Stjarnan - 01.12.1943, Page 8
104
STJARNAN
Smávegis
“Allir Drottins vegir eru miskun og trú-
festi fyrir þá, er geyma hans sáttmála og
lögmál. Hverjum manni sem óttast Drott-
inn mun hann vísa þann veg sem hann
á að kjósa. Hans sála býr í farsæld og
hans niðjar eignast landið. Drottins alda-
vinir eru þeir, sem hann óttast, og hans
sáttmáli er þeirra uppfræðing.” Sálm.
25:10—14.
“Haf þú þína unaðsemd í Drottni, þá
mun hann veita þér girndir þíns hjarta.
Varpa þú þinni áhyggju á Drottinn, hann
mun gjöra eitthvað og reiddu þig á hann.
Hann mun láta þinn rétt framganga sem
ljós, og þitt réttlæti sem hádegisbirtu. Vona
þú í kyrð á Drottinn og bíð hans. Lát
þér ei gremjast við þann mann hvers at-
hæfi hepnast, við þann sem hefir pretti í
frammi. Hjálp hinna réttlátu kemur frá
Drottni hann er þeirra styrkur í neyð-
inni. Sálm. 37:5—7.39.
Tilraunir akuryrkjudeildar Bandaríkj-
anna benda á að vefnaðarvara sem geymd
er á heitum hanabjálkaloftum skemmist
fyr heldur en sú sem geymd er á kaldari
stað.
♦ ♦ -f
Roger Babson álítur að fyrir hvern
dollar sem kemur inn í áfengisskatt þurfi
að borga út 20 dollara fyrir slys vinnutap
og glæpi sem orsakast af áfengisnautn-
inni.
♦ -f ♦
Það er haft eftir J. Edgar Hoover for-
manni leynilögruglunnar, að glæpir hafi
kostað amerísku þjóðina 15 biljón dollara
árið sem leið, hann áleit að 75 til 90 hundr-
uðustu af glæpunum orsakaðist af áfengis-
nautninni.
♦ -f ♦
Kvenfólkið í Bergen í Noregi er nú farið
að bera út póstinn. Það er því orðið algengt
að sjá konur ganga á tréskóm sínum upp
og niður pósthúströppurnar með bréfin og
póstbögglana í fanginu.
♦ ♦ ♦
Það er gjört ráð fyrir að bæði karlar og
konur í Englandi muni, eftir stríðið, nota
pappírs nærföt, sem verði fleygt þegar
búið er að nota þau.
STJARNAN kemur út einu sinni á
mánuði. Verð: $1.00 á ári. Borgist
fyrirfram. Publishers: The Canadian
Union Conference of S. D. A.,
Oshawa, Ont.
Ritstjórn og afgreiðslu annast
Miss S. Johnson, Lundar, Man. Can.
Eitt loftbátafélag í Bandaríkjunum segir
að einungis einn af þúsundi fái snert af
loftsýki sem líkist sjóveiki.
♦ ♦ +
Salt það, sem árlega er flutt upp í fjall'
lendi Montana-ríkis fyrir stórar hjarðir af
villidýrum er nú tekið í flugvél sem flýgur
lágt og skilur saltið eftir hér og hvar. Þetta
tekur aðeins fáeina klukkutíma. Áður
þurfti fleiri vikur til þess þá menn fluttu
saltið á áburðarhestum yfir fjall-lendið.
+ + +
Poon Lim, kínverskur matreiðslumaður
á ensku skipi sem eyðilagt var með neðan-
sjávar sprengju, hraktist á fleka í 133 daga
það eru fullar 19 vikur á suðurhluta Atl-
antshafsins áður en fiskibátur einn bjargaði
honum. Hann lifði á sjófuglum og hráum
fiski, eftir að matvæli hans voru þrotin-
Hann var einn mánuð á sjúkrahúsi 1
Brazilíu áður en hann kom til New York-
Þaðan var honum boðið til Englands til
að meðtaka hæsta virðingarmerki, sem
England getur veitt almúgamönnum-
Læknar segja að Poon Lim hafi góða
heilsu. Þá furðar á hve fljótt hann hefir
náð sér aftur. ,
♦ ♦ +
Það er gert ráð fyri að félög þau sem
búa til hagleiks limi og umbúðir muni
hafa 100 miljón dollara viðskifti þetta ár
og þannig hjálpa að minsta kosti 50,000
manns svo þeir geti unnið sér brauð og
notið þæginda lífsins.
+ ♦ ♦
Einhver hinn frjósamasti jarðvegur sem
finst í heiminum er myndaður af grárri
ösku frá gjósandi eldfjöllum, sem flytja
nauðsynleg málmefni með sér er gjöra
jarðveginn miklu frjósamari.
♦ ♦ +
í Þýzkalandi hafa 50 til 100 manns safn-
ast saman á hverju kvöldi í síðastliðin 5
ár í kirkju Martins Niemuller til að biðja
fyrir honum. Niemuller er fangi Nasizta.