Stjarnan - 01.06.1942, Qupperneq 3

Stjarnan - 01.06.1942, Qupperneq 3
S TJARNAN 43 hefir þú auð eilífðarinnar undir fótuin þér. “Stræti borgarinnar voru af tæra gulli.” Það er sagt, að aðalstrætið í Cripple Creek, Colorado sé lagt grjóti úr gullnámu, sem álitið var einkis virði, en svo fundu menn út, að mörg hundruð dbllara virði af gulli voru í hverju skip- pundi af grjótinu, svo þetta eina stræti á jörðu er lagt gullblendingi en hvað er það í samanburði við hina helgu borg, þar sem allar götur eru lagðar hreinu, skíru gulli. Getur þú ímyndað þér hvílík fegurð er endurspegluð í þessum gullnu strætum? Vér getum varla gripið hvílíkan auð þyrfíi til að byggja slíka borg nú hér á jörðu. Hvílíkar byggingar hljóta þar að vera. Hæstu byggingar í heimi eru aðeins leik- fang í samanburði við þær. Hvílíkar krystals hallir munum vér sjá þar, dýrð- légri og skrautlegri en menn geta hugsað sér. Vér göngum gegnum eitt strætið. Það er 375 mílur frá einu hliði til annars. Hvað langan tíma þyrftum vér til þess ef vér staðnæmdumist hér og þar til að horfa á fegurðina. Það tekur eilífðina að virða fyrir sér alla þá dýrð og fegurð. f miðri borginni er hásæti Guðs og Lambsins. Vér höfum ekki orð til að lýsa slíkri dýrð, sem mannlegt auga hefir aldrei séð. Frá hásætinu flýtur straumur lífsins vatns, en á bökkunum vex hið undurfagra lífsins tré og fléttar saman greinar sínar í boga yfir hinu kyrstals- skæra fljóti. Á hverjum mánuði þroskast nýr ávöxtur, og hvílík unun það verður að neyta af ávexti þeim, sem Adam og Eva átu fyrrum i Eden aldingarði. Einu sinni á mánuði hverjum munu allir íbúar jarð- arinnar koma til borgarinnar til að neyta ávaxtanna af lífsins tré. Hvílík dýrðleg höfuðborg er tilbúin handa þeim er meðtaka Jesúm sem Guð sinn og frelsara. Oss er sagt að “konungar jarðarinnar færa henni sína dýrð og veg- semd.” Op. 21:24. Hverjir eru þessir konungar nýju jarðarinnar? Jesús sagði postulum sínum:_ “Sannlega segi eg yður, þér, sem hafið fylgt mér munuð í endur- sköpuninni, þá mannsins sonur situr í sín- um veldisstóli, einnig sitja á tólf hásætum og dæma hinar tólf kynkvíslir fsraels.” Matt. 19:28. Hvílík verður dýrð hinnar endurreistu Paradísar. “Því sjá, eg skapa nýjan him- in og nýja jörð, hins fyrveranda skal ekki framar minst verða, og það skal engum í hug koma.” Ekkert í þessum heimi er svo gott að það sé þess vert að varðveita það frá eyðileggingu. Dýrð jarðneskra ríkja, auður þeirra og yfirlæti verður alt að engu. Dýrð og fegurð ihinnar nýju jarðar verður svo miklu meiri, að fegurð þessa heims gleymist alveg sem einkis- virði. Hinir endurleystu njóta eilífrar æsku, hrej'sti og fegurðar, því Jesús mun um- mynda lægingar likama þeirra, svo hann verði líkur hans dýðarlíkama. Þar verða engar þjáningar, enginn dauði, engin tár, engin vonbrigði. Ekkert strið. Þar verð- ur eilífur friður og fullsæla, því höfðingi friðarins rikir þar. Hinn voldugi Guð, sem skapaði jörðina í öndverðu segir: “Sjá, eg gjöri alt nýtt; hann sagði við mig: skrifaðu að þessi orð eru trúanleg og sönn.” Op. 21:5. Eg þrái að vera þar. Langar þig að eiga þar heima? Oss er sagt hvað vér munum hafast að á nýju jörðinni: “Þeir munu byggja hús og búa í þeim, planta víngarða og eta ávöxtu þeirra.” Jes. 65:21. Hér taka menn tíma til að gjöra uppdrátt af heim- ili því, sem þeir ætla að byggja sér. En hvílík gleði það verður á hinni nýju jörð fyrir ódáuðlega menn að byggja sér heim- ili. Þeir þurfa ekki að horfa í kostnað- inn þar, því auður hins eilifa heims er þeirra, nóg af gulli og gimsteinum, og hugsið yður skemtigarðana með blómum sem aldrei fölna. Þar verður ekkert ill- gresi til að uppræta, engin skorkvikindi til að berjast við og eyðileggja. ó, hvílík ánægja að hafa slíkan garð. Flestir elska skepnurnar. Þar munu úlfar og lömh vera saman á beit, ljónið éta strá sem uxi. Hvergi á mínu heilaga fjalli munu þau nokkurn skaða gjöra. (Jes. 65:25). Hvað það verður ánægjulegt að búa þar sem allir og alt er svo friðsamt og vin- gjarnlegt. Þar getum vér notið félags- skapar og vináttu manna, sem voru Guðs hetjur hér á jörðunni, svo sem Abraham, Móses, Páll og kærleikans postuli Jó- hannes. Gleymum heldur ekki vorum fyrstu foreldrum, Adam og Evu. Lífið

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.