Stjarnan - 01.01.1945, Side 5

Stjarnan - 01.01.1945, Side 5
STJARNAN 5 um og einum eins og verk hans eru”. Op. 22, 12. Endurkoma hans er dagur endur- gjaldsins, og það er skýr kenning ritning- arinnar að án hans muni engum veitast eilíft endurgjald. Sjá Matt. 16, 27. Lúk. 14, 12—14, Filip. 1, 6. 2Tím. 4, 6—8. lPet. 5, 1—4. Hann kom einu sinni, lifði, dó og reis upp aftur sigri hrósandi yfir dauða og gröf svo að þeir sem höfðu dáið í trú á hann öðluð- ust upprisu, ódauðleika og eilíft líf, og gætu “alls ekki framar dáið”. Lúk. 20, 36. Hann kemur aftur til að reisa þá dauðu tii ódauðleika, án hverrar upprisu engin von væri um framtíðar líf hinu megin grafar- innar. Jesús sagði: “Enn þetta er vilji hans sem sendi mig, að af öllu því, sem hann hefur gefið mér, skuli eg ekki láta neitt glatast, heldur uppvekja það á efsta degi, því að þetta er vilji föður míns, að hver sem sér soninn og trúir á hann hafi eilíft líf, og eg mun uppvekja hann á efsta degi.” Jóh. 39—40. Þessi orð drottins vors sýna skýrt, að þeir mundu glatast, sem faðirinn hafði gefið honum, ef hann uppvekti þá ekki á efsta degi, og að eilíft líf þeirra sem dánir eru sé komfð undir upprisunni, sem á að eiga sér stað við endurkomu hans. 1. Þess. 4, 16—18. Hin undursamlega meðferð postulans Páls á upprisunni, er alveg eins skýr á þessu atriði að jafnvel dánir kristnir menn mundu glatast, ef engin upprisa ætti sér stað á efsta degi: Hann skrifar: “Því að ef dauðir rísa ekki upp, er Kristur ekki heldur upprisinn, en ef Kristur er ekki upp- risinn, er trú y&ar fánýt, þér eruð þá enn í syndum yðar, og jafnvel einnig þeir glatað- ir, sem sofnaðir eru í trú á Krist”. “Hafi eg eingöngu að hætti manna barist við villidýr í Efesus, hvaða gagn hefi eg þá af því? Ef dauðir rísa ekki upp, etum því og drekkum, því á morgun deyjum vér”. 1. Kor. 15, 16—18, 32. Svo upprisan er einasta von þeirra réttlátu, sem dáið hafa. Af þessari orsök verður Kristur að koma aftur, og reisa þá dauðu upp, annars væri dauði hans og upprisa árangurslaus. Hann kemur aftur einmitt til að gjöra þetta. Að lokum kemur Kristur til að eyði- leggja djöfulinn og öll hans verk. Það stendur skrifað: “Þar sem nú börnin eiga hlut í holdi og blóði, þá hefur hann og sjálfur fengið hlutdeild í því mjög svo á sama hátt, til þess að hann fyrir dauðann gæti að engu gjört þann, sem hefur mátt dauðans, það er að segja djöfulinn”. Heb. 2—14. Jóh. segir: “Til þess birtist Guðs sonur, að hann skyldi brjóta niður verk djöfuls- ins”. 1. Jóh. 3, 8 s. p. Djöfullinn starfar enn í heiminum, og verk hans hafa ekki enn verið brotin niður. Kristur verður að koma aftur til að gjöra þetta. En hann kemur aftur, og mun að síðustu eyðileggja djöful- inn með öllum hans vélabrögðum. Sjá Mal. 4, 1—3, 2Pet. 3, 10—13. Nah. 1, 9—10. Sálm 37, 9—11. J. S. Stevens. Nói, Daníel og Job Nói var réttlætis prédikari. í 120 ár til- kynti hann hinni spiltu kynslóð, sem þá lifði í heiminum að vatnsflóð mundi koma. Þrátt fyrir háð og glettni fjöldans bygði hann skip á þurru landi. Hvorki náttúru- öflin eða vísindin bentu á nokkur líkindi til þess að vatnsflóð mundi koma, en “Nói trúði Guði og það var honum til réttlætis reiknað.” Það er mögulegt að réttlæti hans hafi orðið til þess að fjölskylda hans frels- aðist 1 örkinni. En þó hann væri í heim- inum á hinum síðasta reikningskapar degi. þá gæti hvorki réttlæti hans né áhrif frels- að son eða dóttur. Daníel spámanni var opinberuð stofnun og fall ríkja og þjóða frá hans tíma og alt til daganna enda. Þessi útvaldi Drottins þjónn, sem engillinn sagði við: “Þú ert maður elskuverður”, hinn háttvirti stjórn- málamaður, sem óvinirnir sögðu um: “Vér munum ékkert geta fundið Daníel þessum til saka, nema ef vér finnum honum eitt- hvað að sök í því sem viðkemur átrúnaði hans.” Þessi trúfasti maður, sem ekki vildi víkja hársbreidd frá tilbeiðslu sinni til Guðs þótt það leiddi 'hann í ljónagröfina hvaðan Guð frelsaði hann með kraftaverki, jafnvel þó þessi Daníel væri í landinu, þá gæti hann hvorki frelsað son eða dóttur með réttlæti sínu heldur aðeins sitt eigið líf. Næst er forfaðirinn Job nefndur, sem leið svo ákaflega sorg og þjáningar, svo

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.