Stjarnan - 01.01.1945, Qupperneq 7

Stjarnan - 01.01.1945, Qupperneq 7
STJARNAN r? I daglaunamanna rétt á undan endurkomu Drottins. Athugið skýrslurnar um út- breiðslu sjúkdóma sem eru afleiðing af yfirtroðslu sjöunda boðorðsins (þú skalt ekki hórdóm drýgja). Hreinleiki, siðprýði og skírlífi eru dygðir sem fjöldi fólks sýnist einskisvirða. Jesús sagði: “Eins og var á dÖgum Lots, menn átu, drukku, keyptu seldu, gróðursettu og reistu hús ... eins mun verða á þeim degi þegar manns-sonur- mn opinberast.” Lúk. 17:28—30. Grátlegt er ástandið í stórum deildum kirkna, sem þó kalla sig kristnar, sem hafa aðhylst nútíðar afstöðu gagnvart Biblíunni, neita sköpunarsögunni, falli mannsins, kraftaverkum Biblíunnar, meyjarfæðing- unni, guðdómi Krists, friðþægingunni og endurkomu Krists. Til hvers lét Guð spámennina gefa oss öll þessi tákn? Til þess vér vissum á hvaða tímabili vér lifðum, og vitandi það gjörð- um nauðsynlegan undirbúning. Drottinn áminnir oss þannig: “Fyrir því skuluð og þér vera viðbúnir, því að manns-sonurinn kemur á þeirri stundu, sem þér eigi ætlið.” Matt. 24:44. Eruð þér tilbúnir að geta horft á hið dýrðlega auglit Drottins yðar og herra? Eruð þér íklæddir hreinleika og réttlætis- skrúða Krists? Hafið þér teigað úr lindum sáluhjálparinnar, úr uppsprettu lífsins vatns? Hafið þér öðlast þann frið, sem gagntekur hjarta mannsins þegar hann hefir fengið syndir sínar fyrirgefnar. Gang- ið þér daglega í ljósi Guðs auglitis? Hlýðið þér öllum boðorðum hans? Er trú yðar að- eins samþykki sögulegs viðburðar, eða er hún lífgandi ummyndunarafl í lífi yðar? Elskið þér það sem Dröttinn yðar elskar og hatið það sem hann hatar? Getið þér í sannleika sagt: “Sjálfur lifi eg ekki fram- ar, heldur lifir Kristur í mér.” Gal. 2:20. Jesús setur fólki sínu hátt takmark, lærisveinar hans verða að hafna öllum óguðleika og fýsnum heimsins, en lifa bindindissömu, réttlátu, guðlegu lífi á þessari jörð meðan þeir bíða komu brúð- gumans. Tit. 2:12. 1 munni þeirra finsc engin lýgi, þeir verða að vera lýtalausir. Þeir varðveita boðorð Guðs og trúna á Jesúm. Op. 14:5.6. Heyrist mér einhver segja: Eg er ekk'. ennþá tilbúinn fyrir endurkomu Krists. En vinir mínir, þér getið orðið viðbúnir á þessari stundu. Gleymið því ekki að Guð sem þér eigið við er almáttugur. Hann skapaði heiminn af engu. “Hann talaði og það varð. Hann bauð og þá stóð það þar.” Sólm. 33:6.9. Ef þér gefið yður algjörlega á hans vald, játið syndir yðar og beiðist fyrirgefningar og náðar fyrir Jesúm Krist, þá hreinsar hann yður af öllu ranglæti. “Þó að syndir yðar séu sem skarlat, skulu þær verða hvítar sem mjöll, þó að þær séu rauðar sem purpuri, skulu þær verða sem ull. “Ef þér eruð auðsveipnir og hlýðn- ir þá skuluð þér njóta landsins gæða.” Jes. 1:18.19. Því ekki skyldum vér svara undir eins: “Öllu fórna eg Jesú og frjálslega gef.” Já, gefum honum alt, allan breyskleika, syndir og' umliðnu árin, þá mun hann opna fyrir oss hjálpræði himinsins. Ó, hve dásamleg umskifti; í stað synda tötra vorra meðtaka og íklæðast réttlætisskrúða hans, hann tekur syndabyrði vora en veitir oss sinn himneska frið og gleði, í stað veikleika vors öðlumst vér kraft hans. En honum sem megnar að varðveita yður frá hrösun og láta yður koma fram fyrir dýrð sína lýtalausa í fögnuði .... honum sé dýrð, há- tign, máttur og vald.” Júd. 24. Tíminn er vissulega þegar liðinn, en enn- þá er tími fyrir yður til að láta frelsast. J. L. Tucker. * Kýrin ekkjunnar kom heim aftur Mr. Merrion sat við kveldverðarborðið með fjölskyldu sinni og sagði rólega: “Eg fór yfir til Dillmans í dag og sótti kúna.” “Pabbi,” spurði Daisy, “hvernig getur fátæka konan komist af án hennar?” “Mér hefir aldrei dottið það í hug,” sagði bóndinn og hló við. “Eg held það sé reglulegt skammarstrik,” sagði Joe, “við höfum fjósið fult af kúm, en vesalings Dillman hafði aðeins eina.” “Hún hefir keypt vörur hjá mér í langan tíma,” sagði bóndinn, “og samningur okkar var að þegar reikningur hennar væri kom- inn upp í 50 dollara þá mætti eg fá kúna, ef hún hefði ekki peninga til að borga með,

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.