Stjarnan - 01.01.1945, Side 2

Stjarnan - 01.01.1945, Side 2
2 STJARNAN Jesús er sonur Guðs Sannleikur, sem allir verða að vita. Jesús er Guð. Það sagði hann ekki bara einu sinni en oft. Og orð hans eru sann- leikur. Jesús krafðist þess að hafa verið til áð- ur. Áður enn Abraham var til. er eg. Jóh. 8,38. “Eg hefi stígið niður af himni”. Jóh. 6, 38. “Með þeirri dýrð, sem eg hafði hjá þér áður enn heimurinn varð til.” Jóh. 7, 5. Jesús krafðist þess að vera almáttugur. “Alt vald er mér gefið á himni og jörðu.” Matt. 28, 18. “Alt er mér falið af föður mínum.” Matt. 11, 27. “Faðirinn elskar soninn og hefur gefið alla hluti í hönd honum.” Jóh. 3, 35. “Þú hefir gefið hon- um vald yfir öllu holdi.” Jóh. 17, 2. Jesús krafðist þess að vera óskeikull. “Himinn og jörð munu líða undir lok, en orð mín munu als ekki undir lok líða.” Matt. 24, 35. í raun og veru krafðist hann að vera sjálfur sannleikurinn. “Eg er veg- urinn, sannleikurinn og lífið.” Jóh. 14, 6. Jesús krafðist þess að vera syndlaus, og skoraði á mótmælendur sína að sanna synd á sig. “Hver yðar getur sannað á mig synd?” Jóh. 8, 46. Jesús krafðist þess að hann einn hefði konungsrétt yfir sálum manna, með því að kalla á menn til að yfirgefa alt og fylgj a sér einum. Hann fullvissaði þá um, að hann mundi eigi leyfa jafnvel þeim nánustu og kærustu blóð- og náttúruböndum að leysa þá frá þeim böndum, sem þeir voru bundnir honum. Krafa hans var æðri sér- hverri hollustu í heiminum. Hann krafðist þess að þekkja Guð bet- ur en nokkur mannleg vera gjörði eða gæti gjört, með þeirri þekkingu, sem aðrir voru á sérstakan hátt útilokaðir frá. “Eigi heldur gjörþekkir nokkur föðurinn nema sonurinn.” Matt. 11, 27. “Enginn hefur nokkurn tíma séð Guð; Sonurinn eingetni, sem hallast að brjósti föðursins, hann hefir veitt oss þekkingu á honum.” Jóh. 1, 18. Jesús krafðist þess að hafa verið send- ur í iheiminn af Guði. “Eg er ekki kominn af sjálfum mér, en sá, er sannur, sem sendi mig, en hann þekkið þér ekki. Eg þekki hann, því eg er frá honum, og hann hefir sent mig.” Jóh. 7, 28, 29. Jesús krafðist þess að eiga, og geta gefið eilíft líf. “Sá, sem trúir á mig, hefur eilíft líf.”, “Eg er hið lifandi brauð, sem kom niður af himni; ef nokkur etur af þessu brauði, mun hann lifa til eilífðar”. Jóh. 6, 47, 51. Jesús krafðist þess að geta reist menn upp frá dauðum. “En þetta er vilji hans er sendi mig, að af öllu því, sem hann hefur gefið mér, skuli eg ekki láta neitt glatast, heldur uppvekja það á efsta degi. Því að þetta er vilji föður míns, að hver sem sér soninn og trúir á hann, hafi eilíft líf; og eg mun uppvekja hann á efsta degi.” Jóh. 6, 39, 40. Jesús krafðist þess, að geta verið alstaðar nálægur. “Og sjá, eg er með yður alla daga alt til enda veraldarinnar.” Matt. 28, 20. Jesús krafðist þess að hafa vald til að fyrirgefa syndir þeirra, vald, sem heyrir einungis Guði til. “Mannssonurinn hefir vald á jörðu til að fyrirgefa syndir.” Matt. 9, 6. Jesús krafðist þess, að það yrði hans rödd, sem endurlífgaði þá dauðu á upprisu- deginum. “Sannlega, sannlega segi eg yður; sú stund kemur, já, er þegar komin, er hinir dauðu munu heyra raust Guðs-son- arins og þeir, sem heyra, munu lifa.” Jóh, 5, 25. Jesús krafðist þess að vera dómari allra manna. “Því að eins og faðirinn hefir líf í sjálfum sér, þannig hefur hann einnig gefið syninum að hafa líf í sjálfum sér; og hann hefir gefið honum vald til að halda dóm.” v. 26, 27. Jesús gjörði þá afskaplegu kröfu að á degi dómsins, myndu þjóðirnar safnast saman fyrir honum til að gjöra reiknisskil fyrir gjörðir sínar í líkamanum, og þeim annað hvort hafnað eða teknir, aðeins eftir framkomu þeirra gagnvart honum. “En er manns-sonurinn kemur í dýrð sinni og allir englarnir með honum, þá mun hann setj- ast í hásæti dýrðar sinnar, og allar þjóð- irnar munu safnast frammi fyrir honum.” Matt. 25, 31, 32. Jesús krafðist þess að vera Messías, sonur Guðs. Þegar Pétur sagði við hann: “Þú

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.