Stjarnan - 01.11.1942, Síða 4
92
STJARNAN
Þessvegna sagði Jesús þegar hann vitn-
aði í Daníelsbók: “Lesarinn athugi það.”
Matt. 24, 15. í bókinni er margt, sem þeir
gátu ekki skilið. Það var heldur ekki
nauðsynlegt fyrir þá, þar sem það átti
aðallega við síðustu daga. Þessi hluti var
þeim því lokuð bók, en margt var þar sem
þeim bar að skilja.
Daníel spámanni voru opinberaðir at-
burðir, sem áttu að rætast á síðustu dögum.
jarðarinnar. Engillinn sagði, að á “tíma
endalokanna” myndu margir verða “klár-
ir, hreinir og skírir” en hinir óguðlegu
myndu breyta óguðlega og engir óguðlegir
myndu skilja það, en hinir “vitru” myndu
skilja það. Nokkrir munu skilja það,
aðrir ekki. Á tíma endalokanna mun
Daníelsbók verða skilin af þeim vitru.
Það mun verða þeim opin bók. En þeir
óguðlegu munu ekki skilja hana. Vér
verðum að tilheyra öðrum hvorum
flokknum, þeim vitru eða óvitru, þeim
sem skilja hana eða þeim sem ekki vilja
skilja hana. Ef vér skiljum hana er það
vegna þess að vér höfum rannsakað hana.
Það er því brýn nauðsyn að gjöra það.
Aftur á móti hafa engir hlutar Opin-
berunarbókarinnar verið lokaðir. Engill-
inn, sem sendur var sagði við Jóhannes:
“Innsigla þú ekki spádómsorð þessarar
bókar, því að tíminn er í nánd.” Opinb.
22, 10. Opinberunarbókin átti að vera les-
in og skilin af kirkjunni frá þeim degi að
boðskapurinn kom frá Patmos og til enda-
lokanna. Það má heimfæra sérstaka boð-
skapi Opinberunarbókarinnar til fyrri
kynslóða, en aðrir benda sérstaklega til
vorra tíma.
Að skilningur á þessari bók sé þýðing-
armikill sézt 1 raun og veru bezt á því, að
í byrjun bókarinnar lesum vér: “Sæll er
sá er les og þeir sem heyra orð spádóms-
ins og varðveita það sem ritað er í hon-
um.” Op. 1,3. Og endingarorð hennar
eru: “Eg votta fyrir hverjum þeim manni,
sem heyrir spádómsorð þessarar bókar, að
leggi nokkur við þau, mun Guð á hann
leggja þær plágur, sem um er ritað í þess-
ari bók. Og taki nokkur burt nokkuð af
orðum spádómsbókar þessarar þá mun
Guð burt taka hlut hans í tré lífsins og í
borginni helgu, sem um er ritað í þessari
bók. Sá, sem þetta vottar segir: Já, eg kem
skjótt.” Op. 22, 18-20.
Hvað snertir Daníelsbók, segir Jesús:
“Lesarinn athugi það.” Og um Opinber-
unarbókina segir hann: “Sæll er sá, sem
les og þeir sem heyra orð spádómsins og
varðveita það, sem ritað er í honum.”
í Opinberunarbókinni er skýring á því
sem lokað var í Daníelsbók. í henni er
kunngjört margt, sem áður var lokað les-
endum Daníelsbókar. Þetta er ein ástæð-
an fyrir því að hún er nefnd opinberun.
í Opinberunarbókinni er talað um
sterkan engil, sem stígur af himni ofan,
bjúpaðan skýi og ásjóna hans er sem sólin.
Sjáandinn, sem fékk þessa sýn segir:
“Hann hafði í hendi sér litla bók opna, og
hægra fæti stóð hann á hafinu en vinstra
fæti á jörðunni, “og sór við þann, sem
lifir um aldir alda, hann sem himininn
skóp og það sem í honum er og hafið
og það sem í því er, að enginn frestur
mundi lengur gefinn verða.” Op. 10, 2. 6.
Þegar sá tími kom að hinn innsiglaði
hluti Daníelsbókar átti að opinberast, sté
þessi sterki engill ofan af himnum og
“hafði í hendi sér litla bók opna.” Frá
þeim tíma og framvegis áttu sumir af spá-
dómunum í Daníelsbók sem innsiglaðir
voru honum og mönnum liðna tímans að
verða opinberaðir og rannsakaðir á sér
stakan hátt. Sérstaklega áttu spádómar
sem benda til tíma endalokanna að kunn-
gjörast.
Engillinn skipaði þannig fyrir: “Halt
þú þessum orðum leyndum og innsigla
bókina þar til að endalokunum líður.”
Dan. 12, 4. Þessi orð áttu að verða skilj-
snleg á tilteknum tíma, sem hér er kall-
aður “tími endalokanna,” eða rétt fyrir
síðustu daga, sá.tími er spádómar bókar-
innar verða uppfyltir. Á þeim tíma átti
bókin að verða skilin af þeim vitru. Eng-
illinn segir við Daníel: “Margir munu
rannsaka hana og þekkingin mun vaxa.”
Biblíuskýrandinn Barnes þýðir þessa
grein þannig: “Margir munu ferðast um
heiminn eða frá stað til staðar. Tilvís-
unin bendir greinilega á þá sem ferðast
til að vekja athygli manna og veita vís-
bendingu og þekkingu á svo mikilvægum
viðburðum. . . . Það er ekkert annað, sem
hún bendir eins vel til og starfs kristnu
trúboðanna, prestanna og annara starfs-
manna fagnaðarerindisins, sem í þjónustu
sannleikans ferðast um til að vekja áhuga