Stjarnan - 01.01.1945, Qupperneq 3

Stjarnan - 01.01.1945, Qupperneq 3
STJARNAN 3 ert hinn smurði, sonur hins lifanda Guðs”, þá kannaðist Jesús við nákvæmni fram- burðar hans, og samþykti það og heim- íærði það upp á sjálfan sig og lýsti því yfir að á þessum sannleika mundi hann byggja kirkju sína.” Matt. 16, 13—18. Það er á þessum kletti, Jesú Kristi. hinum guðdóm- lega syni, að kirkjan er byggð, og það er vegna þessa sannleika að “>hlið heljar skulu ekki verða honum yfirsterkari.” Jesú læknaði mann, sem var fæddur blindur, og seinna var rekinn út af Farí- seunum fyrir að hann játaði trú sína á Jesú. Seinna fann Jesús hann og sagði: “Trúir þú á manns-soninn? Hann svaraði og sagði: “Og hver er sá, Herra, að eg geti trúað á hann?” Jesús sagði við hann. “Þú hefur þegar séð hann, og það er hann, sem við þig talar.” En hann sagði: Eg trúi, herra.” Og hann féll fram fyrir honum.” Jóh. 9, 35—38. Þegar Jesús var yfirheyrður, skipaði æðsti presturinn honum að segja skýrt frá hvort hann væri Kristur, sonur Guðs, eða ekki. Þá krafðist Jesús þess enn á ný, að vera sonur Guðs. Matt. 26, 63, 64. Guð faðir vitnaði einnig um guðdóm sonar síns. Þegar hann var skírður: “sjá rödd af himni sagði: Þessi er minn elsk- aði sonur, sem -eg hefi velþóknun á.” Matt. 3, 17. Við ummyndun Krists á fjallinu kom rödd úr skýjun-um, sem sagði: “Þessi er minn elskaði sonur, sem eg hefi velþókn- un á, hlýðið á hann.” Og enn höfum við frásögn f-rá föðurnum: “En um soninn: hásæti þitt, ó Guð, er um aldir alda, og sproti réttvísinnar er spr-oti ríkis þíns.” Heb. 1, 8. J-esús gjörði ekki aðeins þessar afskap- legu kröfur, en hann staðfesti þær með kraftaverkum. Iiann læknaði holdsveika, opnaði blindra augu, gaf daufum heyrn, lét halta ganga og uppvakti dauða. Hann gjörði ekki aðeins kraftaverk, en talaði undursamleg orð, orð sem lifa enn í dag. V-enjulega gleymist ekkert eins fljótt eins og orð manna; menn nota þau ávalt. Það eru miljónir manna, sem hafa talað frá barnæsku til grafarinnar, en alt það hefur fallið í gleymskunnar skaut. Enn Jesús sagði um sín orð: “Himinn og jörð munu líða undi-r lok, en mín orð munu als ekki undir lok líða.” Hann skrifaði engar bækur, skrifaði heldur ekki orð sín niður. Ræður hans voru ekki auglýstar í dagblöðum, samt hafa o-rð hans lifað; þau eru lifandi þann dag í dag. Þau lifa í sögu aldanna, þau lifa í hjörtum fólksins; og þau lifa, því að í þei-m er kraftur lífsins. Nú skulum vér telja þetta alt upp. Jesús sagði að hann kæmi frá Guði. Hann sagðist vera Guð. Hann krafðist þess að vera Messías, sonur hins lifanda Guðs. Hann sagði að Guð hefði sent sig, að hann kæmi frá Guði. Hann sagðist vera Guðs sendi- boði til að tala Guðs orð. Hann sagði að Guð -og hann væru eitt. Hann krafðist þess að hafa verið til áður, almáttugur, ósfceik- ull, syndlaus, einvaldur yfir sálum manna. hafa eilífa lífið í sér, og rétt til að gefa það, vald til að -reisa upp frá dauðum, vald til að fyrirgefa syndir, og vald til að dæma heiminn. Hann gjörði stór tákn og undur, og kraftaverk til að staðfesta kröfu sína, stjórnaði vindi og öldum, réði yfir fiskum sjávarins, læknaði sjúka, og kastaði djöfi- um út. Svo krafðist hann þess að orðin sem hann talaði væru gefin honum af Guði. Þau mundu standa lengur en jörðin og mundu dæma menn á efsta degi. Þetta er sannlei'ki. Það hefur staðist reynsluna. Tugir miljóna hafa viðurkent það sannleika. Þeir hafa fært sannanir fyrir sannsögli þess. Orð Krists hafa staðist, og til eru þau þann dag í dag. Þau munu halda áfr-am að vera til þangað til himinn og jörð fers-t. Ekki eitt af þeim h-efur brugðist. Það er ekki eingöngu vitnisburð- ur Krists sjálfs, en vitnisburður föðursins, vitnisburður verka hans og -orða, sem bera guðdómi Krists vitni, heldur hafa aðrir rit- höfundar Biblíunnar sameinast um að veita honum virðingar stöðu. Páll lýsti því yfir: að, “í honum býr öll fylling guðdómsins líkamlega.” Hann s-egir einnig: “Því að alt hefir hann lagt undir fætur honum”. lKór. 15, 27. Hann skýrir f-rá, að það sé ásetningur Guðs, í fyllingu tímans að “hann ætlaði að safna öllu því, se-m er á himnum, og því sem er á jörðu, undir eitt höfuð í hinum Smurða.” Ef. 1, 10. Hann segir oss að Guð hafi “sett hann sér til hægri handar í himin hæðum, ofar hverri tign og valdi og mætti, ofar öllum herradómi og sérhverju nafni, sem nefnt er, -ekki aðeins í þessari veröld, heldur og í hinni komandi og lagt alt undir fætur honum.” v, 20—22.

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.