Stjarnan - 01.06.1945, Side 4

Stjarnan - 01.06.1945, Side 4
44 STJARNAN munu forganga, en mín orð munu ekki forganga.” Matt. 24:35. Hefir þú athugað hin dýrmætu orð í Jes. 2:3. “Þú veitir ævarandi frið því þeir treysta á þig.” Hví- lík hugsvölun í erfiðleikum lífsins, að geta treyst honum sem þekkir og skilur oss. Einu sinni var vantrúar maður að hæð- ast að trú auðmjúkrar ómentaðrar krist- innar konu. Hann kom með langan lista af guðfræðis setningum, hún kom ekki orði að til að mótmæla honum. Að lokum sagði hann með fyrirlitningu: “Þú veist ekki einu sinni hverju þú trúir.” Hún svar- aði strax: “En eg veit á hvern eg trúi.” Hún trúði á Jesúm og aldrei hafði hann brugðist henni. Hún þekti hann af eigin reynslu. Hún var ókunnug því sem kallað er guðfræði en hún þekti frelsara sinn. Það eru líka einkaréttindi vor að þekkja hann Guð gefi oss náð til að treysta honum fullkomlega. Voice of Prophecy. V. Barnæska Je6Ú Jesús ólst upp í litlum bæ til fjalla. Hann, sem var guðs son, hefði þó getað verið hvar sem vera skal á jörðunni. Hann mundi hafa verið prýði sérhverrar borgar. En hann kom ekki á heimili hinna ríku né í hallir konunganna. Hann valdi sér bústað meðal hinna fátæku í Nazaret. Hann vill, að hinir fátæku viti, að hann þekkir reynslu þeirra, hann hefir þolað alt, sem þeir verða að þola. Hann getur haft meðaumkvun með þeim og hjálpað þeim. Biblían segir um Jesúm á bernskuárum hans: “Barnið óx og styrktist, fult vizku, og náð guðs var yfir því”. “Og Jesús þrosk- aðist að vizku og vexti og náð hjá guði og mönnum”. (Lúk. 2, 40. 52). Hann var mjög námfús og iðinn, hafði glöggan skilning og var sérlega hugsana- ríkur og vel viti borinn eftir aldri. Þó var hann mjög náttúrlegur og börnum líkur í framkomu og hann óx bæði líkam- lega og andlega, eins og önnur börn. En Jesús var ekki í öllu líkur öðrum börnum; hann sýndi ávalt ósérplægni og vingjarnlegt hugarfar. Hann var ætíð fús til að hjálpa öðrum. Hann stóð fastur eins og bjarg á því, sem rétt var, en jafnframt var hann vingjarn- legur og ástúðlegur í viðmóti og um- gengni við alla, bæði á heimili sínu og annarstaðar. Gamalmennum og fátæklingum veitá hann athygli og sýndi þeim vinsemd sína, og einnig við hin mállausu dýr var hann vingjarnlegur. Þó ekki væri nema særður fugl, sem varð á vegi hans, græddi hann hann og annaðist með mikilli nákvæmni, og alt lifandi fann til vellíðunar í nær- veru hans. Á dögum Krists báru Gyðingar mikla umhyggju fyrir uppeldi barna sinna. Þeir höfðu skóla í félagi með fræðimönnum og söfnuðust saman með þeim til guðsdýrkun- ar, kennararnir voru kallaðir lærifeður; þeir voru álitnir að vera mjög lærðir. Jesús gekk ekki í þessa skóla; því þar var margt kent, sem ekki var sannleikur. Þar voru kendir mannalærdómar í stað guðs orða, og þeir komu oft í bága við það, sem guð hafði sagt í spádómunum. Guð lét sinn heilaga anda kenna Maríu hvernig hún ætti að uppala son hans, hún kendi honum úr heilagri ritningu, og svo lærði hann að elska og skilja hana sjálfur. Jesús hafði einnig löngun til að rann- saka hin dásamlegu handaverk guðs bæði á himni og jörðu. í þessari bók náttúrunnar, sá hann tré, jurtir og dýr, sólina og stjörn- urnar. Hann gaf gætur að þessum hlutum dag eftir dag og leitaðist við að læra eitthvað af þeim og finna hinar réttu orsakir td alls. Hinir heilögu englar voru hjá honum og hjálpuðu honum til þess að skilja þessi guðdómlegu verk. Jafnframt því, sem hann óx óg styrktist líkamlega, tók hann einnig framförum í vizku og þekkingu. Sérhvert barn getur aflað sér þekkingar á sama hátt og Jesús gjörði. Vér eigum að kappkosta að læra einungis það, sem er satt og gott, það sem er þvaður og villa, er oss til engra nota. Einungis sannleikurinn hefir fullkomið gildi, og hann getum vér lært að þekkja af orði guðs og verkum hans. Þegar vér

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.