Stjarnan - 01.12.1944, Síða 1
STJARNAN
DESEMBER 1944
LUNDAR, MAN.
Hjörtu yðar
Hversu margír af oss hafa hjörtu vor
svo inngirt, svo vel vátrygð að fjármissir,
þjáningar, vonbrigði, vinamissir og ekkert
annað geti skelft oss eða raskað rósemi
vorri? Er hjarta þitt svo fullkomlega sam-
einað Kristi að þú getur mætt hverju, sem
er með ró og stillingu, með fullkomnu
trausti til Guðs.
Guðs börn eru ekki eins og fólk er
flest. Þau þurfa ekki að skelfast við ill
tíðindi. “Hjörtu yðar skelfist ekki né hræð-
ist.” Svo gefur hann ástæðurnar fyrir því
að þau þurfa ekki að hræðast. “í húsi föð-
ur míns eru mörg hýbýli .... Eg fer burt
að tilbúa yður stað ... Eg kem aftur að
taka yður til mín”. Hvaða áhrif hafa þessi
orð á hjarta þitt?
Eg fónaði konunni minni hérna um
kvöldið. Eg var langt í burtu heimanað.
Hún spurði: “Nær kemur þú heim elskan
mín?”
“Eg kem á laugardagsmorguninn með
járnbrautarlestinni,” svaraði eg.
“Eg verð á járnbrautarstöðinni og bíð þín
þar”, sagði hún. Það eru víst hundrað þús-
und aðrar konur þar í borginni, en engin
þeirra sagðist mundi bíða mín þar, og
hvers vegna ekki? Eg vair ekkert fyrir
þær.
Ef hann meinar nokkuð til þín, og þú
metur hann nokkurs þennan elskuverða,
kærleiksráka Drottinn, sem segir: “Eg kem
aftur,” þá munit þú svara: “Kom þú fljótt,
eg bíð eftir þér. Með hvaða lest kemur þú?
Kemur þú í fyrramálið?”
Hrífur það hjarta þitt loforðið um endur-
komu hans? Þráir þú komu hans? Eg veit
það verða margir á járnbrautarlestinni að
mæta mér þegar eg kem heim. En það
verður ein elskuleg kona, sem bíður mín.
skelfiát ekki
Margir. fleiri munu koma þangað lágir
vexti og hávaxnir, líka margir fríðir og
tígulegir, en hún bíður ekki til að mæta
þeim, en hún bíður eftir litla manninum,
manninum sem hún tilheyrir.
Ert þú að bíða eftir honum, sem þú til-
heyrir? Ert þú eitt með honum gefin hon-
um. Ert þú í sannleika hans? Hann kemur
aftur. Hann fór en hann lofaði ákveðið að
koma aftur. Hvaða áhrif hefir loforð hans
á hjarta þitt? Langar þig til að sjá augb.t
hans? Þráir þú að fá að sjá hann eins og
hann er? Getur þú frá grunni hjartans
sagt: “Kom Drottinn Jesús. Eg þrái að sja
þig, mig langar eftir þér.”
“Reyniö yður sjálfa”.
Þú getur verið trúhneigður án þess að
elska Jesúm. Þú getur verið glaður í við-
móti, viðfeldinn og skemtilegur án þess að
elska frelsarann. Trúarbrögð og kristin-
dómur. er sitt hvað. Trúarbrögð er að kann-
ast við viss kenningar atriði. En kristin-
dómur er að elska Jesúm Krist og vera
honum sameinaður. Eg gæti sameinast
mörgum trúarbragða deildum með því að
kannast við eg tryði kenningum þeirra. En
sannkristinn maður elskar Jesúm. Kristur
er í honum von dýrðarinnar.
Jesús lofaði með eigin orðum að koma
aftur. Hann mintist á komu sína einnig
eftir hann reis upp. (Jóh. 21:22) Hvað
segir Páll postuli um þetta efni?
“Því sjálfur Ðrottinn,” ekki einhver ann-
ar andi eða engill. “Sjálfur Drottinn mun
með ákalli, með höfuðengils raust og með
Guðs lúðri af himni niður stíga.” Hann
gjörir heyrum kunnugt að hann kemur.
Hann kemur til að ta'ka söfnuð sinn heim