með hinum mörgu híbýlum, og svo er Jesús að útbúa pláss fyrir oss, svo vér getum verið þar sem hann er. Að fara til himins er að fara til föður vors, til að vera með hans eingetnum syni, frelsara vorum. Hvílíkur óumræðilegur fögnuður

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.