Stjarnan - 01.12.1944, Side 3

Stjarnan - 01.12.1944, Side 3
STJARNAN 91 Er himnaríki verulegt pláss? Hvað er himnaríki og hvar er það? Er það verulegt pláss? Munum vér þekkja hver annan þar? Ef vér ætluðum að ferðast í fjarlægt land, þar sem við hefðum aldrei komið fyr, og búa þar það sem eftir væri æf- innar, þá mundum vér gjarnan fá að vita alt naögulegt viðvíkjandi því landi. Hvaða fólk byggi þar, hvernig loftslagið væri o. s. frv. Allir kristnir menn trúa því að til sé annað líf eftir þetta jarðneska líf. Biblían falar um líf í framtíðinni og gefur oss skýra og skiljanlega lýsingu á því, fegurð þess og dásemdum. Biblían talar um þrjá himna. í 2Kor. 12:2 lesum vér: “Eg þekki mann í Kristo, er fyrir 14 árum var uppnuminn, alt upp í þriðja himin. (Hvort hann var í líkam- anum eða utan líkama, það veit eg ekki. Guð veit það). Eg veit að þessum manm var upp rykt í Paradís. Postulinn segir hann var upp numinn upp í þriðja himin. Fyrst þriðji himin er til þá hlýtur að vera sá fyrsti og annar. Biblían talar oft um himininn þar sem skýin líði áfram, og fuglarnir fljúga. í lMós. 1:6—8 er sagt frá að Guð skapaði hinn fyrsta himin, eða gufuhvolfið, sem hér er kallað festing. í Jer. 10:13 lesum vér að “þegar hann þrumar svarar vatna- gnýr í himninum.” Gufuhvolfið eða festingin er þar sem skýin eru. Miljónir, já biljónir skippunda af vatni koma niður úr skýjum himinsins til að vökva jörðina og gjöra hana ávaxta- sama. í Es. 55:10 stendur að regn og snjór “fellur af himni ofan og .... vökvar jörð- ina. Þessi himin, það er festingin eða gufu- hvolfið sem umkringir jörðina og verndar hana frá kuldanum í geymnum þar íyrir utan, mun einhvern daginn “Með miklum gný líða undir lok.” í 2Pét. 3:10 er oss sagt að “Dagur Drottins mun koma, sem þjófur á nóttu. Þá munu himnarnir með miklum gný líða undir lok, frumefnin af eldi sundurleysast og jörðin og þau verk sem á henni eru upp brenna.” Þetta er nú sá fyrsti himinn, sem oss er öllum kunnugt um, Hinn annar himin er þar sem himin- hnettirnir eru. Um það lesum vér í Sálm. 19:1—3. “Himnarnir segja frá Guðs dýrð og festingin kunngjörir verkin hans handa. Einn dagurinn kennir öðrum þetta tal, og ein nóttin kunngjörir annari þessa aug- lýsingu.” Það væri gott fyrir hverja einustu mann- eskju að vera, þó ekki væri nema eina heiðbjarta nótt, einsamall úti á víðáttu- mikilli eyðimörku eða upp á fjallstindi frá sólsetri til sólaruppkomu til að virða fyrir sér gang stjarnanna yfir himinhvolfið. Slík sjón verður manni minnisstæð alla æfi og maður tekur undir með sálmasikáldinu: “Þegar eg sé þinn himin, verkin þinna handa, tunglið og stjörnurnar, sem þú til- bjóst, þá kemur mér til hugar: Hvað er maðurinn þess að þú minnist hans og mannsins barn að þú vitjir þess.” Sálm. 8:3.4. Nú skulum við athuga hinn þriðja him- inn. Himininn þar sem Guð býr. I musteris- vígslu ræðunni kaliar Saiómon það “Himn- anna himna.” 2Kon. 8:27, og í 5Mós. 26:15. er það nefnt “Guðs heilaga sæti á himn- um”. Og í 2Kron. 6:3 biður Salómon: “Heyr þú í himninum þínum aðseturstað”. “Guð er á himnum.” Préd. 5:2. Og Jesús kendi oss að biðja: “Faðir vor, þú sem ert á himnum, helgist þitt nafn.” Guð er alstaðar nálægur fyrir sinn heilaga anda, en Ritningin segir oss með berum orðum að hann sé á himnum. Jesús er þar einnig. Rétt áður en hann fór úr heiminum sagði hann í bæn sinni til Föðursins: “Nú fer eg til þín og þetta tala eg í heiminum, svo þeir hafi í sjálfum sér minn fögnuð full- kominn.” Jáh. 17:13. Að himininn er verulegt pláss og dvaiar- staður sést ljóslega af Jóh. 14:1—3. “Hjarta vðar skelfist ekki. Trúið á Guð og trúið á mig. í húsi föður mlns eru mörg híbýli, væri ekki svo hefði eg sagt yður það. Eg fer burt að tilbúa yður stað, og þegar eg er burt farinn og hefi tilbúið yður stað, þá mun eg koma aftur og taka yður til mín svo að þér séuð þar sem eg er.” Jesús tók því skýrt fram að hann fór til að tilbúa stað eða pláss fyrir okkur, svo himininn er reglulegur staður og Jesús vill

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.