Stjarnan - 01.01.1945, Blaðsíða 1
Gleðilegt nýár 1 945
Enn einu sinni erum vér komnir að hin-
um alvarlegu tímamótum sem vér köllum
áraskifti. í náð sinni hefir Guð hlíft oss
við skelfingum þeim sem víða ganga yfir
heiminn. Flestir horfa fram á ókomna tím-
ann með óttablandinni von. En hin dýpsta
og hjartnæmasta tilfinning vor ætti að
vera lofgjörð og þakklæti til skapara vors
og Drottins, fyrir hans ómetanlegu náð, að
hafa vakað yfir oss og varðveitt oss og
heimili vor frá öllum háska og slysum, og
honum getum vér öruggir falið oss og
ástvini vora á þessu nýbyrjaða ári. Drott-
inn er athvarf sinna og hjálp í nauðum
margreynd. í auðmýkt meg-um vér játa að
vér erun/engu 'betri en þjóðir þær og ein-
staklingar, sem gengið hafa gegnum skelf-
ingar hinna síðastliðnu 5 ára, en það er náð
Guðs, sem hefir hlíft oss óverðugum, svo
vér höfum getað lifað í velgengni og friði.
En, ó, hversu margir vor á meðal jafnvel,
hafa blæðandi hjarta vegna ástvinamissis,
svo margir af vorum bestu og hraustustu
sonum hafa látið líf sitt á vígvellinum. Þeir
gáfu þjónustu sína og líf sitt í von um
að geta trygt frelsi og líf okkar sem heima
erum. Guð blessi minningu þeirra. Sorgin
er þung að sjá þeim á bak, en hér koma
Guðs fyrirheit til þess eins og græðismyrsl
á, mýkja sárin og draga úr þjáningunum.
Jesús lofaði að koma aftur, og þá mun hann
kalla fram úr gröfunum þá, sem sofnaðir
eru. Þeir hvíla þar í friði og bíða uppris-
unnar. Eg hef miklu meiri meðaumkvun
naeð þeim, sem lifa og verða að taka af-
leiðingum skelfinganna heldur en hinum
sem hrifnir voru burt frá þeim er þeir
mistu lífið.
Mesta alvörumálið í þessu sambandi er
það hvernig vér verjum lífi voru og kröft-
um hér, þennan styttri eða lengri tíma,
sem vér dveljum í heiminum. Keppum vér
eftir að höndla hið himneska hnoss, sem
Guð frambýður oss fyrir Jesúm Krist? Eða
látum vér oss nægja að berast með straumn
um í hringiðu heimsins, sem endar með
glötun og veitir heldur ekki neina varan-
lega hamingju á yfirstandandi tíma.
Ef vér höfum valið Jesúm fyrir leiðtoga
vorn og orð hans fyrir vort leiðarljós, þá
getum vér öruggir litið fram á ókomna
tímann, og óttalaust mætt því sem fram-
undan er, hversu erfitt sem það kann að
vera, því hann sem hefir lofað að vera
með sínum alt til veraldarinnar enda, Inann
hefir alt vald á himni og jörðu.
Hversu dimt, sem útlitið er getum vér
glaðir fylgt honum sem er heimsins ljós.
Hann gefur ástvinum sínum þessa dýr-
mætu fullvissu: “Eg mun koma aftur og
taka yður til mín, svo þér séuð þar sem
eg er. Og hann mun ummynda líkama vorr-
ar lægingar svo hann verði líkur hans
dýrðarlíkama.”
Guð gefi ykkur og okkur öllum að lifa
í þessari öruggu von og dýrðlegu fullvissu,
þá mun hið nýbyrjaða ár 1945 í sannleika
verða okkur öllum gleðilegt ár.
S. Johnson.
“Sönn trúarbrögð munu fullnægja þörf-
um sínum, þegar þau eru ekki fær um það
og Guði finst ekki ráðlegt að hjálpa-þeim,
svo að þau þurfa að snúa sér til ríkisvalds-
ins um fjárveitingu, þá er eg sannfærður
um, að þau eru ekki hin réttu.”
Benjamín Franklín.
I