Stjarnan - 01.06.1942, Side 8

Stjarnan - 01.06.1942, Side 8
48 S TJ A RN A N Guði fyrir og át aðeins nokkuð af honum, og l'anst hann þá vera saddur, svo hann geymdi það sem eftir var. Ennþá næsta matmálstíma var honum ekkert gefið svo hann tók brauðbitann, sem eftir var, þakk- aði Guði fyrir og neytti hans, svo leið lionum eins vel eins og hann hefði fengið fullkomna máltíð. Þegar næsti matmáts- timi kom var honum slept úr fangelsinu. Þessi bróðir áleit að sérstök varðveisla Drottins væri yfir honum og styrkti hann, þegar fangavörðurinn hafði ásett sér að hegna honum svo harðlega fyrir það að hann vildi ekki vinna á hvildardaginn. Gegnum allar aldir og alstaðar frá koma vitnisburðir uin náðarríka umhyggju Guðs fyrir börnum sínum á tíma þrenginganna. W. A. Spicer. Ert þú hólpinn? Þú ætlar að koma til Krists, en heldur það liggi ekki á því. “Liggur ekki á,” og dauðinn stendur ef til vill fyrir dyrunum. Hverju ætlar þú að svara þegar þú verður spurður hvers vegna þú hafir fyrirlitið náð Guðs og hina eilífu sáluhjálp er hann vill veita þér? Leyfðu ekki Satan að svæfa þig. Tíminn er naumur og eilífðin fyrir dyrum. Snú þér til Drottins tafarlaust og bið um fyrir- gefning og náð fyrir Jesú verðskuldun. Nú er sú æskilega tíð, nú er dagur hjálp- ræðisins. Treystu Drotni. Kvíddu ekki ókomna tímanum. Hann, sem megnar að í'relsa, getur líka varðveitt þig frá hrösun, varðveitt þig frá öllu illu. “Af náð eruð þér hólpnir orðnir fyrir trúna og það er ekki yður að þakka, heldur er það Guðs gjöf.” Smávegis Sagt er 1316 menn af þeim, sem tóku þátt í innanlandsstríði Bandaríkjanna séu ennjiá á lífi. Aldur þeirra að meðaltali er 96 ár. Þetta var gefið út í þeirra eigin skýrslum 30. sept. 1941. Drengir á Frakklandi sem ekki hafa fylt 17. árið fyrir næstu árslok fá ekki leyfi til að kaupa raksápu, svo ef skegg þeirra er farið að vaxa þá, verða þeir að láta það svo vera. STJARNAN kemur út einu sinni á mán- uði. Vérð: $i.oo á ári. Borgist fyrirfram. Publishers: The Canadian Union Con- ference of S. D. A., Oshawa, Ont. Ritstjórn og afgreiðslu annast Miss S. JOHNSON, Lundar, Man., Can. Japanar eiga þröngt í búi með járn, svo þeir eru að reyna að bæta úr þeirri þörf sinni með því að ná upp skipum, sem sökt hefir verið og ná í járnið úr þeim. 4-4-4- Meir en einn Ifjórði af stáli því, sem notað er í ár til landvarnar í Canada og Bandaríkjunum er tekið úr ónýtum bif- reiðum og járnrusla haugum. 4 4 4 Bandaríkjaherinn þarf til fæðis á dag 1,512,000 egg, 1,000,000 brauð, eina miljón punda af grænmeti, eina miljón punda af kjöti, 600,000 pund af kartöflum og 500,000 pund af ferskum ávöxtum. 4 4 4 Pólskur flugmaður í Lundúnaborg hef- ir fleiri skifti reynt að fá uppskurð á nef- inu til að stytta það. Hann segir það sé óþægilega langt þegar hann þarf að nota lífsloftsgrímu á fluginu. En læknarnir hliðra sér hjá að stytta nef, sem ier alveg heilbrigt. 4 4 4 Nýlega komu til Lourdes á Frakklandi 10 þúsund pílagrímar, sem reknir höfðu verið burtu frá heimilum sínum í Lorraine af óvinahernum. 4 4 4 Svissland þarf að flytja inn ieinn fjórða af matvælum handa þjóðinni. Það sem sérstaklega skortir þar er hveiti, sykur og fóðurbætir. 4 4 4 Kartöflu uppskeran er álitin hin mest áríðandi, þegar hætta er á fæðuskorti, af því það má framleiða mesta fæðu af þeim á hverri ekru af landi. Kartöflu uppsker- an gefur til dæmis tvöfalt meiri fæðu at' ekrunni heldur en hveiti. 4 4 4 “Menn, sem reyna að koma einhverju í framkvæmd, en lánast það ekki eru miklu virðingarverðari beldur en þeir, sem ekki reyna að gjöra neitt og hepnast það.”

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.