Stjarnan - 01.01.1945, Side 6

Stjarnan - 01.01.1945, Side 6
6 STJARNAN líkami hans var allur í sárurn frá hvirfli til ilja. Veiki hans kom stuttu eftir að hann hafði mist öll börn sín og allar eigur sínar. Vesalings kona hans misti kjarkinn og spurði: “Heldur þú ennþá fast við guð- rækni þína?” En Job treysti Guði og slepti honum ekki, hann æfðist í þolinmæði. En þó hann væri í landinu á hinum mikla dóms og reikningskapar degi, þá gæti hann hvorki frelsað son eða dóttur en aðeins sitt eigið líf. Hér er lærdómur fyrir oss. Vér getum ekki treyst öðrum rnönnum fyrir sálu- hjálp vorri. Enginn guðrækinn faðir né elskandi móðir, engin kærleiksrík eigin- kona eða trúfastur eiginmaður getur frels- að ástvini sína. Athugið þetta, þér sem gálausir og kæru- lausir eruð. Hugsið um þetta veraldlega sinnaði sonur og dóttir, og óumventi eigin- maður. Enginn ættingi eða ástvinur, hversu guðrækinn sem hann er er, getur leitt yður inn um perluhliðin á hinni himnesku borg. Þér verðið sjálfir að meðtaka Jesúm Krist, sem yðar persónulegu frelsara og reiða yður á hans fórn og forþénustu yður til sáluhjálpar. Nú er sú æskilega tíð, nú er dagur hjálp- ræðisins. Ennþá stendur dyr náðarinnar opin, og hinn versti syndari getur snúið sér til Krists og fengið náð og fyrirgefri- ingu synda sinna. Ef einhver kærulaus, óendurfæddur maður les þessa grein, einhver sem ekki hefir meðtekið frelsið í Kristi, þá grátbæni eg hann: Hugsaðu, starfaðu og lifðu eins og þú mundir óska að þú hefðir hugsað, starf- að og lifað, þegar þú stendur frammi fyrir Guðs iómstóli. Meðan náðin ennþá er fram boðin, meðan Guðs andi ennþá talar til samvisku þinnar og sannfærir um synd, meðan þú enn getur valið, rólega hugleitt, og notað dómgreind þína, þá snúðu þér til frelsarans Drottins vors Jesú Krists og fáðu hjá honum fyrirgefning og hreinsun frá allri synd. “Snúið yður, snúið yður .. . hví viljið þér deyja?” Þér, sem berið kristið nafn, en hafið slept yðar fyrri kærleika. Þér fráföllnu synir, eg ávarpa yður þessum orðum, sem heilagur andi hefir innblásið: “Nálægið yður Guði þá mun hann nálgast yður. Hreinsið hjörtu yðar þér syndarar og gjör- ið flekklaus hjörtu yðar þér tvílyndu. Ber- ið yður illa syrgið og grátið, yðar hlátur skal umbreytast í sorg og gleðin í hrygð. Auðmýkið yður fyrir Drottni þá mun hann upphefja yður.” Jak. 4:8—10. Þeim, sem í einlægni og alvöru leita Guðs er gefin þessi dýrmæta fullvissa: “Hinn óguðlegi láti af sinni breytni og ill- virkinn af sinni hugsun, og snúi sér til Drottins, þá mun hann miskuna honum, og til vors Guðs, því hann er fús á að fyrir- gefa. Mínar hugsanir eru ekki yðar hugs- anir og yðar vegir ekki mínir vegir segir Drottinn”. Jes. 55:7.8. Það er ljós og líf, sigur og kraftur fyrir yður í Jesú Kristi Drotni vorum. Þér get- ið öðlast hans líf, trú, von, styrk og hug- rekki, kærleika kraft og gleði í þjónustu hans. F. M. W. Tíminn er þegar útrunninn Tíminn er þegar liðinn. Hinar löngu dimmu nætur syndarinnar eru bráðum á enda. Hið hræðilega ástand sem nú ríkir í heiminum víða sýnir að menn eru ófærir til að ráða fram úr vandamálum þeim sem syndin hefir orsakað. Núverandi ástand er tákn þessa. Jesús kemur bráðum. Menn tala um og ráðgjöra endurbætur á komandi tímum, en mannkynið þarfnast hjálpar, og hjálpin mun koma. Spámenn Biblíunnar spáðu því, Jesús lofaði því og deyjandi harmkvælaheimur krefst þess. Þetta er sá tími sem forfeður, spámenn og postular litu fram til með eftirvæntingu. Enginn getur lesið spádóma Biblíunnar um ástand hinna síðustu daga í trúmálum, fjárhagsmálum og félagslífi manna án þess að sjá að þeir eru daglega að uppfyllast fyrir augum vorum. Þegar Jesús hafði útlistað ýmislegt við- víkjandi táknum endurkomu hans þá segir hann: “Þannig skuluð þér vita, að þegar þér sjáið alt þetta, þá er hann í nánd, fyrir dyrum.” Matt. 24:33. Takið eftir, að þjóðirnar eru að hraða sér í áttina til Harmageddon þar sem lokið verður síðasta þætti mannkynssögunnar. Jóe. 13:7—14. Berið fjármál héimsins nú saman við spádóminn í Jakob 5. kapítula þar sem lýst er viðureign auðmanna og

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.