Stjarnan - 01.12.1944, Síða 4

Stjarnan - 01.12.1944, Síða 4
92 STJARNAN að vér séum þar hjá honum. Um það les- um vér ennfremur í Jóh. 17:24. “Faðir, eg vil að þeir sem þú gafst mér séu hjá mér þar sem eg er, svo þeir sjái mína dýrð, sem þú gafst mér, því þú elsk- aðir mig áður en veröldin var grundvöll- uð.” Himininn er líka stundum kallaður Para- dís. Paradís og himininn er sama plássið. Það sjáum vér að Op. 2:7. “Þeim sem sigrar mun eg gefa að eta af lífsins tré, því er Sitendur í Paradís Guðs.” Hér er sagt að lífsins tré, sem einu sinni var í Eden aldingarði sé í Guðs Paradís. Höf- um það í huga nú er vér lesum Op 22:1.2. “Hann sýndi mér straum lífsvatnsins, hann var skær sem krystall og rann frá hásæti Guðs og lanmbsins. Milli borgar- strætanna og straumsins beggja vegna voru lífstréin sem báru tólffaldan ávöxt, á sín- um mánuði hvern, en blöð viðarins eru til lækningar þjóðunum.” Af þessu sjáum vér að lífsins tré er á bökkum lífsvatnsins, sem flýtur frá há- sæti Guðs og Krists, svo lífsins tré er rétt hjá hásæti Guðs, og samkvæmt hinum fyrri texta er það í Paradís Guðs, þess vegna er Paradís þar sem hásæti Guðs er, og himininn er hans hásæti Nú kemur önnur spurning. Munum véi þekkja hver annan þar? Sumir ímynda sér að við þekkjiumst ekki, en það er óhugsan- legt. I Hebr. 12:20—23 lesum vér: “Heldur eruð þér komnir til fjallsins Síon, og borg- ar Guðs lifanda, hinnar himnesku Jerú- sal-em og englanna mörgu þúsunda til sam- kvæmis og samkundu hinna frumgetnu hverra nöfn eru skrifuð á himnum, og til Guðs allra dómara, og til anda réttlátra, sem algjörðir eru orðnir.” Hér stendur að Guðs börn eru skrifuð á himni. Yér lesum enn fremur í Fil. 4:3. “Einnig bið eg þig, minn trúlyndi sam- þjón, að þú takir þær að þér, því þær að- sto^úðu mig þegar eg boðaði náðarlærdóm- inn, ásamt með Klemens og öðrum mínum liðsmönnum, hverra nöfn s-tanda í lífsins bók.” Hér tekur Páll því skýrt fram að nöfn trúaðra standi í lífsins bók.. Nöfn vor eru rituð þar. Þessu samhljóða er Lúk. 10:20. Jesús sagði við lærisveina sína: “En gleðjist samt ekki yfir því þó illir andar hlýði yður, heldur yfir því að nöfn yðar eru skrifuð á himnum.” Hversu erfið sem kjör þín eru, hversu þ-ung von-brigði sem þú líður, svo framar- lega sem þú ert Guðs barn, þá getur þú glaðst yfir því að nafn þitt er skrifað á himnum. Já, vér munum þekkja hver ann- an þar, því nöfn vor og nöfn ástvina vorra eru rituð á himnum. Nafn þitt er þar. Nöfn hinna tólf postula og hinna tólf ætt- feðra ísraels eru skrifuð á hliðin og undir- stöður borgarinnar. Vér munum verða líkir Jesú. Páll postuli segir: “Vort föðurland er á himni, hvaðan vér væntium lausnarans, Drottins Jesú Krists, sem mun ummynda líkama vorrar læ-gingar, svo hann verði líkur hans dýrðar líkama, eftir þeim krafti sem hann hefir til að 1-eggja alt undir sig.” Fil. 3:20.21. Sjá einnig lJóh. 3:1.2. Þegar Jesús birtist lærisveinum sínum eftir upprisuna þektu þeir hann altaf nema eitt skifti sem augu þeirra voru svo haldin að þeir þektu hann ekki. Hann birtist Maríu Magðalenu ef-tir upprisuna og hún þekti hann. Sama daginn birtist hann læri- sveinunum sem voru saman komnir í loft- salnum. Hann var áþreifanleguf og sýni- legur. Hann neytti matar hjá þeim. Hann var sá sami Jesús sem áður hafði með þeim verið, einungis var hann nú dýrð^egur og frá dauðum upprisinn. Lúk. 24:36—43. Fyrst þeir þektu Jesúm eftir upprisuna þá munum vér líka þekkja hvorii aðra á landi lífsins. Kæru sorgbitnu feður og mæður, sem mist hafið litla ástvininn ykkar, þér mun- uð sjá og þekkja hann aftur ef þér aðeins lifið Guði. Þér verðið að vera vissir um að þér verðið þar sjálfir. Vinur minn heimsótti St. Páls kirkjuna í Lun-dúnum fyrir nokkrum mánuðum síðan. Presturinn sem þjónar þar býr ná- lægt kirkjunni. Litla heimilið hans er hálf- eyðilagt þó kirkjan standi nærri því ó- skemd mitt innan ium rústirnar. Hann fylgdi vini mínum upp í turninn, hvaðan þeir gátu séð eyðilegginguna alt um'hverfis. Svo fór hann með hann inn á heimilið þar sem hann og hin aldraða kona hans búa ennþá. Þau hafa neitað að flytj-a. Hann sýndi gesti sínum mynd af laglegum ung- um manni, einkasyni sínum, sem nokkr- um vikum áður hafði farið út að mæta óvin

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.