Stjarnan - 01.06.1942, Side 6

Stjarnan - 01.06.1942, Side 6
46 ST J AR N AN hann spurði hún hvort hún mætti sofna sér þarna. Hann leyfði henni það og spurði um leið vingjarnlega eftir farseðli hennar. Hún kvaðst engan hafa, svo byrj- aði eftirfylgjandi samtal er vagnstjórinn spurði: “Hvert ætlar þú?” Hún svaraði: “Eg ætla til himins.” Aftur spurði hann: “Hver borgar fyr- ir farið þitt?” Þá sagði hún: “Fer þessi járnbraut til himins? Ferðast Jesús með henni?” “Ekki býst eg við því. Af hverju held- ur þú það?” “Mamma var vön að syngja fyrir mig um himnesku járnbrautina, og mér sýnd- ist þú vera svo góður og vingjarnlegur, að eg hélt það væri þessi járnbraut. Mamma söng um Jeáúm og himnesku járnbrautina þar sem ihann borgaði farseðilinn fyrir alla, og lestin staðnæmdist alstaðar til að taka fleira fólk með. En mamma syngur ekki fyrir mig lengur. Nú syngur enginn fyrir mig', svo eg hugsaði eg skyldi fara á járnbrautinni til mömmu. Syngur þú fyrir litlu stúlkuna þína um járnbrautina til himins, eða átt þú ekki litla stúlku?” Hann svaraði grátanidi: “Nei, litla vina mín. Eg á enga litla stúlku. Eg átti hana einu sinni en hún dó og fór til Guðs.” Nú spurði hún aftur: “Fór hún með þessari lest? Ertu á leiðinni til að sjá hana?” Þegar hér var komið sögunni voru allir í vagninum staðnir upp og margir voru grátandi. Það er ómögulegt með orð- um að lýsa því, sem eg heyrði og sá þarna. Sumir sögðu: “Guð blessi litlu stúlkuna.” Litla stúlkan heyrði einhvern segja að hún væri engill, og svaraði hún því rnjög alvarlega er hún sagði: “Já, mamma sagði stundum að eg yrði engill einhvern tíma.” Nú sneri hún samtalinu aftur að vagn- stjóranum og spurði: “Elskar þú Jesúm? Eg gjöri það. Ef þú elskar hann, þá flyt- ur ihann þig til himins á járnbrautinni sinni. Eg er á leiðinni. Eg vildi þú kæmir með mér. Eg veit hann lofar mér inn þegar eg kem þangað. Hann lofar þér inn líka, öllum, sem vilja fara með hans járnbraut, öllu fólkinu hérna. Lang- ar þig ekki til að sjá himininn og Jesúm og lifclu stúlkuna þina?” Þessi orð, svo sakleysisleg og alvarleg komu fólkinu til að gráta, en sérstaklega þó vagnstjóranum. Sumir sem voru á leiðinni til himins vegsömuðu Guð í heyr- enda hljóði. Nú sp.urði hún vagnstjórann: “Má eg liggja hérna þangað til við konium til himins?” “Já, barnið mitt,” svaraði hann. “Viltu vekja mig þegar við komum þangað svo eg geti séð mömmu, litlu stúlk- una þína og Jesús, mig langar svo til að sjá þau öll.” Svarið kom í sundurslitnum, viðkvæm- um orðum: “Já, blessaður litli engillinn minn, Guð blessi þig.” “Amen” sögðu marg'ir af þeim, sem nærstaddir voru. Nú leit hún aftur á vagnstjórann og spurði: “Hvað á eg að segja litlu stúlk- unni þinni þegar eg sé hana? Á eg að segja henni að eg sá þig á Jesú járn- braut?” Nú flóðu tárin aftur frá augum þeirra sem viðstaddir voru. Vagnstjórinn féll á kné við hlið hennar, faðmaði hana að sér og grét. Hann gat ekki komið upp orði. Rétt í þessu bili kallaði aðstoðarmaður hans nafnið á næstu stöð. Vagnstjórinn stóð upp og bað hann líta eftir öllu sem þyrfti fyrir sig, því hann gæti ekki komið. Þetta var hátíðleg stund. Eg er Guði þaklc- látur fyrir að eg fékk að vera viðstaddur, en hér/ varð eg að fara af lestinni. Vér lærum af þessu að Guð hefir til- búið sér lof af munni barna og brjóst- mylkinga. Vér ættum að vera fúsir til að vitna um vorn elskaða frelsara hvar sem vér erum staddir. Nokkrum mánuðum seinna fékk eg bréf frá vagnstjóranum, þar sem hann lét í ljósi fögnuð sinn yfir að hafa gefið Guði hjarta sitt. Hann hafði ásett sér að taka litlu stúlkuna sér í idötturstað, og var það fúslega samþykt af konu hans. En litla stúlkan dó snögglega án þess sjá- anlega að vera neitt veik. Hann lét í ljósi söknuð sinn, en jafnframt gleði og þakklæti fyrir að hafa mætt henni, þar sem það varð tilefni þess að hann sneri sér til Guðs. — Rev. J. M. Dosh. (Þýtt úr gömlu smáriti. S. J.).

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.