Stjarnan - 01.12.1944, Blaðsíða 8
96
STJARNAN
Drengirnir bundu saman sleðana og
rendu sér með hann niður brekkuna. Hann
hélt sér með báðum höndum og sagði:
“Það er langt síðan eg hef rent mér á
sleða.”
Þegar ofan var komið drógu þeir hann
á sleðanum heim til læknisins.
“Eg skulda ykkur mikið drengir,” sagði
hann, og var þungt niðri fyrir “Notið þið
brekkuna mína svo mikið sem þið viljið,
og takið með ykkur- svo marga drengi sem
ykkur sýnist. En þið verðið að hafa pláss
handa mér, því eg kem til að renna mér
með ykkur þegar mér er batnað í fæt-
inurn.”
“Þakka þér svo hjartanlega fyrir,” sögðu
báðir drengirnir um leið og þeir lögðu af
stað heim til að segja frá heppni sinni.
S. M. C.
Smávegis
Evropiski kornormurinn olli 33 miljón
dollara skaða á kornuppskerunni árið 1943
í norðausturríkjum Bandaríkjanna.
4- ♦ 4-
Brazil framleiðir 500.000 pund á ári af
hrásilki.
♦ + ♦
Ford félagið hefir framleitt 5000 flug-
vélar síðastliðin tvö ár.
+ 4- ♦
Herlæknar halda sig hafa íundið örugt
meðal við sjóveiki. Það er pilla sem varnar
því að menn verði veikir af hreyfingu á
landi eða sjó. Samsetning meðalsins er
leyndarmái hersins en púsundir amerískra
hermanna munu vera þakklátir fyrir þá
uppgötvun, þegar þeir þurfa að fara yfír
hafið til herstöðvanna.
+ + +
Kæru vinir mínir. Ef Guð hefir blessað
ykkur og veitt ykkur nauðsynjar lífsins
þá minnist þess að Stjarnan hefir ekkert
að lifa á nema það sem góðviljaðir sam-
viskusamir lesendur senda henni.
Guð gefi ykkur öllum gleðilegar kom-
andi hátíðar.
S. Johnson.
♦ + ♦
Píus páfi tólfti talar vel 8 tungumál.
STJARNAN kemur út einu sinni á j
mánuði. Verð: $1.00 á ári. Borgist
fyrirfram. Publishers: The Canadian
Union Conference of S. D. A.,
Oshawa, Ont.
Ritstjórn og afgreiðslu annast
Miss S. Johnson, Lundar, Man. Can
Skortur á verkafólki hafði þær afleið-
ingar við síðustu uppskeru að ein miljón
sýru ávextir rotmuðu á trjánum í Trini-
dad.
+ + +
Tré eru það elsta sem lifandi finst í
heiminum. Cyprus tré í Indíána þorpinu
Maria del Tule í Mexico er álitið að vera
að minsta kosti 4000 ára gamalt.
♦ ♦ ♦
Það var auglýst nýlega í Bandaríkjunum
að herinn hefði tapað fleiri mönnum fyrir
skort þeirra á mentun heldur en fyrir
vopnum óvinanna. Særðir og drepnir voru
204.454, en þeir sem hafnað var af því
þeir stóðusit ekki herprófið, mestmegnis
fyrir mentunarskort, þá þeir voru líkam-
lega heilbrigðir voru nálægt því 240.000.
> + +
Ringling bræðra og Barnum' og Bailey
sýningartjald, sem nýlega eyðilagðist af
eldi í Hartford Connecticut, var hið
stærsta tjald í heimi, það vigtaði 20 skip-
pund, var metið 50 þúsund dollara virði,
var 600 fet á lengd og 200 fet á breidd og
hafði sæti fyrir 12 þúsund manns.
+ + +
Landsvæði nokkurt í Nýja Suður Wales
í Ástralíu, sem hingað til hefir aðeins fram-
leitt fóður fyrir kangaroos og fáeinar kind-
ur, hefir yfirstandandi ár framleitt 8000
skippund af hrísgrjónum.
♦ ♦ +
Talsímaþráður var lagður undir sundið
rnilli Englands og Frakklands, eftir að
ráðist var inn á Evrópu 6. júní, og það
var farið að nota hann 28. júní.
+ ♦ ♦
Fyrsta frásögn er menn hafa um sól-
myrkva, ætla menn sé sú, sem skráð er í
sögubók Kínverja. Sólmyrkvinn átti sér
stað 22. okt. 2137 fyrir Krist.
♦ ♦ ♦
Atlantshafið er að meðaltali um 13.654
fet á dýpt, en Kyrrahafið 13.438 fet.