Stjarnan - 01.10.1943, Síða 4

Stjarnan - 01.10.1943, Síða 4
84 STJARNAN friðarins geti náð til hinna nauðbeygðu, vonlausu miljóna mannkynsins. Gefum bæði fjármuni vora líf og krafta til þess að flytja gleðiboðskapinn, svo að uppfvll- ing vonar vorrar, endurkoma Krists, gjóri sem bráðast enda á skelfingum stríðsins Jesú hugarfar Maður nokkur sat á skrifstofu sinni niðursokkinn í alvarlegar hugsanir. Hann var formaður líknarfélags, sem reyndi að hjálpa fátæklingunum í þessari stóru borg. Erfiðleikar hans voru þessir: Þakklætis- hátíðin var daginn eftir og hann haiiði ekki nóga peninga til að gjöra alt sem hann langaði til öðrum til hjálpar. Hann þekti margar fjölskyldur sem aldrei höfðu fullkomna máltíð, sem ekki mundu fá mikið á þakklætishátíðinni til að vera þakklát fyrir. Hann kendi svo í brjósti um þessi fátæku heimili í borginni. Hann þekti unga menn sem ekki mundu hugsa sig um að kaupa blóm og brjóst- sykur upp á tvo eða þrjá dollara til að gefa kærustunum sínum. Hann þekti líka ungar stúlkur, sem eyddu peningum hugs- unarlaust fyrir óþarfa hégóma. Ó að slíkir peningar væru heldur notaðir til að hjálpa fátæklingunum. Mörg hundruð hinna fátækustu væntu að fá góða máltíð á þakklætishátíðinni frá þessum manni, svo þeir þó einu sinni á ári fengju nægju sína að borða. En hvernig gat hann uppfylt von þeirra? Rétt í þessu sá hann fjögur óhrein andlit líta inn um gluggann, svo var barið hægt að dyrum. Fimm götustrákar og tvær litlar stúlkur komu inn. Maðurinn þekti að þau voru meðlimir trúboðsskólans sem haldinn var á sunnudögum þar í borginni. Hann spurði þau vingjarnlega hvað hann gæti gjört fyrir þau. “Ekkert,” svöruðu börnin feimnislega. “Jimmy, þú segir honum”, sagði önnur telpan og ýtti stærsta drengnum áfram. Jimmy fór nú ofan í vasa sinn og kom þaðan með fullan hnefa af koparcentum og öðrum smápeningum og sagði: “Við erum félag, tuttugu saman,,. “Við erum í því líka”, sagði litla stúlk- an sem hafði ýtt við Jim. og allri þeirri neyð og skelfingum sem af því leiða. Neyð heimsins er köllun til vor. Gefum áður en það verður of seint. Verum þakklátir fyrir þau einkaréttindi, sem vér ennþá höfum, að mega og geta gefið. R. C. sýnt í verkinu “Við erum 20 drengir og stúlkur i félaginu,” sagði Jimmy. “Við erum frá Cummings stræti og erum í félagi til að hjálpa á þakklætishátíðinni. Hér eru 9 dollarar.” Maðurinn starði á peningahrúguna, sem kostað hafði slíka sjálfsafneitun hjá þess- um fátæku börnum. “Það er handa þeim sem annars gætu ekki fengið neinn miðdagsmat,” bætti Jimmy við. “Það er handa þeim,” endurtók hinn góðhjartaði maður. Hann vissi varia hvað hann átti að segja er hann leit á tötra- legu fötin og grannleitu andlitin barn- anna. “Já”, sagði Jimmy, “það eru margir fátækari en við, svo við gengum í félag til að hjálpa þeim. Það gjörði okkur ekkert til að vera miðdagsmatarlaus i tvo eða þrjá daga svo við gætum gefið þeim eina góða máltíð.” “Hvað er hægt að fá miðdagsmat handa mörgum fyrir 9 dollara,” spurði önnur litla stúlkan. “Það verður nóg handa, við skulum sjá,” hann reiknaði nú út hvað það mundi duga og bætti svo við, “það verður nóg handa 35 manns. Þið hafið gjört vel börn. Það gleður mig hvað þið hafið verið hjartagóð og hugsunarsöm við aðra.” Matvælin voru keypt og börnin tóku þau til þeirra sem áttu að fá þau. Fvrst ætluðu þau að hafa eitt kálhöfuð með hverjum skamti, en þau höfðu ekki nógu mörg til þess svo þau skiftu hverju kál- höfuði í fjóra parta og létu einn part með í hvern pappírspoka. Þessi 20 fátæku börn unnu til klukkan níu kvöldið fyrir þakklætishátíðina, til að færa miðdagsmatinn þessum 35 sem voru fátækari en þau sjólf. Selecied.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.