Stjarnan - 01.06.1942, Síða 2

Stjarnan - 01.06.1942, Síða 2
42 S TJ A R N A N það verður þegar hinir endurleystu standa á glersjónum, frammi fyrir hinu hvita há- sæti og sjá Guð augliti til auglitis. Það var fyrir þennan fögnuð sem Jesús sá framundan að hann þoldi krossfestingu og mat einkis þó hann smánaður væri. (Hebr. 12:2). Vinur minn, Jesús leið og dó fyrir þig, til þess að “hver sem vill,” megi kom- ast heim að lokum og verða eilíflega ham- ingjusamur. Af þvi sem Jesús hefir sagt fáum vér vissu fyrir því að himininn er verulegur staður. Hann er í geimnum, meðal hinna voldugu hnatta, sem skína í hinum undra- verða alheimi Guðs. Hvaða pláss er það sem Jesús fór að tilbúa handa oss? Tré- smiðurinn frá Nazaret fór upp til himins í sýnilegum og áþreifanlegum líkama (Sjá Lúk. 24:36-43) til að byggja fyrir oss sýni- legan og áþreifanlegan stað til íbúðar. Langar þig að vita hverju hann er líkur? Vér ættum að vera þakklátir fyrir að Biblían segir oss þetta. Furðar þig að staðurinn, sem Jesús býr til handa oss er borg? Oss er sagt um Abraham að “hann vænti þeirrar borgar, er fastan grundvöll hefði, hverrar smiður og bygg'ingarmeistari sjálfur guð er.” “Fyrir því blyg'ðast Guð ekki þeirra vegna að kallast þeirra Guð, þvi hann hafi til- reitt þeim borg.” Hebr. 11:10.16. Aftur er oss sagt að “vér höfum hér ekki varan- legan samastað, heldur leitum vér annars tiikomanda.” Hebr. 13:14. Guð sýndi Jó- hannesi í sýn þessa. dýrðlegu borg. “Hann sýndi mér Jerúsalem, borgina helgu sem steig niður af /himni frá Guði.” Op. 21:10. Til að skilja hvers vegna Jesús hýr tit þessa borg fyrir sína endurleystu, þá þurf- um vér að vita hvað konungsríki meinar. Frá barnæsku höfum vér beðið: “Tilkomi þitt ríki.” Ríki hefir fyrst og fremst kon- ung, Jesús. Þar næst þegna, sem konung- urinn stjórnar, það verða hinir endurleystu frá öllum tímum og kynslóðum. Svo verð- ur náttúrlega að vera iand fyrir þegnana að búa i, það verður nýja jörðin. Borgin, hin nýja Jerúsalem verður höfuðhorg hins dýrðlega rikis. Jesús sagði: “Sælir eru hógværir, því þeir munu jarðríkið erfa.” Matt. 5:5. Það meinti ekki hina núverandi jörð með allri hennar sorg, sjúkdúmi og dauða. Nei, nei. Synd og isyndurum verður útrýmt fyrst. Jörðin verður hreinsuð af allri synd. “Jörðin og þau verk, sem á henni eru mun upp brenna. En eftir hans fyrirheiti væntum vér nýs himins og nýrrar jarðar þar sem réttlætið mun húa.” 2. Pét. 3:13. Á þessari nýju jörðu munu þegnar Krists búa eiliflega. Öll ríki hafa einhverja höfuðborg. Hin nýja Jerúsalem verður höfuðstaður Guðs ríkis. í þessari borg mun Jesús ríkja sem konungur konunganna og Drottinn drotn- anna. “Hásæti Guðs og lambsins skal í henni vera.” Op. 22:3. Þetta er ríkið, sem vér biðjum um i hvert skifti sem vér biðjum: “Tilkomi þitt ríki.” Þegar þess- ari bæn verður svarað þá kemur Jesús, reisir upp þá “sem i Kristi eru dánir,” og ummyndar til ódauðleika :þá sem Hfandi verða af Guðs börnum þegar hann kemur, og tekur oss alla til fhimins og gefur oss plássið, sem hann hefir tilbúið fyrir oss. Þar inunum vér sjá hans dýrð. Eftir þús- und ár munum vér koma aftur til jarðar- innar i hinni nýju Jerúsalem. Jóbannes sá Jerúsalem, borgina helgu, sem steig niður af himni frá Guði.” Op. 21:10. Eftir að jörðin hefir verið hreinsuð með eldi og ummynduð, þá munu hinir endur- leystu búa á nýju jörðinni um óendanleg- ar aldir. Lesið lýsinguna á hinni idýrðlegu boi’g. Engin jarðnesk hönd hefir bygt hana. Guð er smiður og bygingameistari hennar. Jóhannes postuli var fluttur upp á mikið og hátt fjall. Þaðan gat hann séð yfir hina miklu borg, hina nýju Jerúsalem. Vér undrumst yfir stærð hennar. Hún lá í ferhyrning 12 þúsund renniskeið (Op. 21:16). Renniskeið er einn áttundi úr mílu, svo borgin er fimtán hundruð mílur umhverfis. Hvílík borg. Ekkert í heim- inum kemst í samjöfnuð við hana. Hin nýja Jerúsalem er á stærð við þrjú ríkin í Bandaríkjunum, Illinois, Ohio og Indiana. Lundúnaborg, París og New York, með all- ar þeirra miljónir ibúa eru eins og smá- þorp í samanburði við hana. Athugið fegurð borgarinnar. “Vegg- irnir af jaspis og borgin af tæra gulli, sem gagnsætt gler væri.” Op. 21:21. Svo eru tólf hlið. Sjaldgæfir dýrmætir gimstein- ar eru aðeins fyrir hina ríku, en hér er hvert hlið borgarinnar dýrmæt, kostuleg perla. Þegar þú gengur inn um hliðið

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.