Stjarnan - 01.01.1945, Blaðsíða 8

Stjarnan - 01.01.1945, Blaðsíða 8
8 STJ ARN AN svo þið sjáið eg hef keypt kúna og borgað fyrir hana.” “Ó, pabbi það er óforskammað, mjólkin úr kúnni er helmingurinn af fæði þeirra, Mark segir það, og þú ættir að sjá kúna eta úr hendi þeirra og halda upp höfðinu til að láta klóra sér á hálsinum. Mrs. Dill- man hefir svo lengi verið veik. og nú þeg- ar henni er farið að batna, þá held eg hún verði alveg í vandræðum af því að missa Whitney”, sagði Eva og tárin stóðu í augum hennar. Svo ýtti hún frá sér matn- um án þess að bragða hann, stóð upp frá borðinu, fór til föður síns lagði hendurnar um háls honum og bað hann grátandi um að skila kúnni aftur. Bóndinn varð órólegur. Hann hugsaði um hve miklu fé hann tapaði ef hann gjörði þetta. “Eg mundi gjöra það pabbi,” sagði kona hans rólega. “Þú veist hvað Guðs orð segir um þá, sem líkna fátækum.” “Þey, þey,” sagði bóndinn. “Þið getið verið örlát á annara peninga. Hvað mörg ykkar mundu gefa úr sínum eigin vasa?” “Elsku pabbi minn, þú mátt fá spari- peningana í bankanum mínum. hvern ein- asta dollar,” sagði Eva. “Þú þarft ekki að kaupa mér nýjan yfirfrakka í vetur pabbi, eg skal nota þanr* gamla,” sagði Joe. “Pabbi, má eg selja lambið mitt til að borga fyrir kúna?” spurði Daisy, yngsta barnið. “Já nú gengur yfir mig,” sagði bóndinn hlæjandi. “Hvar hafið þið lært þessa gjaf- mildi?” Mrs. Merrion sagði með tárin í augunum: “Eg hef reynt að innræta þeim það sem Jesús kendi okkur. Sá sem miskunar sig yfir fátækan sá lánar Drotni og hann mun endurgjalda honum hans velgjörning. Guðs orð er áreiðanlegt og eg er ó'hrædd að treysta honum.” Árangurinn varð sá að bóndinn seldi börnunum kúna morguninn eftir, og þau höfðu bestu skemtun af því að reka hana heim aftur. Þegar þau nálguðust heimili Dillmans, gjörðu þau svo mikla háreysti að hún og Mark komu bæði út að hliðinu. Þar stóð Whitney fyrir utan girðinguna og börnin í kring um hana. “Góðan daginn, Mrs. Dillman, við ]pm- STJARNAN kemur út einu sinni á mánuði. Verð: $1.00 á ári. Borgist fyrirfram. Publishers: The Canadian Union Conference of S. D. A., Oshawa, Ont. Ritstjórn og afgreiðslu annast Miss S. Johnson, Lundar, Man. Can. um til að færa þér kúna aftur,” hrópaði Joe. “Viljið þið hana ekki?” spurði ekkjan alveg forviða. “Þú þarft hennar meir en við,” sagði Joe, “svo pabbi seldi okkur börnunum hana og við færum þér hana sem gjöf.” “Blessuð góðu börn. Guði sé lof,” sagði ekkjan og fór að gráta. En Mark lagði báðar hendur um háls kúnni og faldi andlit sitt bak við stóru mjúku eyrun hennar, svo enginn gæti séð gleðitárin í augum hans. Merrions börnin sögðu á leiðinni heim. að þau hefðu aldrei á æfi sinni verið ham- ingjusamari en nú. Þau lærðu af eigin reynslu að “það er sælla að gefa en þiggja.” O. L. F. Smávegis Flugvélaverksmiðjur í Bandaríkjunum smíðuðu 8,700 flugvélar í maí-mánuði 1944 flestar af þeim voru til hernaðar eftir því sem skýrslurnar sýna. 4- 4- 4- Melurinn sem eyðileggur fatnað lifir að- eins fáar vikur, en á því tímabili verpir hann frá 100 til 300 eggjum. 4- 4- + Spánverska er nú kend öllum nemend- um, jafnvel þeim í fyrsta bekk, 1 barna- skólanum Torrance Californía. Kennararn- ir segja það gangi vel og börnin hafi gaman af því. 4- 4- + Bandaríkin og sambandsríki Rússa, eru einu löndin í heiminum, sem hafa meira af sígrænum trjám heldur en Canada. 4-4-4- Sjóher Bandaríkjanna hefir nú 18 skip með fullkominn sjúkra'húsútbúnað er geta flutt 10 þúsund særða hermenn.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.